Morgunblaðið - 05.12.2000, Side 2
2 D ÞRIÐJUDAGUR 5. DESEMBER 2000
HANDKNATTLEIKUR
MORGUNBLAÐIÐ
Slóvenar höfðu
kortlagt leik-
kerfi íslands
ALLT annað var að sjá til íslensku landsliðsstúlknanna þegar þær
mættu stöllum sínum frá Slóveníu í síðari leik liðanna á sunnudag-
inn en því miður dugði það aðeins fram undir lok fyrri hálfleiks. Eftir
tólf marka tap á föstudeginum ætluðu þær íslensku ekki að láta
valta yfir sig aftur og héldu jöfnu en sprungu á limminu eftir hlé og
töpuðu 27:17.
mark. Þá fóru gestirnir frá Slóven-
íu í gang og juku forskotið jafnt og
þétt. Island náði aðeins að skora
tvö mörk á fyrstu fimmtán mínút-
unum á móti sex frá Slóvenum,
sem bættu um betur með því skora
úr níu af ellefu síðustu sóknum sín-
gins og í fyrri leiknum léku ís-
Stefán
Stefánsson
skrifar
lensku stúlkurnar 5+1-vörn
með Dagnýju
Skúladóttur
fremsta en í þetta
sinnið var baráttan
mun betri enda
náðu þær slóvensku aldrei að
stinga af. Mikill kraftur var einnig
í sóknarleiknum en íslensku skytt-
urnar áttu þó mjög erfitt uppdrátt-
ar gegn hávaxinni og stæðilegri
vörn Slóveníu, sem spiluði vörn
sína aftarlega. Það fór því svo að
ísland náði með frábærri baráttu
að jafna í 9:9 þegar tæpar fjórar
mínútur voru til leikhlés. En mikil
orka fór í það og Slóvenar skoruðu
næstu þrjú mörk fyrir leikhlé.
Eftir hlé fékk ísland mörg tæki-
færi til að minnka muninn en slóv-
enski markvörður reyndist þeim
erfiður ljár í þúfu og eftir níu mín-
útur hafði hvort lið skorað eitt
Greinilegt var að Slóvenar höfðu
kortlagt íslenska liðið vandlega og
vissu oft alveg jafn mikið um leik-
kerfi þess. Fyrir vikið áttu ís-
lensku stúlkurnar í mesta basli
með að komast í gegnum slóvensku
vörnina eða að skjóta framhjá
henni. Hinsvegar eiga stúlkurnar
hrós skilið fyrir baráttuna í fyrri
hálfleik. Skytturnar Nína Björns-
dóttir og Ragnheiður Stephensen
máttu sín lítils en gerðu þó margar
atlögur að slóvensku vörninni. As-
dís Sigurðardóttir gerði góða hluti
þegar hún braust óhikað inn úr
horninu og á línunni lét Inga Fríða
Tryggvadóttir hafa mikið fyrir sér.
„Vissi ná-
kvæmlega
hvemig
ísland
spilaði“
„VIÐ vissum eftir fyrri
leikinn að við værum betra
liðið og því tókum því að-
eins rólegar,“ sagði Tone
Tiselja, þjálfari sióvenska
landsliðsins, eftir leikinn.
„Fyrri hálfleikurinn hjá
okkur í dag var nokkuð
slakari en f leiknum á
föstudaginn en við vorum
engum að síður vel undir-
búin, bæði með tækni og
líkamlegan styrk. En ég
verð að taka fram að við
höfðum miklar upplýsingar
um íslenska liðið því við
tókum upp á myndband
báða leiki þess við Sviss
fyrir skömmu. Þess vegna
vorum við vel undirbúin og
vissum nákvæmlega hvern-
ig íslenska liðið spilaði og
öll þess kerfi. Eg er því
mjög sáttur við frammi-
stöðu okkar í leikjunum en
ég er nýlega tekin við lið-
inu og það er margar nýjar
stúlkur í liðinu. Við spiluð-
um við tíkraínu, Makedóníu
og Króatíu nýlega og unn-
um alla þá leiki. Samt var
fyrri leikurinn við ísland á
föstudaginn sá besti sem
við höfum spilað,“ bætti
þjálfarinn við og taldi ís-
lenska liðið ágætt en varla
átt von um sigur. „Það er
erfitt að segja hvað helst
vantar hjá fslenska liðinu.
Það spilar skipulega og
hefur góða tækni en áttu
erfitt með að sýna það því
við vissum alltaf hvað þær
ætluðu sér að gera.“
„Vissum ekkert um
sióvenska liðið(C
„VIÐ GETUM verið sátt með
fyrri hálfleikinn í dag þegar við
vorum að spila góða vörn, fá
hraðaupphlaup og stundum ódýr
mörk, sem verður að vera með á
móti svona liði,“ sagði Ágúst Jó-
hannsson, þjálfari fslenska
kvennalandsliðsins f hand-
knattleik, eftir síðari leikinn við
Slóvemú á sunnudaginn. „í seinni
hálfleik missum við tökin á varn-
arleiknum, fáum cngin hraðaupp-
hlaup og það var lfklega ástæðan
fyrir því að við fengum ekki
meira út úr leiknum."
Að sögn Ágústs var erfitt að fá
upplýsingar um mótherja sína.
„Við vissum ekkert um lið Slóven-
íu en leggjum að sjálfsögðu upp
með að vinna. Hins vegar er Slóv-
enía þekkt handboltaþjóð og
sterkari en við svo að það var
varla raunhæft að óska eftir sigri.
Það var mjög erfitt að fá upp-
lýsingar um liðið. Við reyndum að
fá þær í Danmörku, Króatíu og
víðar en það gekk ekki. Því viss-
um við ekkert hvað beið okkar í
fyrri leiknum en þó meira í síðari
leiknum og ryrri hálfleikurinn var
góður en sigurinn óþarflega
stór,“ bætti þjálfarinn við og var
síður en svo svartsýnn á fram-
haldið. „Nú þarf að setjast niður,
skoða framhaldið og gera áætlan-
ir. Það er búið að vinna markvisst
starf og það er margt jákvætt hjá
okkur og mikið að gerast hjá
yngri landsliðunum. Auðvitað tek-
ur tíma að byggja upp lið og eftir
tvö til þrjú ár má fara að gera
raunhæfar kröfur."
Ragnheiður Stephensen sækir að marki Slóvena, Inga Fríða
Tryggvadóttir er á línunni.
Ágúst Jóhannsson, þjálfari kvennalandsliðsins, ræðir við leikmenn sína.
Morgunblaðið/Jim Smart