Morgunblaðið - 28.09.2000, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ
KNATTSPYRNA
FIMMTUDAGUR 28. SEPTEMBER 2000 B 1,1
Keppnisfyrirkomulag:
Punktakeppni með fullri forgjöf, þó verður hæst gefnir 18 iforgjöf, (1 punktur á holu.)
Vinningar
>Oi
’ Utanlandsferö, golfdeild Úrval Útsýn
• Fjallahjól Wheeler, G.Á.Pétursson
• Golfkerra, Hagi Hf
> Golf buröarpoki, Golfbúöin Strandgötu Hafnarfiröi
• Sun Mountain regngalli, Örnlnn reiöhjólaverslun
• Golfpoki
• Borvél, Húsasmiöjan
• Vöruútekt, Herra Hafnarfjöröur
• Ferðagasgrill, OLÍS
• Golfbolur, La Coste
* Reiöhjólahjálmur, Örninn reiöhjólaverslun
yfj Aukaverölaun: Nándarverölaun á öllum par 3 holum.
Ræst út trá kl 8:30 • Keppnisgjald kr. 2000
Golfklúbburinn Keílir þakkar bakhjörlum frábæran stuöning.
FOLK
■ EIÐUR Sniári Guðjohnsen og
Arnar Gunnlaugsson mættust í leik
með varaliðum Chelsea og Leicester
í fyrrakvöld. Chelsea vann, 2:1, en
hvorugur náði að skora. Peir fóru
með sínum félögum til leikja í UEFA-
bikamum sem fram fara í kvöld. Eið-
ur Smári með Chelsea sem mætir St.
Gallen í Sviss og Amar með Leicest-
er sem leikur við Rauðu stjörnuna
frá Júgóslavíu í Austurríki.
■ GYLFI Einarsson, sem Lilleström
keypti frá Fylki á mánudaginn, er
kominn með sínu nýja liði til Moskvu
en Lilleström mætir Dynamo
Moskva í UEFA-bikamum í dag.
Gylfi er að sjálfsögðu ekki orðinn lög-
legur en forráðamenn LUleström
buðu honum með til Moskvu tU að
hann fengi strax tækifæri tU að kynn-
ast leikmönnum liðsins.
■ JOHN AIoisi skoraði þrennu fyrir
Coventry í gærkvöld þegar liðið vann
Preston, 4:1, í enska deUdabikamum
í knattspymu. Everton var óvænt
slegið út úr keppninni þegar liðið tap-
aði í vítaspyrnukeppni fyrir 2. deUd-
arliði Bristol Rovers eftir tvö jafntefli
félaganna.
■ CLAUDIO Caniggia, fyrrverandi
stjama argentínska landsliðsins, er á
leið tU Dundee í Skotlandi sem láns-
maður frá Atalanta á Ítalíu. Canig-
gia er að losna úr 13 mánaða keppnis-
banni vegna kókaínneyslu.
■ ÓLAFUR Páll Snorrason skoraði
eitt marka varaliðs Bolton sem vann
Middlesbrough, 6:2, á mánudaginn.
Ólafur PáU er 18 ára og leikur enn
með unglingaliði Bolton þar sem
hann hefur verið í rúmt ár en hann
kom heim í sumar og spilaði nokkra
leiki með Val í 1. deildinni.
■ BRENTFORD, lið Óíafs Gott-
skálkssonar og ívars Ingimarssonar,
er að reyna að fá Stan Collymore lán-
aðan frá Leicester út þetta tímabU.
Ron Noades, knattspyraustjóri
Brentford, segist geta tekið Colly-
more undir sinn vemdarvæng og
snúið honum á betri brautir.
Arsenal sannfær-
andi gegn Lazio
ARSENAL og Valencia eru einu
liðin með fullt hús stiga í meist-
aradeild Evrópu að lokinni fyrri
umferð riðlakeppninnar. Arsen-
al vann mjög sannfærandi sigur
á Lazio frá Ítalíu, 2:0, á heima-
velli sínum, Highbury í London,
og Valencia lagði Lyon frá
Frakklandi, 1:0, á Spáni. Þar
með eru Arsenal og Valencia
nánast örugg með að komast
áfram en tvö efstu liðin úr hverj-
um átta riðlanna halda áfram
keppni í meistaradeildinni.
Arsenal lék mjög vel gegn ítölun-
um og hefði getað unnið stærri
sigur. Luca Marchegiani, markvörð-
ur Lazio, kom í veg fyrir það og
bjargaði meðal annars frá
Nwankwo Kanu og Fredrik Ljung-
berg úr dauðafærum. Það var hinn
sænski og sköllótti Ljungberg sem
skoraði bæði mörkin sitt hvom
megin við leikhlé - bæði eftir send-
ingar frá Dennis Bergkamp, sem
lék í frjálsri stöðu á miðjunni og
nýtti sér svigrúmið vel. Tony Adams
lék að nýju með Arsenal eftir
meiðsli og var magnaður í vörn liðs-
ins. Sóknarmenn Lazio réðu ekkert
við enska landsliðsfyrirliðann.
„Þetta var mikilvægur sigm- fyrir
okkur, sálfræðilega séð, ekki bara
vegna stiganna þriggja. Okkar
menn þurfa að sannfærast um að
þeir séu ekki síðri en lið á borð við
Lazio. Við höfum sýnt að við eram
samkeppnishæfir á meðal þeirra
bestu,“ sagði Arsene Wenger,
knattspyrnustjóri Arsenal.
„Við gáfum þeim fyrra markið en
Arsenal var betri aðilinn í síðari
hálfleik. Þeir vora í betra úthaldi,
eru líkamlega sterkir og með góða
knatttækni," sagði Sven Göran Er-
iksson, þjálfari Lazio.
I sama riðli vann Sparta Prag sig-
ur á Donetsk frá Úkraínu, 3:2, en
mikið þarf að gerast til að annað
hvort þeirra skáki Arsenal og Lazio.
Varamaðurinn tryggði
Valencia sigur
Valencia er í þægilegri stöðu í C-
riðlinum eftir að Zlatko Zahovic frá
Slóveníu kom inn á sem varamaður
og tryggði spænska liðinu 1:0 sigur
á Lyon.
„Þetta var erfiður leikur og við
vorum í miklum vandræðum en
heppnin var með okkur. Úrslitin
skiptu öllu máli. Nú höfum við betra
svigrúm og ættum að komast
áfram,“ sagði Hector Cuper, þjálfari
Valencia.
Olympiakos er líklegast til að
fylgja Valencia áfram eftir 2:0 sigur
á Heerenveen frá Hollandi. Brasil-
íski sóknarmaðurinn Giovanni skor-
aði bæði mörk gríska liðsins en Hol-
lendingarnir hefðu hæglega getað
náð forystunni í fyrri hálfleiknum
þegar þeir vora sterkari aðilinn.
Rangers hrundi á tíu
mínútum í lyrklandi
UEFA-meistarar Galatasaray
opnuðu D-riðilinn upp á gátt með
því að sigra Glasgow Rangers, 3:2.
þar sem öll mörkin vora skoruð í
síðari hálfleik. Litlu munaði að
Galatasaray missti niður þriggja
marka forystu á lokakafla leiksins.
„Við sýndum að við getum spilað
góðan fótbolta þó sterka leikmenn
vanti og náðum í þau þrjú stig sem
við ætluðum okkur,“ sagði Mirceau
Lucescu, þjálfari tyrkneska liðsins.
Dick Advocaat, hinn hollenski
þjálfari Rangers, var hinsvegar afar
óhress með hvernig hans menn
hrandu saman á 10 mínútna kafla í
síðari hálíleik þar sem þeir fengu á
sig þrjú mörk. „Þeir grófu sína eigin
gröf á þessum 10 mínútum og köst-
EVR0PUKEPPN1
FÉLAGSLIÐA í GOLFI
Styrktarmót verður haldið laugardaginn 30. september nk.
Knattspyrnuþjálfarar
HK óskar eftir þjálfara eða þjálfurum fyrir
5. og 6. flokk karla í knattspyrnu.
Þeir þurfa að geta hafið störf sem fyrst.
Upplýsingar í síma 898 8009
eða á netfanginu vs@mmedia.is
Q
Unglingaráð knattspyrnudeildar HK
Reuters
Fredrik Ljungberg, lengst til hægri, fagnar ásamt félögum sín-
um í Arsenal en hann skoraði bæði mörkin gegn Lazio í gær-
kvöld. Hinir eru, frá vinstri, Patrick Vieira, Ray Parlour, Thierry
Henry, Dennis Bergkamp og Oleg Luzhny.
uðu leiknum frá sér. Ég er mjög
vonsvikinn með þá,“ sagði Advocaat.
Simone sérlega
ánægður með þrennuna
Mónakó burstaði Sturm Graz, 5:0,
þar sem Marco Simone skoraði
þrennu í fyrri hálfleik.
„Ég er sérlega ánægður vegna
þess að ég minnist þess ekki að hafa
skorað þrennu síðan ég kom til
Frakklands. Ég skoraði þrjú mörk
fyrir AC Milan gegn Rosenborg á
sínum tíma en það er orðið langt síð-
an,“ sagði Simone.
Allt stefnir í harða keppni Galat-
asaray, Rangers og Mónakó um
sætin tvö en lið Sturm Graz virðist
mun veikara en hin þó það hafi unn-
ið óvæntan sigur á Galatasaray á
dögunum.
Tvö mörk frá
Carlos í Þýskalandi
Roberto Carlos, bakvörðurinn
snöggi, tryggði Real Madrid góðan
sigur á Leverkusen í Þýskalandi,
3:2. Hann jafnaði fyrst metin með
þrumuskoti úr aukaspymu og skor-
aði síðan sigunnark Evrópumeista-
ranna eftir slæm mistök í vörn
þýska liðsins, sem náði forystunni
tvívegis í leiknum.
„Við töpuðum þessu á kæraleysis-
legum mistökum," sagði Michael
Ballack, sem kom Leverkusen 2:1
yfir í síðari hálfleik.
Real er þar með efst í A-riðlinum
með 7 stig en Spartak Moskva er
næst með sex eftir 3:1 sigur á Sport-
ing Lissabon. Það vora brasilískir
leikmenn rússneska liðsins sem
skoraðu öll mörkin, Marcao tvö og
Luis Robson eitt.
isisport.is
Maestro
ÞITT FE
HVAR SEM
ÞÚ ERT