Morgunblaðið - 05.12.2000, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ
KNATTSPYRNA
ÞRIÐJUDAGUR 5. DESEMBER 2000 D
Meistaramir komnir
á góða siglingu
Reuters
Eiður Smári Guðjohnsen fagnar ítalska landsliðsmanninum Gianfranco Zola eftir að hann kom
Chelsea á bragðið gegn Man. City.
MANCHESTER United heldur
sínu striki í ensku úrvalsdeild-
inni í knattspyrnu og ef fram
heldur sem horfir verða United-
menn krýndir meistarar þriðja
árið í röð. Rauðu djölfarnir tóku
á móti Tottenham og unnu sinn
áttunda sigur í röð.
að voru þeir Paul Scholes og Ole
Gunnar Solskjær sem skorurðu
mörk meistaranna, sitt í hvorum
hálfleik „Síðara markið bjargaði
þessu fyrir okkur því áður en það
kom gat í raun allt gerst,“ sagði Alex
Ferguson, knattspyrnustjóri Man-
chester United, eftir leikinn. Heima-
menn réðu ferðinni lengst af leiksins
en leikmenn Tottenham börðust vel
og bitu vel frá sér í síðari hálfleik.
Patrick Vieira tryggði Arsenal
sigurinnn gegn Southampton þegar
hann skallaði í netið eftir horn-
spyi-nu fimm mínútum fyrir leikslok.
Sigur heimamanna í Arsenal var
mjög sanngjarn en í þrígang áttu
þeir skot í markstangirnar.
„Við vorum heppnir að ná að
skora þetta mark en ég var farinn að
halda að við ætluðum að gera enn
eitt markalausa jafnteflið. Ég var
ánægður með leiks liðsins en okkur
gekk illa að brjóta á bak aftur vel
skipulagða og sterka vörn South-
ampton. Við sýndum hins vegar þol-
inmæði og uppskárum laun erfiðs-
ins,“ sagði Arsene Wenger, stjóri
Arsenal.
Liverpool hafði betur gegn nýlið-
um Charlton á Anfield Road, 3:0.
Tölurnar gefa þó samt ekki rétta
mynd af leiknum því gestirnir áttu
síst minna í leiknum. Astralski varn-
ai-maðurinn Mark Fish varð fyrir því
óláni að skora sjálfsmark snemma
leiks og þeir Markus Babble og Emi-
le Hesky innsigluðu sigurinn með
tveimur mörkum á síðustu 12 mínút-
um leiksins.
Leicester lagði Leeds
Rio Ferdinand upplifði hálfgerða
martröð í fyrsta leik sínum með
Leeds en þeir hvítklæddu lágu fyrir
Leicester, 3:1. Heimamenn gerðu út
um leikinn á fyrsta hálftímanum en
þá skoruðu þeir þrjú mörk og voru
Robbie Savage, Ade Akinbiyiog Ger-
ry Taggart þar af verki. Leeds menn
léku manni færri síðustu 23 mínút-
urnar eftir að Lucas Radebe var vik-
ið af velli.
„Ég var ánægður með leik
Ferdinands en leikmennir sem léku
með honum í vöminni voru ekki að
spila vel. Við gáfum Leicester þrjú
mörk í forgjöf í fyrri hálfleik en í
þeim síðari kannaðist ég við mína
menn og með smáheppni hefðum við
getað stolið stigi,“ sagði David
O’Leary knattspymustjóri Leeds.
„Ég held að þetta sé besti leikur
liðsins frá því ég tók við því. Það kom
mér á óvart að að Leeds lék með
þriggja manna vörn og og hún réð
einfaldlega ekki við mína menn,“
sagði Peter Taylir, knattspyrnu-
stjóri Leicester, sem með sigrinum
skaust upp í þriðja sæti deildarinn-
ar.
Middlesbrough tapaði enn eina
ferðina, nú fyrir West Ham og var
þetta áttundi tapleikur liðsins í síð-
ustu níu leikjum. ítalinn Paolo Di
Canio skoraði sigurmark leiksins á
44. mínútu. Lærisveinar Harry Red-
knapps í West Ham hafa verið á
miklu skriði að undanfömu og em
komnir hóp efstu liða en Boro fór
með ósigrinum í fallsæti.
Ipswich náði ekki að skora
Rory Delap tryggði Derby fyrsta
sigurinn á útivelli á leiktíðinni þegar
hann skoraði eina mark leiksins
gegn Hermanni Hreiðarssyni og fé-
lögum hans í Ipswich. Þetta var
fyrsti leikurinn á leiktíðinni sem
Ipswich tekst ekki að skora mark í.
Þetta var annar sigur Derby í vetur
og í fjórði leikurinn í síðustu fimm
leikjum sem liðið heldur marki sínu
hreinu.
„Ég sá margt jákvætt í leik liðsins
og ég verð að gefa leikmönnum mín-
um hrós fyrir mikla baráttu og mik-
inn sigurvilja. Þessi sigur gefur okk-
ur vonandi sjálfstraust og hann
færði okkur í fyi’sta skipti úr fallsæt-
inu sem er mjög ánægjulegt," sagði
Colin Todd, aðstoðarknattspymu-
stjóri Derby.
„Þetta voru mikil vonbrigði en
þetta er eitthvað sem maður verður
að geta tekið í knattspyrnunni. Der-
by hugsaði fyrst og fremst um að
verjast og okkur tókst því miður
ekki að komast í takt við leikinn. En
við getum vonandi lært eitthvað af
þessum leik,“ sagði George Burnley,
knattspyrnustjóri Ipswich.
Bradford vann sinn fyrsta sigur í
14 ltikjum þegar liðið lagði Cov-
entry á heimavelli sínum, 2:1. Stan
Collymore og Peter Beagrie tryggðu
heimamönnum sigui-inn með tveim-
ur mörkum á lokamínútunum en
ástralski framherjinn John Aloisi
kom gestunum í forystu um miðjan
síðari hálfleik. Coventry er komið á
kunnuglegar slóðir á stigatöflunni
en átta ósigrar í síðustu 11 leikjum
hafa sogað liðið í fallbaráttuna.
„Heilladísirnar eru ekki með okk-
ur. Svo mikið er víst. Við áttum
miklu meira í þessum leik og hefðum
átt að vera búnir að gera út leikinn
áður en Bradford tókst að svara fyr-
ir sig,“ sagði Gordon Strachan,
knattspyrnustjóri Coventi-y, eftir
leikinn.
Ginola með Villa
Frakkinn David Ginola var í byrj-
unarliði Aston Villa í fyrsta gegn
fyrri félögum sínum í Newcastle.
Ginola var ekki lengi að minna á sig
en hann lagði upp mark strax á
fjórðu mínútu fyrir Dion Dublin og
Ginola var miðpunkunkturinn í öllu
sóknarspili Villa manna. Hann lagði
upp nokkur góð færi fyrir félaga sína
en þeir voru ekki á skotskónum.
Atta mínútum fýrir leikskok jafnaði
svo Norberto Solano og þar við sat.
Alan Shearer lék ekki með New-
castle vegna hnémeiðsla og fyrir vik-
ið var lítið bit í sókn þeirra röndóttu.
Eiður Smári byrjaði
Eiður Smári Guðjohnsen var í
byrjunarliði Chelsea sem sigraði
Manchester City á heimavelli sínum,
2:1. Eiði var skipt út af um miðjan
síðari hálfleik en þá var staðan, 2:0,
fyrir heimamenn. Gianfranco Zola
og Jimmy Floyd Hasselbaink skor-
uðu mörkin fyrir Chelsea.
ÞRmtR
FOLK
■ HERMANN Hreiðarsson lék allan
tímann með Ipswich sem í fyrsta sinn
skoraði ekki mark í deildinni í vetur.
■ ARNAR Gunnlaugsson var á vara-
mannabekk Leicester í 3:1 sigri liðins
gegn Leeds.
■ GUÐNI Bergsson lék allan tímann
fyrir Bolton gegn Watford en Heiðar
Helguson kom inn á sem varamaður á-
66. mínútu í liði Watford. Bæði Guðni
og Heiðar nældu sér í gul spjöld.
■ BJARKI Gunnlaugsson lék síðustu
20 mínútumar íyrir Preston í 1:1 jafn-
teflisleik liðsins gegn toppliði Fulham.
■ LÁRUS Orri Sigurðsson lék ekki
með WBA sem vann góðan útisigur á
Wimbledon, 0:1.
■ ÓLAFUR Gottskálksson og ívar
Ingimarsson léku báðir allan tímann
með Brentford sem gerði 2:2 jafntefli
gegn Wigan í 2. deildinni.
mJÓHANN B. Guðmundsson var
skipt út af á 54. mínútu í liði Cam-
bridge sem tapaði 3:0 íyrir liði Read-
ing í 2. deildinni.
■ HELGI Valur Daníelsson var ekki í
leikmannahópi Peterbrough sem
sigraði Wrexham, 1:0.
■ BYNJAR Björn Gunnarsson lék
allan leikinn fyrir Stoke í tapleiknum
gegn Luton, 3:1. Birkir Kristinsson
og Ríkharður Daðason, Stefán Þórð-
arson og Birkir Kristinsson voru á
varamannabekknum en Bjami Guð-
jónsson var í leikbanni.
Róm-
verjar
ekki á
skot-
skónum
ROMA heldur öruggu forskoti
á toppi ítölsku 1. deildarinnar
í knattspyrnu þrátt fyrir
markalaust jafntefli gegn Per-
ugia. Rómverjar voru ekki á i-
skotskónum að þessu sinni en
markvörður Perguia var í
miklu stuði og hélt sínum
mönnum á floti.
Atalanta tapaði sínum
fyrsta leik á timabilinu þegar
liðið sótti Parnia heim í mjólk-
urbæinn. Það vom þeir Sabri
Lamouchi og Sergio Conceic-
ao sem bundu enda á gott
gengi Atalanta en þeir skor-
uðu sitt hvort markið.
Meistarar Lazio unnu botn-
lið Reggina á hcimvclli sfnum f
Róm, 2:0, og skoraðu Marcelo
Salas og Hernan Crespo mörk-
in. Lazio fékk svo gullið færi á
að bæta við þriðja markinu ,
þegar liðið fékk dæmda víta-
spyrnu en Taibi, markvörður
Reggina, varði vítið frá
Crespo.
Andriy Schevchenko kom
sfnum mönnum í AC Milan til
bjargar en hann skoraði eina
mark leiksins þegar Milan-
meim sigruðu Udinese á úti-
velli. Þetta var áttuna mark
Ukrafnumannsins á þessu
tímabili.
Juventus og Inter gerðu 2:2
jafntefli á San Síró leikvangin-
um glæsilega í Mílanó. Juvent- ' ^
us komst í 2:0 með mörkum
Frakkanna David Trezeguet
og Zinedine Zidane á fyrstu 10
mínútum leiksins en heima-
menn ncituðu að gefast upp og
tókst að jafna metin. Laurent
Blanc minnkaði muninn og
Luigi Di Biagio jafnaði með
þrumuskoti í sfðari hálfleik.