Morgunblaðið - 17.12.2000, Síða 9

Morgunblaðið - 17.12.2000, Síða 9
 ^1 - ■Y>' ?'1r J- 1 ' 'l v. Friðrik Erlingsson Bróðir Lúsifer 1 þessu nýja verki skyggnist Friðrik inn í hugarheim hinna minnstu bræðra, ekki síður en þeirra sem meira mega sín. Á heimili suður með sjó líta ung hjón á það sem köllun sína að veita drengjum sem erfitt eiga uppdráttar samastað og aðhald. Þar grípur hver og einn til sinna ráða til að heyja hina daglegu baráttu; hfsflótti, kaldhæðni og húmor kallast á. Og undir niðri kraumar þung undiralda því allir hafa sinn djöful að draga. Næm skynjun og nakinn veruleiki spila hér saman á áhrifaríkan hátt. Veröld átaka og andstæðna. ' Þögntn Cr Vigdís Grímsdóttir Nýjasta skáldsaga Vigdísar hefur hlotið fádæma góða dóma gagnrýnenda en fáir höfimdar takast á við jafhstórar spurningar um manneskjuna og þann heim sem við byggjum af jafiinístandi dirfsku og Vigdís Gríms- dóttir. I Þögninni rær hún ef til vill lengra út á djúpið en nokkru sinni fyrr, setur ást og auðsveipni andspænis kúgun og vitfirringu í slíkt samhengi að lesandi getur ekki vikið sér undan ábyrgð. Hver er fórnar- lamb og hver er böðull? Hvenær drepur maður mann? í þessu marg- slungna og vel skrifaða verki þar sem mennska og myrkur leikast á er fátt sem sýnist og engar leiðir auðrataðar, engar lausnir einfaldar. Nýjasta skáldsaga Vigdísar Grímsdóttur hefiir hlotið einstaka dóma gagnrýnenda. Iðunn Steinsdóttir Haustgríma Örstutt ffásögn úr fomum ritum verður Iðunni Steinsdóttur uppspretta að áhrifamiklu skáldverki um baráttu mæðra, feðra, dætra og sona í vægðarlausri veröld átaka og andstæðna - veröld allra tíma. Haustgríma er ekki saga um glæstar hetjur sem ríða um héruð, heldur um ffamtíðarhallir sem hrynja til grunna á einu andartaki og sterkar tilfinningar. Mikil örlög eru stundum fólgin í fáum orðum. IÐUNN

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.