Morgunblaðið - 17.12.2000, Qupperneq 1
STOFNAÐ 1913
191. TBL. 88. ÁRG.
SUNNUDAGUR 17. DESEMBER 2000 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Hillary Clinton ger-
ir útgáfusamning
Sögð fá
metfé í
fyrirfram-
greiðslu
Washington. AFP.
HILLARY Rodham Clinton,
eiginkona Bills Clintons Banda-
ríkjaforseta og væntanlegur
öldungadeildarþingmaður, hef-
ur gert samning við útgáfufyr-
irtækið Simon & Schuster um
útgáfu endurminningabókar.
Samkvæmt heimildum banda-
rískra fjölmiðla, sem greindu
frá þessu í gær, fær forsetafrú-
in átta milljónir Bandaríkjadala
í fyrirframgreiðslu, andvirði
688 milljóna króna.
Gríðarhörð samkeppni var
milli útgáfufyrirtækja um út-
gáfuréttinn á bók Hillary sem
gert er ráð fyrir að muni inni-
halda hreinskilnar lýsingar á
reynslu hennar sem forsetafrú-
ar, þ. á m. á sýn hennar á mála-
ferlin gegn Clinton bónda
hennar og samskipti hans við
Monicu Lewinsky, fyrrverandi
starfsstúlku í Hvíta húsinu.
AÐVENTA í KÍNA
KÍNVERSKT stúlkubarn snertir jólasveinsbrúðu við jólaskraut og annað sem tilheyrir jólahaldi til að
innganginn að veitingastað í Peking í gær. glæða kaupgleðina hjá almenningi á þessum árs-
Þótt Kínverjar séu fæstir kristnir og haldi al- tíma, þegar veltan hjá vestrænum starfsbræðrum
mennt ekki jól nota kínverskir kaupmenn gjarnan þeirra nær hámarki ársins.
Haider
í Róm
JÖRG Haider, fylkisstjóri í Karnten
í Austurríki, var í góðu skapi er
hann skundaði í lögreglufylgd frá
hóteli sínu gegnt Péturskirkjunni f
Róm á fund páfa í gær. Haider fór
fyrir 250 manna sendinefnd frá
Austurríki, en aðalerindið var að
afhenda Páfagarði stærðar jólatré
úr hlíðum Alpanna í Karnten. Rót-
tækir vinstrimenn og gyðingar
mótmæltu heimsókn Haiders sem
er umdeildur fyrir að vera þjóðem-
issinnaður i skoðunum.
UndirbúningTir stjórnarskipta í Bandaríkjunum
Powell verður ut-
anríkisráðherra
Austin. AFP, AP.
BÚIZT var við því að George W.
Bush, tilvonandi forseti Bandaríkj-
anna, myndi síðla laugardags tH-
kynna hverja hann hyggst skipa í
mikilvægustu ráðherraembættin
þegar hann tekur við stjórnartaum-
unum af Bill Clinton 20. janúar næst-
komandi. Háttsettir talsmenn Repú-
blikanaflokksins staðfestu við
bandaríska fjölmiðla að Colin Pow-
ell, fyrrverandi forseti bandaríska
herráðsins, yrði tilnefndur í embætti
utanríkisráðherra. Samkvæmt heim-
ildum sömu fjölmiðla mun blökku-
konan Condoleezza Rice verða þjóð-
aröryggisráðgjafi Bush.
Bæði Powell og Rice gegndu mik-
ilvægum hlutverkum í stjómartíð
Georges Bush eldri, sem lauk árið
1992 þegar hann tapaði fyrir Clinton.
í samræmi við
yfirlýsingar Bush
um að vilja leita
sátta og samstöðu
eftir þann djúp-
stæða klofning
eftir flokkslínum
sem hin tvísýna
barátta um úrslit
forsetakosning-
anna hefur valdið,
er reiknað með að hann velji að
minnsta kosti einn demókrata í ráð-
herraembætti, þótt ekki verði það
John Breaux, öldungadeildarþing-
maður demókrata frá Louisiana,
sem átti viðræður við Bush á föstu-
dag. Hann hyggst halda sæti sínu í
öldungadeildinni, ekki sízt vegna
þess að annars myndi repúblikani
verða skipaður í hans stað og þar
með fengju repúblikanar meirihluta
í þingdeildinni. Nú sitja þar 50
demókratar og 50 repúblikanar.
Bush hittir Clinton
og Gore á þriðjudag
Bush yngri og varaforsetaefni
hans, Dick Cheney, munu eiga fund
með Clinton forseta og A1 Gore vara-
forseta í Hvíta húsinu á þriðjudag til
þess að ræða undirbúning stjómar-
skiptanna. Það verður í fyrsta sinn
sem keppinautamir Bush og Gore
hittast eftir að úr því var skorið hvor
þeirra teldist hafa unnið kosningam-
ar, sem fram fóm 7. nóvember síð-
astliðinn.
■ Fundar með ráðherraefnum/12
Colin Powell
AÐALSTRÆTIOG
GÖTUMYND ÞESS
Byggjum á nýjustu
tækni og þekkingu
Sprotar vaxa
af nýjum meiði
Telia neit-
aðum
UMTS-leyfí
Stokkhólmi. AP.
TELIA, stærsta símafyrirtæki Sví-
þjóðar og fyrrverandi ríkiseinokun-
arfyrirtæki landsins á sviði síma-
þjónustu, var ekki meðal þeirra
fyrirtækja sem sænsk póst- og síma-
málayfirvöld úhlutuðu í gær starfs-
leyfum til rekstrar næstu kynslóðar
farsímakerfis. Kom ákvörðunin á
óvart og forsvarsmenn Telia sögðust
ætla að áfrýja henni.
Fjögur fyrirtæki fengu úthlutað
rekstrarleyfum í hinu svokaliaða
HMTS-kerfi, sem einnig hefur verið
kallað þriðja kynslóð farsíma (,,3-G“)
og reiknað er með að valdi nýrri bylt-
ingu í farsímanotkun. Þessi fjögur
fyrirtæki em Europolitan, Netcom/
Tele2, HI3G Access og Orange
Sverige. Hin tvö fyrrnefndu reka nú
þegar farsímaþjónustu í Svíþjóð í
samkeppni við Telia.
Fyiirtækin fjögur hafa skuld-
bundið sig til þess að fjárfesta sem
nemur 77 milljörðum sænskra
króna, andvirði 693 milljóna ísl.
króna, í uppbyggingu nýja farsíma-
kerfisins á næstu þremur áram.
----------*-+-*-----
Færeyingum
íjölgar hratt
Kaupmannahöfn. Morgnnblaðið.
FÆREYINGUM fer hratt fjölgandi
og hafa fólksflutningar þangað ekki
verið meiri í þrjátíu ár. Er búist við
að Færeyingar verði 46.182 í árslok,
að því er segir í frétt Ritzau.
Talið er að stór hluti þeirra, sem
fluttu frá Færeyjum í efnahags-
kreppunni sem reið yfir í upphafi síð-
asta áratugar, hafi snúið aftur heim
en þegar ástandið var verst, árið
1995, vora Færeyingar 43.400.
Flestir vora þeir árið 1989; 47.838.
Fákafeni 9
Sími 568 2866
Opiðídag 13-17
MORGUNBLAÐIÐ17. DESEMBER 2000