Morgunblaðið - 05.12.2000, Page 4

Morgunblaðið - 05.12.2000, Page 4
i D ÞRIÐJUDAGUR 5. DESEMBER 2000 KNATTSPYRNA MORGUNBLAÐIÐ Hermann Hreiðarsson og samherjar hjá Ipswich Town háfleygir IPSWICH Town er ekki í hópi sig- ursælustu félaga í ensku knatt- spyrnunni. Það hefur þó látið til sín taka á ýrasum vígstöðvum. Ipswich á einn Englandsmeistara- titil að baki, 1961-62, þegar Alf Ramsey, síðar Sir, stjórnaði liðinu. Besta lið Ipswich er þó sennilega liðið sem Bobby Robson setti saman á ofanverðum áttunda áratugnum. Það vann tvívegis til metorða. Fyrst bikar enska knattspyrnu- sambandsins 1978. Roger Osborn tryggði l:0-sigur á Arsenal. Síðan fór liðið með sigur af hólmi í Evrópukeppni félagsliða 1981. Lagði þá AZ 67 Alkmaar frá Hol- landi, samtals 5:4 í tveimur leikjum. Ekki tókst Ipswich að sigra í ensku deildinni á þessum tíma en varð í tvígang í öðru sæti, 1980-81 og 1981-82. Ipswich hafði mörgum eftir- minnilegum leikmönnum á að skipa á þessum árum. Frægastur var líklega enski landsliðsmiðherj- inn Paul Mariner en af öðrum köppum sem léku fyrir Englands hönd má nefna miðverðina Terry Butcher, Russell Osman og Kevin Beattie og bakvörðinn Mick Mills, sem er lcikjakóngur Ipswich. Skoski framherjinn Alan Brazil var upp á sitt besta á þessum tíma eins og Hollendingarnir Frans Thijssen og Arnold Muhren, sem skolaði upp á Englandsstrendur löngu áður en útlendingar komust í tísku. Skotinn John Wark var í hópi bestu miðvallarspilara sinnar kynslóðar og útherjinn Eric Gates er einnig minnisstæður. Og svo auðvitað George Burley. Svona mætti lengi telja. Robson sagði starfi sínu lausu sumarið 1982 til að taka við enska landsliðinu. Þar með lauk sigur- göngu Ipswich en arftaki Robsons, nafni hans Ferguson, náði ekki að virkja liðið til góðra verka. Marin- er fór til Arsenal, Muhren og Brazil til Manchester United, Wark til Liverpool og á skömmum tíma leystist liðið upp. 1986 féll Ipswich í aðra deild og hefur eiginlega ekki borið sitt barr síðan - fyrr en nú. Ipswich Evening Star Jermaine Wright, Matt Holland og James Scowcroft knúsa Tit- us Bramble eftir mark miðvarðarins gegn Coventry. nóttu. Að baki býr sex ára þrotlaus vinna, þar sem við hrukkum í hrynjandi, unnum leiki og lékum vel. Liðið hefur vaxið jafnt og þétt. Stöðugleiki er okkar styrkur. Ég hef tröllatrú á mínum mönnum." Burley andmælir því þó ekki að árangurinn sé framar hans villt- ustu vonum. „Enska úrvalsdeildin er ein sterkasta deildarkeppni í heimi. Við vorum því varkárir. Hóf- lega bjartsýnir, skulum við segja. Frammistaða liðsins hefur aftur á móti verið stórkostleg, allt frá fyrsta leik gegn Tottenham. í sum- ar töluðum við um að við þyrftum að bæta okkur að minnsta kosti um 10-15% til að eiga möguleika á að halda sæti okkar í deildinni. Pilt- arnir hafa gert það - og gott betur - og njóta þess að leika eins vel og þeir geta á drekkhlöðnum leik- vöngum, viku eftir viku. Ef í liðinu væru leikmenn sem ekki eru í úr- valsdeildarklassa værum við ekki í þriðja sæti nú. Það er svo einfalt.“ Jafntefli gegn Manehester Unit- ed og Arsenal á heimavelli, Port- man Road, undirstrika að Ipswich er engu liði auðveld bráð en það er árangurinn á útivöllum sem vekur mesta athygli. Fimm leiki hefur lið- ið þegar unnið - af átta. Þar á með- al Leeds United á Elland Road. Að seðja sultinn HEFÐI maður haldið því fram í haust að Ipswich Town yrði í þriðja sæti ensku úrvalsdeiidarinnar eftir fimmtán umferðir hefði maður verið álitinn galinn. „Þriðja neðst,“ hefði maður verið ieiðréttur kurteislega. Þrákelkni hefði í besta falli þýtt þurrt viðmót - „ekki tek ég mark á þínum greinum í Morgunblaðinu framar“ - en í versta falli hefði maður verið ólaður niður. Borinn af velli. Þetta er eigi að síður staðreynd. Ipswich Town, útfarnir umspilarar úr fyrstu deild, vermdu meistaradeildarsæti þegar desember gekk í garð. Á sínu fyrsta ári eftir endurkomuna í úrvalsdeildina. Ekki svo að skilja að greinarhöfundur hafi spáð því. Öðru nær. Raunar féll félagið niður um tvö sæti við óvænt tap fyrir Derby County á heimavelli um helgina. Það breytir þó ekki því að ár- angurinn er vonum framar. Sigurganga Ips- wieh er heldur ekki bundin við úr- valsdeildina því liðið er komið í átta liða úrslit í deildabikarkeppn- inni líka. Rnattspyrnustjórinn, OrriPáll Ormarsson skrífar Kunningjar íkast- alanum ENGUM sögum fer af því hvort George Burley hafi taugar til Newcastle United. Hitt er annað mál að hann þekkir tvo menn þar á bæ af- ar náið. Annar er knattspymustjór- inn, Bobby Robson, sem fékk Burley, fimmtán ára gamlan, til Ipswich á sínum tíma og var knattspymustjóri lung- ann af leikjunum fimm hundmð sem skoski bakvörð- urinn lék fyrir félagið. Við komuna gekk hr. Robson mér í föðurstað. Ipswich hefúr alla tíð verið íjölskylduvænt félag og hann sátil þess að vel væri hlúð að ungmennum. Þannig var ég alinn upp og þessu fyrir- komulagi hef ég sjálfur reynt að viðhalda." Burley ber djúpa virðingu fyrir hr. Robson, eins og hann kýs að kalla læriföður sinn. „Eg dáist að árangrinum sem hann náði hjá Ipswich og vel- gengninni sem hann hefúr átt að fagna í starfi yfir höfuð. Hann hlýtur að vera einn af fremstu knattspymustjórum Englands frá upphafi.“ Hinn maðurinn er tengilið- urinn Kieron Dyer sem Burl- ey ól upp hjá Ipswich en seldi til Newcastle fyrir 6,3 mil- Ijónir sterlingspunda í fyrra. Minnstu munaði raunar að Ipswich hafnaði Dyer á sín- um tíma, vegna smæðar hans. „Þegar Kieron var sextán ára sá ég hann leika með unglingaliði okkar, skipuðu leikmönnum átján ára og yngri, gegn Chelsea. Hann náði öðmm leikmönnum rétt í mitti og kom varia við knött- inn. Það var ekki sjálfgefíð að úr honum myndi rætast en við tókum hann samt að okk- ur.“ Og núna? „Kieron er ósvikinn efni- viður. Kominn í enska lands- liðið. Hefði hann dvalist hjá okkur ári lengur hefði hann jafnvel komist í Evrópumóts- hópinn, eins og markvörður- inn okkar, Richard Wright," segir Burley. Örlar á kald- hæðniítóninum? Skotinn George Burley, er klár á því hvaða dyggð hvetur menn hans til dáða - sultur. „Löngunin til að gera vel hefur svo sannarlega kom- ið okkur til góða. Leikmennii'nir eru soltnir. Séu menn ekki stað- ráðnir í að standa sig er orrustan töpuð. Ipswich hefur hins vegar á að skipa hópi leikmanna sem allir vilja bæta sig. Urvalsdeildin er þeirra yndi. Þá erum við bæði að tala um unga stráka og reynda karla. Þetta er mjög uppörvandi." Keypti bara einn mann Oftar en ekki kosta nýliðar kapps um að styrkja lið sitt fyrir átökin í úrvalsdeildinni enda hefur það verið mál manna að bilið milli efstu og næstefstu deildar fari breikkandi. Það vekur því athygli að Burley skyldi aðeins festa kaup á einum leikmanni í sumar, Her- manni Hreiðarssyni. „Ég skoðaði leikmennina gaum- gæfilega í sumar, bæði sem ein- staklii.ga og hóp, og ákvað að gefa þeim tækifæri. Annað væri ósann- gjarnt. Liðið sem menn eru að horfa á núna varð ekki til á einni Reuters Jamie Clapham er ekki aðeins með „eitraðan“ vinstri fót, eins og sagt er, heldur er hann líka harður í horn að taka, eins og David Beckham komstað raun um. Ris med Robson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.