Morgunblaðið - 17.12.2000, Síða 14
14 SUNNUDAGUR 17. DESEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
IÞROTTIR
Bandarískur körfuknattleiksdómari var í stuttri heimsókn á Islandi
„Verður að hugsa vel um
íslensku leikmennina“
Unglingalið til Danmörku
SIGURÐUR Hjörleifsson þjálfari
unglingalandsliðsins í körfuknattleik
hefur valið landsliðshópinn sem tekur
þátt í Polar Cup mótinu í Kaup-
mannahöfn milii jóla og nýárs.
Til stóð að velja 12 leikmenn en
vegna meiðsla voru 14 leikmenn vald-
ir og síðan fækkað um tvo áður en lagt
verður í hann til Kaupmannahafnar.
Eftirtaldir leikmenn voru valdir:
Fannar Helgason, ÍA, Magnús
Pálsson og Pálmar Ragnarsson,
Fjölni, Jón Brynjai- Óskarsson og Jón
Hrafn Baldvinsson, KR, Sævar Har-
aldsson og Kristinn Jónasson, Hauk-
um, Ólafur Aron Ingvason og Guð-
mundur Jónsson, Njarðvík, Einir
Guðlaugsson, Birkir Guðlaugsson og |
Kjartan Kjartansson, Stjömunni, og
Þorleifur Ólafsson og Davíð Her-
mannsson, Grindavík.
BANDARÍKJAMAÐURINN Herman Maurice Dade var hér á landi í
stuttri heimsókn á dögunum. Herman, sem er körfuknattleiksdóm-
ari í heimalandi sínu, kom til að heimsækja son sinn, Chris Dade,
sem er leikmaður með úrvalsdeildarliðinu Hamri í Hveragerði.
Herman, sem er 44 ára, er búsettur í Dallas og er Chris einn af fimm
bömum hans. Hann dæmir í háskólakörfuknattleik leiki liða eins og
Jarvis og Langston sem keppa í NAIAI sem er sjálfstæð háskóla-
deild trúaðra skóla, ásamt því að dæma í JR. Collage I deildinni og
deild III í háskólakörfunni.
Herman sagðist hafa komið til ís-
lands eingöngu til að hitta son
sinn og sjá hvemig honum gengi
með liði sínu í
Hveragerði. „Þá
Helgi vildi ég sjá með eigin
Valberg augum hvort hann
er góður atvinnu-
leikmaður og hvort hann hefur burði
í að stefna eitthvað hærra. Þá lang-
aði mig að kynnast fólkinu í Hvera-
gerði, sem hefur verið honum ein-
staklega gott og aðstoðað hann á
allan hátt. Lárus Friðfinnsson, for-
maður körfuknattleiksdeildarinnar,
hefur reynst honum einstaklega vel
og á hann fáa sína líka,“ segir Her-
man.
Dómari verður að
vera sanngjam
Herman byrjaði körfuboltaferil-
inn á bekknum með liði sínu, hann
var sá leikmaður sem fór örsjaldan
inn á og tók þá upp á að fylgjast með
þjálfaranum. Hann þjálfaði síðan
13-14 ára stráka JR. College á sama
tíma og hann dæmdi. Þá tók hann þá
ákvörðun að taka dómgæsluna fram
yfir - þar sem mikill tími fór í þjálf-
unina, en hann vinnur fulla vinnu
sem rafmagnsverkfræðingur.
Það liggur fyrst fyrir að spyrja
Herman hvemig honum haf! fundist
íslensku dómaramir, sem hann sá í
starfi, standa sig? „Dómarar verða
að vera sanngjamir og samkvæmir
sjálfum sér. Dómaramir sem
dæmdu leik Hamars og Vals vom
mjög sanngjamir og stóðu sig vel í
leiknum, að mínu mati. Dómari er
mikilvægasti maðurinn á vellinum
og það veltrn- mikið á honum hvort
leikurinn verður góður eða ekki.“
Herman segir að á körfúknatt-
leiksleikjum í Bandaríkjunum séu
þrír dómarar sem dæmi, en ekki
eins og hér, tveir dómarar. „Það er
sama hvað dómaramir era margir,
aðalatriðið era að þeir séu sam-
kvæmir sjálfum sér og í góðri æf-
ingu til að takast á við erfiða kapp-
leiki. Það er mikil krafa heima að
dómaranir séu í góðri þjálfun - ef
þeir era það ekki hafa þeir ekkert að
gera á vellinum. Dómuram er kennt
að hafa augun opin - við verðum að
fylgjast með öllu sem fram fer á
vellinum og við eigum að geta haft
skoðanaskipti við leikmenn ef svo
ber undir. Það þýðir ekki að vera
stoltur dómari sem talar ekki við
einn eða neinn, jafnvel ekki sinn eig-
inn meðdómara. Dómarar verða að
geta viðurkennt ef þeir gera mistök
og láta ekki eins þeir séu einhverjir
kóngar. Mér sýnist dómarar íslandi
hafa sama hátt á og við úti í Banda-
ríkjunum og mér líkar það vel.“
Sást þú eitthvað í dómgæslunni
sem betur mætti fara?
„Nei, það var í raun ekkert sem
mér leist illa á. Dómarar verða hins-
vegar að gera sér grein fyrir að
körfuboltinn á íslandi er sífellt að
verða betri og þá verða dómaramir
líka að vera betri. Fleiri erlendir
leikmenn koma hingað og smám
saman færist körfuboltinn á annað
og hærra plan. Þeir sem leggja
stund á dómgæslu verða að fylgjast
með og halda áfram að mennta sig.
Maður verður aldrei fullnuma í
þessum fræðum."
Verður að hugsa vel um
íslensku leikmennina
Hermann sagði að bandarískum
leikmönnum, sem hafa komið og
leikið á íslandi, þætti gott að geta
sýnt fram á það í leikferilsskrá sinni
að þeir hefðu leikið á Islandi. Leik-
menn hafa mikið sótt til landa eins
og Taívan, Kína, Póllands sem og
Evrópulandanna. Það er eitthvað
við íslenskan körfuknattleik sem
menn heillast af og margir leikmenn
vilja komast til íslands."
Herman segir að íslenskur körfu-
knattleikur ætti ekki að treysta of
mikið á erlenda leikmenn. „Það
verður að hugsa vel um íslensku
leikmennina og kappkosta að gera
þá betri. íslendingar eiga fomt
tungumál og það má líkja málinu við
leikmennina hér - það má ekki van-
rækja þá, heldur að hlúa að þeim.
Það verða alltaf íslenskir leikmenn
sem koma til með að bera upp körfu-
knattleikinn hér. Ef liðin halda sig
við einn til tvo erlenda leikmenn era
liðin á þokkalegri braut - en ef þeir
era fleiri er hætt við að þeir íslensku
nái ekki að sýna hvað í þeim býr. Ég
þekki það frá háskólaboltanum. Ef
leikmaður er góður - verður hann
uppgötvaður, sama hvar hann er.
Hann verður hins vegar að fá tæki-
færi til að sýna hvað í honum býr.“
Sástu leikmenn hér sem gætu
spjarað sig með háskólaliðum í
Bandaríkjunum?
„Ég tel að í hveiju liði séu fimm
leikmenn sem gætu gert ágæta hluti
úti í Bandaríkjunum. í Hamri og Val
vora tveir leikmenn sem báru af,
Pétur Ingvarsson og Herbert Arn-
arsson. Ef þeir væra aðeins yngri
væri ég búinn að hringja í þjálfara
úti og benda honum á þá. Þannig
virkar einmitt þessi markaður. Það
kemur einhver, sér þig spila og
hrífst af þér - svo er aldrei að vita
hvað gerist.“
Feðgamir Herman Maurice Dade og Chistopher, leikmaður með Hamri i Hveragerði.
Eriendir leikmenn í
Bandaríkjunum
ÞAÐ verður öflugur flokkur er-
lendra leikmanna, sem leikur í
hinni nýstofnuðu bandarisku at-
vinnumannadeild í knattspymu
kvenna. Ásthildur Helgadóttir er
þar í hópi bestu knattspyrnu-
kvenna heims, sem verða í sviðs-
ljósinu þegar deildin hefst í apríl.
Hér er listinn yfir þær stúlkur,
frá tólf löndum fyrir utan Banda-
ríkjanna, sem vora valdar til að
leika í nýju deildinni:
Kína (5): Sun Wen, Liu Ailing,
Fan Yunjie, Gao Hong, Wen Lir-
ong.
Þýskaland (3): Bettina Wieg-
mann, Maren Meinert, Doris
Fitschen.
England (1): Kelly Smith.
Svíþjóð: (2): Kristin Bengtson,
Ulrika Kárlsson.
Noregur (5): Dagny Mellgren,
Bente Nordby, Hege Riise, Ann
Kristin Aarones, Gro Espéseth.
Finnland (1): Anne Makinen.
Ástralía (1): Julie Murray.
Kanada (5): Sharlota Nonen,
Amy Walsh, Sylvana Burtini,
Charmaine Hooper, Karina La
Blanc.
Danmörk (1): Mikka Hansen -
lék með Erlu Hendriksdóttur í
FB á síðasta tímabili.
Japan (1): Homare Sawa.
ísland (1): Ásthildur Helgadótt-
ir.
Brasilía (4): Katia, Sissi, Pret-
inha, Roseli.