Morgunblaðið - 17.12.2000, Síða 6

Morgunblaðið - 17.12.2000, Síða 6
6 SUNNUDAGUR 17. DESEMBER 2000 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT Y eikbur ða ríki í háska eftir Aryeh Neier © Project Syndicate. ÖRLAGARÍKIR atburðir í ísrael og Júgóslavíu hafa skyggt á þann óróa sem ríkir í Nígeríu og Indónesíu en þjóðernis- og trúará- tök í báðum þessum „stórríkjum“ kosta mörg mannslíf. Við megum ekki missa sjónar á þeim hörmu- legu afleiðingum sem það gæti haft að þetta ofbeldi verði ekki stöðvað. Vandinn er sá að bæði ríkin, heft af áralöngu einræði og vansæmd, eiga á hættu að missa getuna til að stemma stigu við of- beldi. Saga réttindabaráttu frá Magna Carta til Alþjóðlegu mannrétt- indayfirlýsingarinnar hefur að mestu snúist um að takmarka rík- isyfirráð. Því kann að hljóma und- arlega að því sé haldið fram, að til þess að vernda réttindi, þurfi sums staðar í heiminum að styrkja völd ríkisstjórna. En frjálslyndum gildum er jafnt ógnað af vangetu ríkisins og harðstjórnarvaldi. Hvarvetna í heiminum, þ.á m. í tveim af stærstu ríkjum hans, má sjá ógnvekjandi vísbendingar um þennan sannleika. Afleiðingamar, fyrir allar 114 milljónir íbúa Nígeríu, fyrir aðra hluta heimsálfunnar Afríku og fyr- ir alþjóðakerfið, yrðu skelfilegar ef Nígería myndi liðast í sundur. Og þótt ríkisstjórn Oluseguns Obasanjos sé sú lýðræðislegasta og óspilltasta sem setið hefur í Nígeríu frá því landið varð sjálf- stætt (þar með talið tímabil seint á áttunda áratugnum þegar Obas- anjo hershöfðingi var herstjóri landsins uns hann lét af völdum sjálfviljugur til að unnt væri að kjósa borgaralegan forseta), er landið enn háskalega veikburða. Stjóm Obasanjos hefur ekki tekist að koma í veg fyrir að ísl- amskir bókstafstrúarmenn komi á sharia-lögum í nokkrum norður- ríkjum, sem leitt hefur til ofbeldis er kostað hefur þúsundir manns- lífa. Stjóminni hefur heldur ekki tekist að tryggja frið við olíulind- imar við ósa Níger-fljóts þar sem fátækir íbúar eru ósáttir við að náttúruauðlindir á þeirra landi séu hagnýttar til ágóða fyrir spilltan úrvalshóp. Nú síðast kostuðu átök á milli Hausa og Yoruba í Lagos hundrað mannslífa. Nú er meiri hætta en nokkra sinni, síðan þjóð- armorð var framið í Bíafra, á að fjölþjóða, fjöltyngd, fjöltrúuð Níg- ería leysist upp. Indónesía er annað stórt land, langt í burtu, sem er fjölþætt er Eigi þessi nýju lýd- ræðisríki að lifa af verða stjórnir þeirra að fá öflugan stuðn- ing frá alþjóðasam- félaginu, þ.á m.með afléttingu skulda. Skuldir þeirra verða aldrei greiddar ef þau liðast í sundur. varðar þjóðerni og trú og á við svipuð vandamál að etja. Einnig þar hefur sannfærður lýðræðis- sinni, Abdurrahman Wahid (Gus Dur), tekið við forsetaembættinu í kjölfar langrar spillingar- og harð- stjórnartíðar. En l£kt og í Nígeríu virðist rfldsstjómina skorta getu til að stemma stigu við staðbundn- um óeirðum sem hafa kostað þús- undir mannslífa. Geti stjóm Wah- ids ekki stöðvað blóðbaðið er líka hætta á að Indónesía liðist í sund- ur. Þessir erfiðleikar vegna getu- leysis stjórnvalda hafa skapast, bæði í Nígeríu og Indónesíu, ein- mitt þegar útlitið var bjart. Bæði þessi ríki eiga miklar auðlindir. Fái rfldsstjórnir Obasanjos og Wahids tækifæri til að stjórna af heilindum og friðsamlega í nokkur ár gætu þær bætt til muna lífsskil- yrði óbreyttra Nígeríumanna og Indónesa. En þessi tækifæri munu ef til vill ekki gefast vegna þess að umræddar ríkisstjómir skortir getu til að stöðva þjóðemis- og trúarátök. Þetta úrræðaleysi forsetanna Obasanjos og Wahids má að hluta til rekja til óáreiðanleika herja þeirra. Herstjómirnar, sem sátu á undan þeim, byggðu styrk sinn á hermönnum sínum. En hervald er lítils virði íyrir lýðræðislegar stjómir, sem vilja vemda réttindi borgara sinna, ef þær búa við ótta um að herinn fremji ódæðisverk sem ýti undir aðskilnað. Þetta er sú staða sem Wahid forseti stendur frammi fyrir, vit- andi að mikið af stuðningi almenn- ings við sjálfstæðishreyfingar í Aceh og Irian Jaya má rekja til óvildar vegna mannréttindabrota hersins, og að íhlutun hersveita á Mólúkkaeyjum hlýtur að hafa ýtt undir átök kristinna og múslíma, sem höfðu lengi búið þar í sátt og samlyndi, og kann jafnvel að hafa verið orsök ofbeldisins. Kannski er það enn mikilvægari þáttur í veikleika þessara nýju lýðræðislegu stjórna að almenn- ingur samsamar sig sífellt minna ríkinu. Aratuga óstjóm og skortur jók trúar- og þjóðernisdeilur. Maehiavelli benti á, í Orðræðunni, fyrir hálfri þúsöld, að það þarf kraftmikið ríki til að lifa af ekki aðeins breytingar á rfldsstjóm heldur líka breytingar á grann- þáttum stjórnarfyrirkomulagsins. Sovétríkin og Júgóslavía leystust upp einmitt þegai' verið var að reyna að breyta stjórnarfyrir- komulaginu í þessum löndum. Vegna þess að óstjórn hefur dreg- ið lífskraftinn úr Nígeríu og Indónesíu gætu sömu örlög beðið þeirra þegar taka á upp lýðræð- islega stjómarhætti. Eigi þessi nýju lýðræðisrfld að lifa af verða stjórnir þeirra að fá öflugan stuðning frá alþjóðasam- félaginu, þ.á m. afléttingu skulda. Vitað er hversu miklum auðæfum forverar Obasanjos, þeirra á með- al Sani Abacha hershöfðingi og þjófstjórn Suhartos á Indónesíu, stálu og því kann beiðnum um skuldauppgjöf að verða tekið með fyrirvara. En vestrænir leiðtogar verða að gera sér grein fyrir því að ef þessi ríki liðast í sundur verða skuldir þeirra aldrei greiddar og lánardrottnar þeirra hljóta þá óhjákvæmilega að verða fyrir miklum aukakostnaði. Því kann það að koma í veg fyrir miklar þjáningar og jafnvel vera spum- ing um eigin hagsmuni að veita lýðræðissinnum á borð við Obas- anjo og Wahid tækifæri til að halda ríkjum sínum saman. Allir sem láta sig mannréttindi varða hlytu á líta á upplausn Níg- eríu og Indónesíu sem ógæfu. Þótt ógemingur sé að segja fyrir um hvernig atburðarásin verður má sjá fordæmi í þeim miklu óeirðum sem sundrang Sovétríkjanna og Júgóslavíu kom af stað. Það of- beldi sem þegar hefur átt sér stað í Nígeríu og Indónesíu vekur manni ótta um að ef ekki verði hægt að halda þessum ríkjum saman - og hér kann að vera þörf nýs og skapandi hugsunarháttar og aðferða við málafylgju af hálfu mannréttindasinna - gætu afleið- ingamar orðið enn blóðugri en nokkur dæmi era um. Aryeh Neier er forseti stofnunar- innar Opið samféiag og höfundur „War Crimes:Brutality, Genocide, Terror and the Struggle for Just- ice“. Neier var einn stofnfélaga Human Rights Watch. Tvær austur-tímorskar stúlkur skoða jólatré á markaði í Dili, höf- uðborg landsins. Þetta eru önnur jólin síðan Iandsmenn höfnuðu öliu sambandi við Iudónesíu en um 90% þeirra eru kristin. Spenna í samskiptum Færeyinga og Dana Deilt um fundarsetur og upplýsingaskyldu Kaupmannahöfn. Morgunblaðið. EKKI hefur dregið úr spennunni í samskiptum Færeyinga og Dana undanfamar vikur, sem kom skýrt í ljós á fimmtudag er færeysku þing- mennirnir tveir, sem sitja á danska þinginu, héldu því fram, að þeim hefði ekki verið boðið að sitja fund Færeyjanefndar þingsins, sem var í gær. Formaður nefndarinnar hafnar því og heldur því ennfremur fram að Færeyingarnir sinni störfum sínum fyrir danska þingið ekki sem skyldi þar sem þeir eigi einnig sæti á því færeyska og láti það ganga fyrir. Þingmennirnir sem um ræðir, Óli Brekkmann og Jóannes Eidesgaard, hafa krafist þess að Færeyjanefndin komi saman á nýju ári til að upplýsa þá um stöðu mála en þeir era áheymarfulltrúar í nefndinni. Því hefur formaðurinn Peter Duetoft hafnað, segir þá hafa verið boðaða á fund og það sé ekki vandamál nefnd- armanna ef færeysku þingmennirnir mæti ekki þar sem þeir séu önnum kafnir við þingstörf í Færeyjum. Færeyjanefndin er skipuð 21 full- trúa úr öllum þingflokkum og var hún sett á laggimar til að fjalla um stöðu mála í samningaviðræðum við Færeyinga um sjálfstæði en þær fara eingöngu óformlega fram á milli Pouls Nyraps Rasmussens forsætis- ráðherra og Anfinns Kallsbergs, lög- manns Færeyja. Veita engin svör Hafa þeir ákveðið að veita ekki neinar upplýsingar að svo stöddu, nokkuð sem hefur vakið reiði bæði færeyskra og danskra þingmanna, sem hafa krafist svara. Nyrap Rasmussen vildi fátt segja að loknum fundinum á fimmtudag annað en að ekki hefði verið ákveðið hvenær Færeyingar tækju við fyrstu málaflokkunum er hingað til hafa heyrt undir dönsk stjómvöld. Þá myndu Danir jafnframt byija að draga úr fjárframlögum til Færeyja. Mikilsháttar ævintýrabók" „Gylltí áttavitínn er mikilsháttar ævintýrabók. Látið bókina ekki fram hjá ykkur fara!" Gunnar Hersveinn, Mbt. „Hreint og beint dásamleg fantasía sem heillar lesandann strax á fyrstu síðu. Oddný Árnadóttir, DV Mál og menningj malogmenning.isl Laugavegi 18 • Sími 515 2500 • Síðumúla 7 • Sfmi 510 2500 Krefjast þess að öll Thule- skjölin verði lögð fram Kaupmannahöfn. Morgunblaðið. Mjög er nú þrýst á Poul Nyrup Rasmussen forsætisráðherra Dana að sjá til þess að öll skjöl í Thule-málinu svokaliaða verði lögð fram. í síðustu viku fundust málsskjöl sem dönsk stjórnvöld hafa um áratiigaskeið sagt vera týnd og fullyrðir stjórnmálafræð- ingurinn Jens Brosted, sem fann skjölin, að þau hafi verið á sínum stað í ríkisskjalasafninu. Lög- fræðingur Thule-fanganna sem sótt hafa málið, segir þetta sönn- un þess að stjórnvöld hafi reynt að leyna upplýsingum. Thulemálið snýst um nauðung- arflutninga á íbúum Thule frá heimahögum sfnum árið 1953 að kröfu bandariska hersins, sem hugðist koma upp stöð á svæðinu, m.a. loftvarnareldflaugum. fbú- arnir kröfðust þess að fá að snúa aftur heim eða fá bætur ella og hófu mál á hendur dönsku stjórn- inni árið 1959. Aðgangur að sumum skjölum ekki leyfður fyrr en 2017 Stjórnvöld hafa hins vegar haldið því fram að flest skjölin í málinu séu horfin. Þau komu ekki í ljós við mikla rannsókn á mál- inu sem gerð var á árunum 1987- 1994. Brosted fann skjölin hins vegar sl. sumar og segir hann þau skyndilega hafa skotið upp koll- inum í ríkisskjalasafninu, á þeim stað sem þau hafi átt að vera. Segir hann það sönnun þess að þeim hafi verið leynt um áratuga- skeið. Hann fékk leyfi til að skoða hluta þeirra en aðgangur að hluta þeirra verður ekki leyfi- legur fyrr en árið 2017. í kjölfar fundar Brosteds hafa danskir stjórnmálamenn hvatt Nyrup Rasmussen til að leggja öll skjöl- in fram, ekki síst vegna sam- bandsins við Grænlendinga. Jonathan Motzfeldt, formaður grænlensku landsstjórnarinnar segir Thule-málið „hræðilegt sár í sambandi Dana og Grænlend- inga“ og furðar sig á því að nýjar upplýsingar séu að koma fram í málinu nú. f samtali við Politiken kveðst hann vonast til að stjórn- völd hafi ekki leynt skjölunum vísvitandi.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.