Morgunblaðið - 26.11.2000, Síða 36

Morgunblaðið - 26.11.2000, Síða 36
36 B SUNNUDAGUR 26. NÓVEMBER 2000 MORGUNBLAÐIÐ Björg Sveinsdóttir Minus var fyrst fslenskra harðkjarnasveita til að gefa út disk og sendi fyrir skemmstu frá sér annan slíkan, Jesus Christ Bobby. mjómsveitin er meðal annars þekkt fyrir dugnað við að kynna harðkjarnann og hörku í spilamennsku. Hún var fulltrúi harðkjarnans á Airwaves-hátiðinni í Laugardalshöll. Mikil endumýjun á sér staó f í slensku rokki og ný tónlist og kraftmikil er tekin við þar sem menn liggja ekki á skoóun sinni. Árni Matthíasson segirfrá harðkjarnahreyfingunni íslensku, segirfrá helstu hljómsveitum ogspáirí uppruna og aðdraganda stefnunnar. harðkjarnagos Tónlistin sem Forgarður Helvítis leikur er eldri að uppruna en harð- kjarninn, en menn kunna samt vel að meta hana. UNDANFARIÐ hefur ný gerð tón- listar lagt undir sig íslenskan rokk- heim, tónlist rokkkyns, ættuð úr pönki og hröðu þungarokki og menn kalla „hardcore“ eða harðkjama. ♦fikki er bara að óteljandi hljómsveit- ir séu að spila harðkjamarokk og fjölgi í sífellu, heldur hefur skapast mikil og öflug ungmennamenning í kringum tónlistina og hljómsveitirn- ar, menning sem byggist á sam- heldni og sjálfstæði og andúð á for- dómum og fyrirhyggju. í þeirri menningu er Útið bil á milli hljóm- sveita og áheyrenda og á harð- kjarnatónleikum, sem eru lítið auglýstir en vel sóttir, er á köflum erfitt að greina á milli, því áheyrend- ur stökkva upp á svið til að syngja ^ foeð eða taka þátt á annan hátt, en v filjómsveitarmeðlimir hverfa oftar en ekki í þvöguna til að stíga trylltan dans við taktfasta tónlistina. Harðkjami er eflaust fráhrind- andi þeim sem heyra hann í fyrsta sinn, ekki síst ef þeir eru ekki vanir tónlist sem rífur og tætir. Þá koma gömlu lummumar um hávaða og garg, en þegar grannt er skoðað er tónlistin ótrúlega fjölbreytt og margslungin og stefnurnar sem hún greinist í nánast jafnmargar og hljómsveitinar sem stunda hana hér á landi. Áhrifin að utan em greinileg, en íslenskar harðkjarnasveitir hafa líka farið sínar eigin leiðir, bætt í texta íslenskum minnum úr goð- og þjóðsögum og gripið til nýstárlegra lausna í lagasmíðum og framvindu, enda tilraunamennska í meiri háveg- um höfð hér á landi en víðast erlend- is. Maður á að gera hlutina sjálfur Harðkjarni, eða hardcore, á sér rætur í pönki og pönkhugsjónin er sterk í hljómsveitunum, þá ekki síst sú póstmóderníska hugsun að allt eigi rétt á sér og einnig að ekki sé vert að bíða eftir að aðrir geri hlutina fyrir mann, maður á að gera hlutina sjálfur; þetta er ekki hugsun um að geta heldur að gera, í upphafi var verkið, svo vitnað sé í tvö evrópsk skáld. Islenskar rokk- og poppsveitir hafa gjaman orð á því hve tónleika- hald sé erfitt hér á landi, fáir staðir til að spila og lítið um tækifæri til þess. Harðkjarnamenn blása á allt slíkt tal og búa sér til tilefni og finna staðina. A eftirminnilegum tónleik- um í hlöðu í Gufunesi fyrir stuttu, Glundroða, mátti og sjá að menn vom ekki að láta hluti eins og fimb- ulkulda, myrkur og hörmulegan hljómburð spilla stemmningunni; tónleikarnir fóra fram og vom magnaðir. Eins og getið er er lítið bil á milli áheyrenda og hljómsveitar á harð- kjarnatónleikum og almennt taka áheyrendur meiri þátt í því sem fram fer. Þannig er algengt að þeir komi á svið til að taka lagið með hljómsveit- inni, eða bara hrista sig og hoppa, og síðan er stöðugur straumur manna upp á svið til að stökkva af sviðinu í skarann framan við það. A meðan ið- ar kösin fyrir framan sviðið, hoppar og kastar sér til og frá, „slammar". Það sýnist ekki hættulaust en er bráðskemmtileg og góð útrás og þrátt fyrir mikinn hamagang er allt í góðu og lítið um raunverulega pústra eða eftirmál. Flestir telja harðkjarnarokk upp rannið vestan hafs í upphafi níunda áratugarins og þá er vísað til sveita eins og Black Flag, Minor Threat, Sick of It Ail og Bad Brains, sem all- ar voru að vinna úr pönkinu en á mis- munandi hátt. Tónlistin var þróað pönk og textamir innihaldsríkir og oftar en ekki pólitiskir, en söngstíll- inn ýmist söngur eða öskur. Þegar menn kýta um upprunann halda sumir því fram að orðið að minnsta kosti sé komið frá kanadísku rokks- veitinni D.O.D. sem gaf út plötuna Hardcore ’811981, en hún var á mála hjá útgáfu Jello Biafra sem var höf- uðpaur Dead Kennedys, einni um- deildustu rokksveit Bandaríkjanna. Ekki má svo gleyma gróskunni í undirheimum New York á áttunda áratugnum. Pólitískt pönk Sumir vilja einfaldlega kalla harð- kjarna pólitískt pönk og víst er und- irtónninn pólitískur hjá mörgum og innan harðkjamans mikil andúð til að mynda á yfirvöldum almennt, en einnig á ÍTkniefnum. Fjölmargir harðkjarnavinir hafna einnig áfengi og tóbaki og allmargir borða ekki kjöt eða fisk. Snar þáttur í lífsspeki harðkjarnans er að taka ábyrgð á sjálfum sér, að ráða ferðinni og láta ekki utanaðkomandi óviðkomandi öfl stjórna sér. Hvað tónlistina varðar er einfalt að greina pönkáhrifin, en fjölmargt fleira kemur til því í harð- kjama era sterk áhrif af þungarokki, „speed metal“, dauðarokki og svo má telja. Sveitimar sem rúmast innan harðkjarnans hér á landi leika þann- ig flestar ólíkar gerðir rokks og má segja að hver hljómsveit sé sérstök. Þannig má sjá á einum harðkjarna- tónleikum, á máli harðkjarnavina: „technical noise“, „hardcore", „grindcore", „metal“, „emo“ og svo má telja. Félagsheimilið er í netheimum Harðkjarninn lifir góðu lífi hér á landi og hljómsveitirnar legíó sem leika slíka tónlist: Mínus, Snafu, El- exír, Forgarður Helvítis, sem er þó reyndar hluti af annarri hreyfingu og eldri, grindcore, Vígspá, Shiva, Sólstafir, Klink, Molesting Mr. Bob og Changer. Af eldri sveitum má nefna Spitsign, Ungblóð og þá goð- sagnakenndu Bisund, en úr tveimur fyrrnefndu sveitunum varð Mínus til. Ekki má svo gleyma þeirri vinnu sem þeir Mínusmenn unnu við að koma tónlistinni á framfæri með MSK-útgáfu sinni, en hún gaf meðal annars úr fyrsta harðkjarnadiskinn hér á landi, þar sem meðal annars má heyra í Bisund, Brain Police, Toy Machine, Shiva, og dauðarokksveit- inni alræmdu Sororicide Harðkjarnatónlist er áleitin og krefjandi tónlist og kemur ekki á óvart að hún heyrist lítið í útvarpi og reyndar ekki nema tveir vikulegir þættir þar sem harðkjarni er spilað- ur, annar á Rás 2 og hinn á Radio X. Þar kemur Netið því að góðum not- um við að breiða út evangelíið, og helsta félagsheimili harðkjarnavina er í netheimum og kallast dording- ull.com. Umsjónarmaður Dordinguls er Sigvaldi Jónsson, kallaður Valli, en hann hefur ekki bara haldið utan um vefsetrið og þann gríðarlega fróðleik um tónlistina og harðkjama- sveitir sem þar er að finna heldur er hann forstöðumaður harðkjarnaút- gáfunnar sem hefur gefið út kynn- ingarútgáfur og sendir frá sér fyrsta

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.