Morgunblaðið - 03.12.2000, Page 14
14 SUNNUDAGUR 3. DESEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
Blásarakvintett Reykjavíkur og félagar halda sína árlegu tónleika und-
ir heitinu Kvöldlokkur á jólaföstu.
Mozart í Fríkirkjunni
Alliance Frangaise boðið velkomið undir þak JL-hússins
Þrjár menningarstofn-
anir í Þekkingarhúsi
MorgunblaðitS/Sverrir
Forsvarsmenn menningarstofnananna þriggja sem saman mynda Þekk-
ingarhús á Hringbraut 121 virða fyrir sér ljósmyndir af útsýninu úr hús-
inu. Kristrún Heimisdóttir, framkvæmdastjóri Reykjavíkur-Akad-
emfunnar, Denis Bouclon, framkvæmdastjóri Alliance Fran?aise, og
Þóra Sigurðardóttir, skólastjóri Myndlistaskólans í Reykjavfk.
BLÁSARAKVINTETT Reykjavík-
ur og félagar halda sína árlegu tón-
leika undir heitinu „Kvöldlokkur á
jólaföst,u“ í Fríkirkjunni í Reykja-
vfk nk. þriðjudagskvöld, 5. desem-
ber, kl. 20.30.
Þetta er í 20. sinn sem þeir félag-
Syngjandi börn
á Selfossi
SAMEIGINLEGIR aðventutónleik-
ar Unglingakórs Selfosskirkju og
yngri og eldri bamakórs kirkjunnar
verða í Selfosskirkju nk. þriðjudag, 5.
desember, kl. 20.
Kóramir syngja bæði allir saman
og hver fyrir sig og eru flytjendur
rúmlega eitt hundrað talsins. Efnis-
skráin er fjölbreytt og spannar allt frá
fomum lofsöngvum til léttra amer-
ískra jólalaga. Stjómendur kóranna
eru Margrét Bóasdóttir og Glúmur
Gylfason og orgelleikari Jörg Sonder-
mann. Aðgangseyrir er 500 krónur,
sem rennur í ferðasjóð kóranna.
Nýjar bækur
• ÚTERkomin
hj á Máli og mynd
bókin Reiðleiðir
um ísland eftir
V * Sigurjón Björns-
Sigurjón ferðum sínum um
Bjornsson landjð en hann
hefur lengi stundað hestamennsku. I
bókinni er reiðleiðum lýst, sagt frá
náttúmnni, rifjaðar upp sögur
tengdar þeim stöðum sem riðið er
um og lýst stemmningunni meðal
samferðarmanna og hesta. í bókar-
lok er spjallað við nokkra þekkta
hestamenn.
Bókin er litprentuð með á fjórða
hundrað ljósmynda, teikninga og
korta. Bókin er371 bls. að stærð og
prentuð í Steindórsprenti-
Gutenberg. Bókband var unnið hjá
Bókfelli. Utgefandi erMál ogmynd.
Leiðbeinandi verð: 5.900 krónur.
ar efna til slfkra tónleika þar sem
eingöngu eru leiknar kiassfskar
blásaraserenöður og hafa þeir not-
ið sívaxandi vinsælda. Að þessu
sinni verður leikin hin volduga og
fagra kvöldlokka fyrir 13 blásara í
B-dúr K361 eftir W.A. Mozart.
Vigdísar-
kvöld í Kaffi-
leikhúsinu
DAGSKRÁ helg-
uð verkum Vig-
dísar Grímsdótt-
ur verður í
Kaffileikhúsinu
annað kvöld,
mánudagskvöld,
kl. 20.
Flytjendur
verða leikkonum-
ar Helga Bach-
mann, Kristbjörg
Kjeld, Edda Heiðrún Backman og
Tinna Gunnlaugsdóttir við tónmynd
Hilmars Amars Hilmarssonar en
eins og kunnugt er hafa verk Vigdís-
ar verið ýmsum listamönnum inn-
blástur.
Kynnir kvöldsins verður Hallmar
Sigurðsson.
Gestir geta notið veitinga á Tapas-
bamum áður en dagskráin hefst.
Aðgangur er ókeypis.
BÓKAKYNNING verður á Súfist-
anum við Laugaveg 18, í Bókabúð
Máls og menningar, annað kvöld,
mánudagskvöld, kl. 20.
Lesið verður upp úr þremur
nýútkomnum bókum: skáldsög-
unni í órólegum takti, eftir Guð-
rúnu Guðlaugsdóttur, Nærmynd
af Nóbelsskáldi - Halldór Kiljan
Laxness í augum samtfmamanna
- og Kæri kjósandi - gamansögur
af fslenskum alþingismönnum - í
REYKJAVÍKUR-AKADEMÍAN
og Myndlistaskólinn í Reykjavík
buðu Alliance Frangaise velkomið
með starfsemi sína undir þak JL-
hússins við Hringbraut 121 með
móttöku í fyrradag. Þekkingarhús er
húsið nú kallað en þar starfa á degi
hveijum ríflega 100 manns við þess-
ar þrjár menningarstofnanir.
„Reykjavíkur-Akademían flyst í
húsið fyrir tveimur árum og með til-
urð hennar og uppbyggingu er í raun
verið að vinna mikla tilraunastarf-
semi. Hér er verið að búa til stofnun
sem á sér enga hliðstæðu. Uppbygg-
ingin hefur verið hröð og við álítum
það hafa skipt miklu máli hve vel
húsið hentar okkur og hvað fólki hef-
ur hðið vel hér,“ segir Kristrún
Heimisdóttir, framkvæmdastjóri
Reykj avíkur-Akademíunnar.
Svar við kalli tímans
Hún segir að undir merkjum
þekkingarhúss sé nú unnið að þvi að
laða að starfsemi sem tengist eða er
sambærileg við þá sem fyrir er í hús-
inu. Guðmundur Jónsson arkitekt
hefur unnið með Reykjavíkur-Akad-
emíunni að hugmyndum um þekk-
ingar- og menningarhús og er sú
framtíðarsýn Guðmundar nú til sýn-
is í húsinu. Á ganginum gefur einnig
að líta sérstæða ljósmyndasýningu.
„Við tókum myndir hér í gegnum
gluggann á hverjum einasta degi í
heilt ár, alltaf á sama tíma og frá ná-
kvæmlega sama sjónarhorni. Útsýn-
ið hér er eitt hið fallegasta sem um
getur í Reykjavík," segir Kristrún.
Hún telur þekkingarhús inni í íbúða-
hverfi jákvæðan þátt í uppbyggingu
borgarinnar og segir sambýlið við
verslunina Nóatún á neðstu hæðinni
frábært. Hún segir það góða sam-
setningu að hafa verslun og þjónustu
á fyrstu hæðinni og menninguna,
rannsóknirnar og fræðin á efri hæð-
unum.
í kynningu frá þekkingarhúsinu
segir m.a. um menningarstofnanirn-
samantekt Guðjóns Inga Eiríks-
sonar og Jóns Hjaltasonar. Guð-
rún Guðlaugsdóttir, Sigríður
Halldórsdóttir og Valgeir Sig-
urðsson sjá um upplesturinn, auk
tveggja félaga úr Leikfélagi Mos-
fellsbæjar. Kynnir verður Lárus
H. Jónsson.
Það er Bókaútgáfan Hólar sem
stendur fyrir bókakynningunni
og eru allir velkomnir. Aðgangur
er ókeypis.
ar þrjár: „Reykjavíkur-Akademían
er samfélag fræðimanna þar sem
áhersla er lögð á að samnýta aðstöðu
og virkja krafta til samstarfs og ný-
sköpunar. RA var stofnuð 7. maí
1997 í þeim tilgangi að skapa fræði-
mönnum fjölbreyttan starísvettvang
hér heima og tryggja að ísland væri
raunverulegur valkostur á sameigin-
legum vinnumarkaði í Evrópu, nú
þegar íslendingum með æðstu há-
skólagráður fjölgar hratt. í nóvem-
ber 1998 opnaði RA fræðasetur í JL-
húsinu við Hringbraut í Reykjavík
og á þeim tveimur árum sem liðin
eru hefur fræðimönnum sem þar
starfa fjölgað úr sextán í fimmtíu.“
„Myndlistaskólinn í Reykjavík var
stofnaður árið 1947 af félagi áhuga-
manna um myndlist á íslandi. Frá
upphafi hafa faglegir bakhjarlar
skólans verið myndlistamenn og list-
fræðingar, en skólinn er sjálfseign-
arstofnun sem nýtur stuðnings frá
ríki og borg. Innan skólans fer fram
fjölþætt menntunarstarf sem lýtur
að sjónrænni þekkingu. Kennd eru
grundvallaratriði þeirra greina sem
á þeim byggja, en þar má nefna
KÓR Langholtskirkju heldur í tón-
leikaferð til Finnlands og Svíþjóðar nk.
þriðjudag, 5. desember.
Af því tilefni verður opin æfing í
Langholtskirkju annað kvöld, mánu-
dagskvöld, kl. 20, og eru allir velkomn-
ir og aðgangur ókeypis.
Tilefni fararinnar er Espoo-kórahá-
tíðin, en kórinn er sérstakur gestur há-
tíðarinnar sem fulltrúi frá Reykjavík -
menningarborg ásamt kór frá Bergen.
Kórinn kemur fram, ásamt mörgum
öðrum kórum, á stórum tónleikum í til-
efni þjóðhátíðardags Finna miðviku-
daginn 6. desember.
Fimmtudaginn 7. desember heldur
hann tónleika í Tapiola-tónleikahöll-
inni ásamt Voci Nobili-kómum frá
Bergen. Föstudaginn 8. desember eru
síðan tónleikar í Hameenkyla-
kirkjunni, sem er ný kirlqa með róm-
frjálsa myndlist, byggingarlist, kvik-
myndagerð og hönnun hvers konar
bæði í veruleika og sýndarveruleika.
Síðastliðið haust hófst kennsla í
nýrri deild hans, fomámsdeild, og er
nú boðið upp á fullt nám í dagskóla
sem er undirbúningur fyrir nám í
listaháskólum.“
Alliance Frangaise er íslenskt fé-
lag sem hefur að markmiði að kynna
franska tungu og menningu hér á
landi. Félagið var stofnað árið 1911,
sama ár og Háskóli íslands var
stofnsettur. Alliance Frangaise rek-
ur frönskuskóla þar sem fjölmargir
sækja sér leikni í franskri tungu,
franskt bókasafn og menningarmið-
stöð. Alliance Frangaise heldur uppi
umfangsmikilli menningardagskrá,
m.a. kvikmyndaklúbbi, listsýning-
um, fyrirlestram, vínsmökkun o.fl.“
Kristrún leggur áherslu á að á
nýrri öld verði mörk fræða og lista
óljósari en fyrr, hefðbundin skil milli
háskólagreina rofni og símenntun
vari ævina alla. Því sé samvinna
stofnana í þekkingarhúsi og skipulag
hennar svar við þessu kalli tímans og
tilraun til nýsköpunar.
aðan hljómburð, um 15 km frá Hels-
inki.
Laugardaginn 9. desember heldur
kórinn síðan tónleika í Katarina-
kirkjunni í Stokkhólmi, en þeir tónleik-
ar tengjast aðventusamkomu íslend-
inga í Stokkhólmi og nágrenni.
Eíhisskráin er tvískipt, annars veg-
ar ný íslensk kórtónlist eftir núlifandi
tónskáld ásamt einu verki frá hverju
Norðurlandanna, m.a. Magnificat sem
danska tónskáldið John Hoybye samdi
fyrir kórinn á þessu ári. Einnig mun
kórinn flytja jóla- og aðventutónlist á
tónleikunum í Hameenkylá-kirkjunni
og í Stokkhólmi.
Einsöngvari með kórnum er Ólöf
Kolbrún Harðardóttir og undirleikan
á orgel og píanó Lára Bryndís Egg-
ertsdóttir en stjómandi Kórs Lang-
holtskirkju er Jón Stefánsson.
Sígrmm Jólahúð
-eJa///xí d/t e///yt d/1
Síðustu úr hefur skútahreyfíngin selt sígrcen
eðaltré, í hæsta gœðafíokki ogprýða þau nú —
mörg hundruð íslensk heimili
► lOóraabyrgð
► 12 stœrðir, 90 - 500 cm
► Stálfóturjylgir
► Ekkert barr að tyksuga
► Trujlar ekki stofublómin
► Eldtraust
► Þarfekki að vökva
► íslenskar leiðbeiningar
► Traustur söiuaðili
► Skynsamlegjfjárfesting
'uÞér
°9 nú t
tré/
Bandalag íslenskra skáta
ŒM)
^UnnT'
MÖGNUÐ BÍLAMYNDBÖND
Myndbandsspólur sem allir
bílaáhugamenn verða að eignast.
Verðkr. 1.990,-til 2.490,-
Þessar eru frábærar!!! - gjafavöruverslun bílaáhugafólks
Vagnhöföa 23 & Kringlunni • Sími 587 O 587 • www.benni.is
Hdrhús Önnu Silfu býður
Boga Eggertsson hdrsnyrti og stílista
velkominn til starfa. Nýir sem eldri
viðskiptavinir velkomnir.
Háholt 14 - sími 566 8989
Vigdís
Gímsdóttir
Gaman og alvara á Súfistanum
Kór Langholtskirkju
fer í tónleikaferð