Morgunblaðið - 05.12.2000, Blaðsíða 12
12 D ÞRIÐJUDAGUR 5. DESEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
KNATTSPYRNA
■ ANDRI Sigþórsson lék allan tím-
ann fyrir Salzburg sem tapaði á
heimavelli fyrir Sturm Graz, 0:1, í
austurrísku úrvalsdeildinni í knatt-
spyrnu. Andri fékk gott færi í síðari
hálfleik en markvörður Sturm sá við
honum og varði skotið.
■ JÓHANNES Karl Guðjónsson
Jék allan leikinn í liði Waalwijk sem
gerði markalaust jafntefli gegn
Groningen í hollensku 1. deildinni.
■ ÞORÐUR Guðjónsson kom
ekkert við sögu í liði Las Palmas
sem gerði 1:1 jafntefli gegn Real
Sociedad í spænsku 1. deildinni.
■ HELGI Sigurðsson fékk ekki að
spreyta sig með Panathinaikos
frekar en fyrri daginn þegar lið hans
sigraði Iraklis á útivelli, 0:1, í grísku
1. deildinni.
MÞRÁTT fyrir að 6 Jeikmenn
væru í fangelsi og fjórir aðrir í leik-
banni tókst Penarol frá tírúgvæ að
sigra í leik sínum við Huracan Bu-
eco. Leikmennirnir 6 voru fangels-
aðir eftir að mikil átök blossuðu upp
í leik liðsins við erkifjenduma
Nacional. Alls voru 17 leikmenn frá
báðum liðum úrskurðaðir í leikbann
eftir átök leikmanna og þjálfara.
■ RIABEL Trujillo varð um
helgina fyrsta konan sem dæmir
knattspymuleik í efstu deild karla í
Perú.
■ DAVID James, markverði Ast-
on Villa, hefur verið boðinn nýr
samningur við félagið sem á að gilda
til ársins 2004. James er að skoða
málið en hann var seldur frá Liver-
pool til Villa fyrir hálfu öðra ári.
■ ÞRÍR leikmenn Manchester
United, David Beckham, Andy Cole
og Ryan Giggs, verða að bíða fram á
vor eftir að félagið gangi til samn-
inga við þá um áframhaldandi samn-
ing vegna þeirrar óvissu sem ríkir
um samningamál knattspyrnu-
manna eftir að Evrópubandalagið
lagði til breytingar á þeim. Á meðan
óvissa ríkir á markaðnum hyggst
Manchester United ekki ljúka
samningum við piltana.
■ ALUN Armstrong, 25 ára gam-
all framherji sem verið hefur á mála
hjá Middlesbrough, gengur að öllum
líkindum til liðs við Hermann Hreið-
arsson og félaga hans í Ipswich í
þessari viku. Armstrong hefur ekki
verið í náðinni hjá Bryan Robson,
stjóra Boro, og hefur félagið náð
samkomulagi við Ipswich um að
selja hann fyrir 100 milljónir króna.
■ WINSTON Bogarde, hollenski
landsliðsmaðurinn sem leikur með
Chelsea, er á leið frá félaginu. Hann
virðist ekki vera inni í framtíðar-
plönum Claudio Ranieri, knatt-
spymustjóra Chelsea, og vill kom-
ast í burtu frá félaginu. Bogarde
hefur átt í viðræðum við tvö félög á
Spáni en Chelsea er reiðubúið að
láta hann fara fyrir 150 milljónir
króna.
MIKIL spenna er á toppi þýsku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu eft-
ir leiki helgarinnar. Hertha Berlin og Bayer Leverkusen tróna á
toppnum með 28 stig en rétt á hæla þeim koma Schalke, Bayern
Múnchen og Dortmund.
Eyjólfur Sverrisson skoraði síð-
ara mark Herthu, sem gerði
2:2-jafntefIi á ólympíuleikvanginum
í Berlín gegn Freiburg. Eyjólfur lék
í framlínunni annan leikinn í röð og
skoraði þriðja mark sitt á tímabil-
inu. Herthu-menn voru ekki sáttir
við jafnteflið því þeir náðu tveggja
marka forskoti í fyrri hálfleik.
Fyrst skoraði Rene Tretschock út
vítaspyrnu á 28. mínútu og einni
mínútu síðar bætti Eyjólfur við
marki með skoti af stuttu færi. En
gestirnir frá Freiburg neituðu að
gefast upp. Frakkinn Regis Dorn
jafnaði á 35. mínútu og Georgíu-
maðurinn Levan Kobiaschwili jafn-
aði svo metin úr vítaspyrnu stund-
arfjórðungi fyrir leikslok.
Stórleikur umferðarinnar fór
fram á ólympíuleikvanginum í
Munchen þar sem heimamenn í
Bayern Munchen sigruðu Bayer
Leverkusen, 2:0. Þetta var fyrsti
ósigur Leverkusen í Múnchen síðan
1989 og það kostaði liðið toppsætið
því Hertha er með betri markatölu
en Leverkusen í toppsætinu. Bæj-
arar fengu óskabyrjun þegar
Carsten Jancker kom liðinu í for-
ystu eftir aðeins fjögurra mínútna
leik og á 48. mínútu bætti Brasilíu-
maðurinn Elber við öðra marki.
Landi Elbers, Robson Ponte, fékk
reisupassann fjóram mínútum eftir
síðara mark Bæjara og þar með
fuku allir möguleikar Leverkusen á
að ná í stig út i veður og vind.
„Við lékum mjög vel og Franz
Beckenbauer, forseti félagsins,
hlýtur að vera sáttur," sagði Stefan
Effenberg, leikstjórnandi Bayem,
eftir leikinn, en hann átti mjög góð-
an leik og lagði upp fyrra mark
sinna manna.
„Það var mikil pressa á okkur að
vinna þennan leik en ósigur hefði
þýtt að við hefðum misst Lever-
kusen allt of langt fram úr okkur.
Leikmenn mínir þoldu pressuna
sem var á þeim og þeir léku virki-
lega vel,“ sagði Ottmar Hitzfeldt,
þjálfari Bæjara.
„Við áttum tækifæri í þessum leik
en það er ekki hægt að búast við
sigri þegar menn nýta ekki færin.
Bæjarar voru betri í þessum leik og
sigur þeirra var verðskuldaður,“
sagði Berti Vogts, þjálfari Lever-
kusen, eftir leikinn.
Stuttgart má muna sinn fífil feg-
urri, en liðið, sem fjórum sinnum
hefur hampað meistaratitlinum,
tapaði á heimavelli fyrir Dortmund
og er komið niður í næstneðsta sæti
deildarinnar.
Eyjólfur Sverrisson fagnaði enn einu markinu með Herthu Berlín.
Reuters
Eyjólfur skoraði
Þrenna Cathana dugði
ekki gegn Börsungum
renna í fyrri hálfleik frá Brasil-
íumanninum Cathana dugði
ekki til sigurs fyrir Celta Vigo gegn
Barcelona. Patrick Kluivert bætti
við tveimur mörkum fyrir Barcelona
eftir að Frank de Boer hafði skorað
fyrsta mark Börsunga með skalla.
Llorence Ferrer, þjálfari Barcelona,
á í mestu vandræðum með mark-
verði liðsins þessa dagana þar sem
Francesc Arnau er meiddur og í
leiknum gegn Celta þurfti Richard
Dutrel að fara af velli vegna meisla á
hné.
Real Madrid vann nauman sigur á
útivelli gegn Osasuna, 2:3 en þeir
Raul, Fernandes jöfnuðu í tvígang
leikinn fyrir Real áður en Ivan
Patrick Kluivert tryggði
Barcelona jafntefli.
Helguera skoraði sigurmarkið rétt
fyrir leikslok. Markverði Osasuna
var vikið af leikvelli á 33. mínútu en
þrátt fyrir að vera einum leikmanni
færri áttu heimamenn ágætis mögu-
leika gegn stjörnuliði Real Madrid.
Margir af lykilmönnum meistara-
liðs Deportivo Corana vora hvíldir í
viðureigninni við Espanyol þar sem
liðið leikur við AC Milan í Meistara-
deild Evrópu á miðvikudag. Þrátt
fyrir það sigruðu meistararnir, 0:2,
og velti þar með Valencia úr efsta
sæti deildarinnar.
Las Palmas gerði jafntefli við Real
Sociedad á útivelli og Þórður Guð-
jónsson kom ekkert við sögu í liði
Las Palmas.
Naumt tap Lokeren
Allir fjórir Islendmgarmr í her-
búðum Lokeren vora í
byrjunarliðinu er liðið mætti
Moeskroen.
Heimamenn sigr-
Krístján uðu 2:1 og áttu
skrifar Islendingarmr
misjafnan leik.
Bakverðirnir Arnar Viðarsson
og Auðun Helgason áttu fínan leik
og vora meðal bestu manna liðs-
ins. Rúnar Kristinsson sást lítið
en Arnar Grétarsson byrjaði vel
og lék mjög vel í þrjátíu mínútur.
Þjálfari Lokeren lét Arnar
Grétarsson leika annan hálfleik-
inn daginn áður með varaliðinu til
að athuga hvort hann væri búinn
að ná sér af veikindum sem hrjáð
hafa hann undanfarna daga.
Lokeren hóf leikinn betur en
gekk illa að skapa sér marktæki-
færi. Mbayo kom liðinu yfir með
glæsilegu marki af löngu færi,
beint í vinkilinn.
Eftir hlé sóttu heimamenn mik-
ið og skoraði Marcin Zewlakow
tvívegis og tryggði liðinu sigur.
Ai-nari Grétarssyni var skipt út
af á 66. mínútu og á 83. fór Rúnar
út af, en þeir Auðun og Arnar Við-
arsson léku allan leikinn. Lokeren
á enn eftir að sigra á útivelli í
deildinni á þessari leiktíð.
Líka tap hjá
Sigurði Ragnari
Sigurður Ragnar Eyjólfsson og
félagar í Harelbeke tóku á móti
Westerlo og töpuðu 4:0, sem var
of stórt tap miðað við gang leiks-
ins. Gestirnir komust í 1:0 fyrir
hlé og Camara fékk rautt spjald
þannig að heimamenn vora einum
færri allan síðari hálfleikinn og
máttu ekki við margnum.