Morgunblaðið - 17.12.2000, Page 2

Morgunblaðið - 17.12.2000, Page 2
2 SUNNUDAGUR 17. DESEMBER 2000 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Fjármálaráðherra um kennarasamninga Hægt að leysa deil- una tiltölulega hratt GEIR H. Haarde fjármálaráðherra sagði við utandagskrárumræður um kjaradeilu framhaldsskólakennara á Alþingi í gær að hægt væri að leysa deiluna tiltölulega hratt, ef menn ein- settu sér það, með samkomulagi um breytingar á skipulagi skóla. Ef það yrði ekki gert á næstu sólarhringum yrði það ekki gert fyrr en í janúar. Geir sagði að hugmyndir Verzlunar- skólans um skipulagsbreytingar í skólum sýndu að hægt væri að flytja mikið á milli einstakra liða innan heildarlauna kennara. Sigríður Jóhannesdóttir, málshefj- andi umræðunnar, gagnrýndi ríkis- stjómina harðlega en sagði viðræð- umar þó famar að skila einhveijum árangri og væri nú loksins farið að hilla undir samningsflöt. Samningafundur boðaður í dag Samninganefndir kennara og rík- isins hafa verið boðaðar til sáttafund- ar í dag kl. 14. Deiluaðilar komu sam- an á sáttafundi sl. föstudag. Að sögn Elnu Katrínar Jónsdóttur, formanns FF, hefur á seinustu fund- um m.a. verið farið yfir nýjar hug- myndir um að taka stærri skref varð- andi tilfærslur milli vinnuþátta, þar sem launum og ábyrgð fyrir tiltekin störf yrði dreift á fleiri en áður. Samninganefndir kennara og Verzlunarskólans hafa verið boðaðar til formlegs sáttafundai- á morgun. Komu samningsaðilar saman til vinnufundar hjá sáttasemjara á fostu- dag og fóra yfir útreikninga á samn- ingstilboði Verzlunarskólans. Verk- fall framhaldsskólakennai-a hefur nú staðið yfir í 40 daga eða jafnlengi og seinasta kennaraverkfall árið 1995, en næsta verkfall kennara þar á und- an stóð yfir í 45 daga. Brotnaði undan snjó- þunganum SNJÓ kyngdi niður í Reykjavík á föstudagskvöldið og lét stæðilegt; grenitréð á myndinni undan snjó- þunganum. Var eigandi trésins, Ólafur Stephensen, að saga brotnar greinar af trénu í gærmorgun þeg- ar ljósmyndara bar að. Það er þó óalgengt að grenitré brotni undan snjó, að sögn Jóhanns Pálssonar garðyrkjustjóra. Hann segir sjaldgæft að trjágróður brotni í einhverjum mæli á höfuðborg- arsvæðinu, en snemma í haust hafi þó snjóað við Elliðavatn áður en lauf var fallið og þá hafi greinar brotnað í nokkrum mæli á lauftrjánum. Snjórinn er blautur og þungur og væri skynsamlegt af garðeigendum að taka sér kúst í hönd og hreinsa þyngslin af runnum. Ferðamönnum fjölgar Um 41.000 fleiri er- lendir ferðamenn ÞAÐ sem af er þessu ári hafa tæp- lega 41.000 fleiri ferðamenn komið hingað til lands en á sama tíma í fyrra. Mest fjölgaði ferðamönnum frá Bretlandi og Bandaríkjunum. í fréttatilkynningu frá Ferða- málaráði kemur fram að heildar- fjöldi erlendra ferðamanna sem komu til landsins fyrstu ellefu mánuði ársins er 291.341. Það er 16,4% aukning frá því í fyrra. Breskum ferðamönnum fjölgaði um 43,6% og bandarískum um 21,5%. Ilelmingur aukningarinnar er vegna ferðamanna af þessu þjóðerni. Þá komu rúmlega 2.000 fleiri er- lendir gestir til Islands nú í nóv- ember en í sama mánuði í fyrra. Alls komu tæplega 16.000 manns til landsins og af þeim voru tæp- lega 4.300 frá Bandaríkjunum og um 3.000 frá Bretlandi. Morgunblaðið/Þorkell Forstjóri Odda um ógildingu samruna við Steindórsprent-Gutenberg Samkeppni við er- lendar prentsmiðjur FORSTJÓRI Prentsmiðjunnar Odda hf. segir að samkeppnisyfir- völd líti greinilega á ísland eitt og sér sem markaðssvæði en taki ekki tillit til stóraukinnar samkeppni við erlend fyrirtæki. Oddi hafi verið að búa sig undir þá samkeppni með kaupum á Steindórsprenti-Guten- berg. Samkeppnisráð ógilti sam- rana fyrirtækjanna með úrskurði í fyrradag. Prentsmiðjan Oddi hf. keypti 92,88% hlut í Steindórsprenti-Gut- enberg ehf. í október síðastliðnum. Oddi er stærsta prentsmiðja lands- ins með um fjórðungs markaðshlut- deild og Steindórsprent-Gutenberg sú næststærsta. Þriðja stærsta prentsmiðja landsins, Grafík, er einnig í eigu Odda þannig að prent- smiðjurnar þrjár era með um það bil þriðjungs hlut á prentmarkaðn- um hér á landi. Heildarvelta þeirra var liðlega 2,8 milljarðar kr. á síð- asta ári og þær era með tæplega 400 starfsmenn. í niðurstöðu úrskurðar sam- keppnisráðs kemur fram að ráðið telur að yfirtaka Odda á Steindórs- prenti-Gutenberg leiði til markaðs- yfirráða hins sameinaða fyrirtækis. Hún hafi skaðleg áhrif á sam- keppni. Öll rök hnígi í þá átt að hið sameinaða fyrirtæki muni hafa stórfellda samkeppnislega yfir- burði yfir aðra keppinauta sína og geta hagað verðlagningu sinni og viðskiptaskilmálum án tillits til keppinauta eða viðskiptamanna sinna. Samkeppnisráð telur sam- ranann andstæðan hagsmunum neytenda og fara gegn markmiði samkeppnislaga. Kom á óvart Þorgeir Baldursson, forstjóri Prentsmiðjunnar Odda hf., segist ekki hafa átt von á þessari niður- stöðu. Hann hafi talið hugsanlegt að ráðið vildi skoða það að setja skilyrði fyrir samrunanum. í úr- skurðinum segir að með meiri sam- þjöppun sem af samrana fyrirtækj- anna leiði, sem og eðli og uppbyggingu þeirra markaða, sem hér skipti máli, fái samkeppnisráð ekki séð að unnt sé að setja sam- rananum skilyrði sem nægi til þess að eyða þeim samkeppnislegu áhrifum sem rakin era í úrskurð- inum. Þorgeir segir að stjórnendur Odda hf. hafi verið að búa sig undir mun meiri samkeppni í ýmsu prentverki við erlend fyrii’tæki í nánustu framtíð, ekki síst í bókum, tímaritum og bæklingum, með kaupunum á Steindórsprenti-Gut- enbérg. Vekur hann athygli á því að samþjöppun eigi sér nú stað á út- gefendahliðinni og yfirlýst mark- mið með henni sé að ná hagkvæmni í framleiðslu og innkaupum. Það snúi ekki síst að prentverkinu. Seg- ir Þorgeir að í bókaframleiðslunni sé við mjög ramman reip að draga, prentsmiðjan sé í samkeppni við er- lend fyrirtæki sem framleiði miklu meira og ef ekki takist að gera framleiðsluna hér hagkvæmari þá fari eins með bækumar og kiljum- ar sem að mestu leyti séu fram- leiddar erlendis. Þessu þurfi prent- fyrirtækin að mæta. Bendir Þorgeir á að samkeppn- isráð hafi ekki gert athugasemdir við sameiningu Umbúðamiðstöðv- arinnar og Kassagerðar Reykjavík- ur í eina fyrirtækið á sínum mark- aði hér á landi. Bæði fyrirtækin hafi verið að tapa peningum og allir séð að eitthvað þyrfti að gera. Kveðst hann vona að ekki þurfi að bíða þess að prentsmiðjurnar komist í sömu stöðu áður en leyfi fáist til að hagræða hjá þeim. Áfrýjun líkleg Þorgeir segist enn ekki hafa haft tækifæri til að kynna sér úrskurð samkeppnisráðs til fullnustu og eiga eftir að leita sér ráðgjafar um viðbrögð við honum. Telur hann að nú líti út fyrir að Oddi þurfi að skila hlutabréfunum í Steindórsprenti- Gutenberg til Búnaðarbankans. Hins vegar telur hann ekki ólíklegt að úrskurðinum verði áfrýjað. Formaður Félags grunnskólakennara Stefna ótrauð að samningum fyrir jól SAMNINGANEFNDIR grann- skólakennara og launanefndar sveitarfélaga (LS) luku sl. föstudag öðram áfanga viðræðna vegna end- urnýjunar kjarasamnings eins og stefnt hefur verið að skv. viðræðu- áætlun. Guðrún Ebba Ólafsdóttir, formaður Félags grunnskólakenn- ara, segir að haldnir verði samn- ingafundir á hverjum degi í þessari viku. Þá verði farið að ræða breyt- ingar á launakjörum kennara og segir hún samningsaðila enn stefna ótrauða að því að ljúka gerð nýs kjarasamnings fyrir jól. Síðasti fundur á föstudaginn í viðræðuáætlun kennrara og LS var settur upp listi yfir fjölmörg atriði á borð við lengingu starfs- tíma skóla, endurskilgreiningu á vinnuskyldu og vinnutíma kennara o.fl. sem ræða átti í öðrum áfanga viðræðnanna. Guðrán Ebba segir að náðst hafi samkomulag um flest þessara at- riða í megindráttum en það sé þó háð útreikningum og niðurstöðu viðræðna um launakjör sem fram fara í lokaáfanga viðræðuáætlunar- innar. Er stefnt að seinasta samn- ingafundi næstkomandi föstudag kl. 14 og að þá verði hafist handa við frágang á texta nýs kjarasamn- ings. -------------- Þriggja bíla árekstur í Kömbunum ÞRÍR fólksbílar lentu i árekstri á Suðurlandsvegi í Kömbunum laust eftir klukkan 23 í gærkvöld. Lög- reglan á Selfossi segir tildrög óhappsins þau að ökumaður bifreið- ar sem ekið var í vesturátt stað- næmdist skyndilega. Bfll sem ekið var á eftir honum skall þá aftan á hann. Ökumaður þriðja bílsins náði ekki að sveigja frá og ók aftan á aðra bifreiðina. Bílarnir skemmdust mik- ið en engin slys urðu á fólki. -------------- Bruninn á Húsavík Kviknaði í út frá hleðslutæki RANNSÓKN lögreglunnar á Húsa- vík á upptökum branans í verslunar- kjamanum við Garðabraut á mið- vikudagskvöld leiddi í ljós að eldsupptök voru í hleðslutæki fyrir þráðlausan síma. Eldurinn kom upp í sportvöraversluninni Tákn en að sögn lögreglu er allur varningur hennar ónýtur. Miklar skemmdir urðu einnig á húsnæði verslunarinn- ar. -------------- Lífíð um borð í Goðafossi SETT hefur verið upp ljósmynda- sýning á mbbis með myndum af líf- inu um borð í flutningaskipinu Goða- fossi en Þorkell Þorkelsson ljósmyndari tók sér far með skipinu í einum desembertúmum. Hægt er að skoða sýninguna með því að smella á þar til gerðan hnapp á forsíðu mbl.is. Einnig er fjallað um siglinguna í máli og myndum í Morgunblaðinu í dag.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.