Morgunblaðið - 17.12.2000, Síða 20
20 SUNNUDAGUR 17. DESEMBER 2000
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ
„Blómið sem þú
gafst mér“ -1 minn-
ingu Nínu Bjarkar
DAGSKRA Listaklúbbs Leikhús-
kjallarans annaðkvöld, mánu-
dagskvöld, verður helguð minn-
ingu, skáldkonunnar Nínu
Bjarkar Arnadóttur, sem lést í
apríl á þessu ári.
Einlæg og nærgöngul ljóð Nínu
Bjarkar tjá sterkar tilfinningar
og áhrifamikla sýn á ástina, ótt-
ann, samfélagið og hlutskipti
kvenna. Fyrsta ljóðabók Nínu
„Ung ljóð“ kom út 1965, en sjálf
sagðist hún hafa ort frá unga
aldri. Nína var fjölhæfur lista-
maður, fyrir utan ljóðlistina skrif-
aði hún skáldsögur og viðtalsbæk-
ur að ógleymdum leikritum
hennar sem hafa verið færð upp
hjá atvinnuleikhúsum jafnt og
frjálsum leikhópum. Einnig var
Nína mikilvirkur þýðandi fagur-
bókmennta.
Fjöldi listamanna tekur þátt í
dagskránni annaðkvöld. Flytjend-
ur ljóða og óbundins máls eru:
Guðbergur Bergsson, Helga
Bachmann, Linda Vilhjálmsdótt-
ir, Elísabet Jökulsdóttir, Erling-
ur Gíslason, Hjalti Rögnvaldsson,
Ólafía Hrönn Jónsdóttir og Karl
Guðmundsson.
Jón Proppé, ritstjóri ljóðabók-
arinnar „Blómið sem þú gafst
mér“ og gefin er út af JPV for-
lagi, hefur umsjón með ljóðadag-
skránni.
í seinni hluta dagskrárinnar
verða leiklesin brot úr áður óbirtu
Nína Björk
Árnadollir
leikriti eftir
Nínu „Reiki-
stjörnum"
(1998) ílytjend-
ur eru: Edda
Heiðrún Back-
man, Þóra Frið-
riksdóttir, Sig-
urður Skúlason,
Guðrún Gísla-
dóttir, Sigurður
Siguijónsson og
Herdís Þorvaldsdóttir. Leikstjóri:
Tinna Gunnlaugsdóttir.
„Súkkulaði handa Silju“ var
frumsýnt í Þjóðleikhúsinu 1982.
Anna Kristín Arngrímsdóttir,
Þórunn Magnea Magnúsdóttir og
Egill Ólafsson, sem öll voru í sýn-
ingunni þá, munu flytja ásamt
Eddu Björgu Eyjólfsdóttur kafla
úr leikritinu í tali og tónum. Tón-
listamennirnir Carl Möller, Guð-
mundur Steingrímsson og Birgir
Bragason leika lög eftir Carl
Möller, sem samin voru við ljóð
Nínu og hún ásamt fleirum las inn
á geislaplötu, en hún er væntan-
leg á markað von bráðar. Um-
sjónarmaður Listaklúbbsins er
Helga E. Jónsdóttir.
Dagskráin hefst kl. 20.30 en
húsið verður opnað kl. 19.30.
Aðgangseyrir er 1.000 krónur
en 500 krónur fyrir skólafólk og
klúbbfélaga.
Allir velkomnir meðan húsrúm
leyfir.
Listir sameinaðar
vísindum
HARLA óvenjuleg sýning stendur
nú yfir í galleríi einu í borginni
Búkarest í Rúmeníu. I sölum Neð-
anjarðarsafnsins eru nefnilega
2.000 hauskúpur til sýnis og segja
stjórnendur sýningarinnar til-
ganginn vera að leita leiða til að
sameina listir og vísindi.
Ilauskúpurnar eru allar í eigu
Rainer-mannfræðistofnunarinnar
en Francisc Rainer er álitinn faðir
mannfræðirannsókna í Rúmeníu.
Ahuga-
mannasin-
fónían spilar
í Neskirkju
SINFÓNÍUHLJÓMSVEIT áhuga-
manna heldur tónleika í Neskirkju í
dag, sunnudag, kl. 17.
Stjórnandi er Ingvar Jónasson.
Einleikarar eru Ari Þór Vilhjálms-
son, Elfa Rún Kristinsdóttir og Ing-
rid Karlsdóttir á fiðlur og Tóri Rest-
orff Jacobsen á selló. Inga Backman
syngur einsöng.
A efnisskránni eru Concerto
grosso op. 3 nr. 11 eftir Antonio Viv-
aldi, Romansa fyrir fiðlu með hljóm-
sveitarundirleik í F dúr op. 50 eftir
Ludwig van Beethoven, og Jólakant-
ata fyrir sópran og hljómsveit eftir
Jakob Hallgrímsson við ljóð eftir
Stefán frá Hvítadal.
Sinfóníuhljómsveit áhugamanna
hefur starfað síðan 1990 og hélt ný-
verið upp á 10 ára afmæli sitt með
tónleikum í Háskólabíói. Hana skip-
ar áhugafólk í hljóðfæraleik auk
nokkurra tónlistarkennara og nem-
enda. Hljómsveitin kemur fram
nokknim sinnum á ári, á sjúlfstæð-
um tónleikum, með kórum eða við
önnur tækifæri. Aðgangseyrir er
1.000 krónur, frítt fyrir börn, 500 kr.
fyrir eldri borgara og nemendur.
Þjónustustúlkan sem hvarf
GRACE
ROSNER
Kvensíðbuxur
þrjár skálmalengdir
mikið úrval
Suðurlandsbraut 50, sími 553 0100,
(bláu húsin við Fákafen).
Opiö virka daga 10-18, laugard. 10-16.
www.mbl.is
Vinakvöld
á aðventu
HIÐ árlega Vinakvöld á aðventu
Kóra Flensborgarskólans verður
haldið annað kvöld, mánudags-
kvöld, kl. 20.
Með kórunum koma fram hljóð-
færaleikararnir Erla Þórólfsdóttir
og Eyjólfur Eyjólfsson. Vinakvöld-
ið er öllum opið og er aðgangur
ókeypis.
Samkvæmt venju munu kór-
félagar selja kaffi og meðlæti í
híéi.
Stjórnandi kóranna er Hrafn-
hildur Blomsterberg.
ERLENDAR
BÆKUR
Spennusaga
„RUNNING FOR
SHELTER"
Eftir Michelle Spring. Fawcett
Mystery 2000.235 síður.
MICHELLE Spring er höfundar-
nafn bandarísks spennusagnahöf-
undar sem býr í Bretlandi og lætur
sögur sínar gerast þar. Hið rétta nafn
hennar er Michelle Stanworth, hún er
félagsfræðingur að mennt og hefur
starfað sem kennari og rithöfundur í
aldarfjórðung en er núna prófessor
við háskólann í Cambridge. Hún hef-
ur skrifað nokkrar bækur um einka-
spæjara sem hún nefnir Láru Princi-
pal en fjórða bókin um hana, Running
for Shelter, kom út fyrir skemmstu í
lögjóhmns G. Jóhmnssonar, tóníistarstjóra Þjóðíeikhússins, við tjóð Þóraritts Eícíjáms.
Tónskáldið er ekki aðeins með skondin og góð lög, útsetningarnar eru frábœrar og þœr - ásamt
góðum flutningi - gera útslagið.... Tónlistin (mjög skemmtilega og „leikhúslega“ útsett) mœtir
textunum á miðri leið ogfer þeim einstaklega vel í mjög góðum flutningi allra, sem koma úr
„landsliði“ söngvara og Jlytjenda.
. Oddur Bjömsson í Mbl. 13.12.2000
’s( borrtd tjoö
www.heimur.is
Hljómsveit:
Bryndís Pálsdóttir, fiðla.
Jóhann G. Jóhannsson, píanó,
Richard Korn, kontrabassi, og
Sigurður Flosason, saxófónn,
Söngvarar:
Bergþór Pálsson,
Edda Heiðrún Backman,
Marta Guðrún Halldórsdóttir,
Sigrún Hjálmtýsdóttir, Diddú,
Stefán Karl Stefánsson
Örn Árnason,
Dreifing: JAPISS
vasabroti hjá Fawcett-útgáfunni.
Hún segir af ungri þjónustustúlku frá
Filippseyjum sem hverfur með dul-
arfullum hætti í London.
Sagnfræðingur gerist spæjari
Einkaspæjarinn Lára Principal fór
1 spæjarastarfið af einskærum áhuga
og rekur spæjarastofu ásamt ástvini
sínum og vinkonu. Hún segir
spæjarastarfið aðeins snúast að hálfu
leyti um eiginleg spæjarastörf, allt
hitt fer í „hversdagslega hluti sem
hvaða pípulagningamaður sem er
þekkir". Hún var áður gift manni að
nafni Adam, þau voru sagnfræðingar
bæði, en honum leist ekki á spæjara-
störfin og lét sig hverfa; sagði konur
ekki eiga heima í einkaspæjarastétt.
Lára hafði mjög skýrt mótaðar hug-
myndir um spæjara áður en hún byrj-
aði og tengjast þær sterkt ímynd sem
við þekkjum öll úr bíómyndum.
„Skuggalegir, litlir menn, kaldhæðn-
islegii- með flotta hatta og sígarettu í
munnvikinu.“
Lára er ekki af þeirri gerðinni.
Hún er nútímakona sem ræður sér
sjálf og lítur upp til P. I. Warshawsk-
is, eins kunnasta kvenspæjara reyf-
arabókmenntanna. Hún er því miður
ekki nándar nærri eins skemmtileg.
Fyi-ir það fyi-sta er hún nær alfarið
húmorslaus í fyrstu persónu frásögn
sinni og sérstaklega upptekin af smá-
atriðum sem skipta í raun engu máli
en lengja söguna og teygja eiginlega
út í það óendanlega. Fyrir bragðið
verður bókin aldrei spennandi þótt
ágætis efniviður sé í raun á ferðinni.
Sakamálið dregst á langinn í flatri og
lítt áhugaverðri frásögn Láru, sem
drukknar í smáatriðum þangað til
y^M-2000
17. desember
LANGHOLTSKIRKJA KL. 16
Kammersveit Reykjavíkur
Jólatónleikar helgaóir verkum J. S.
Bach í tilefni 250 ára ártíóarhans og
útgáfu Kammersveitarinnar á Brand-
enborgarkonsertum Bachs. Kamm-
ersveitin hefur fengið hinn þekkta
fiðluleikara Reinhard Goebel til aö
stjórna Kammersveitinni á þessum
tónleikum. Hann er þekktur sem
einn affrumkvöðlum í flutningi bar-
okktóntistar á gömul hljóðfæri og
hefur undanfarinn aidarfjóröung
stjórnað og leikið með hinni frægu
hljómsveit Musica Antiqua Köln.
Hljómsveitarsvítur i—iV BWV1066-
1069. Einleikari: Martial Nardeau,
ftauta. Stjórnandi: Reinhard Goebel.
Liðurí Stjörnuhátíð Menningarborg-
arinnar.
HÁSKÓLABÍÓ
Hvítir hvalir - kvikmyndir Friðriks
Þórs í 25 ár
21:00 On Toþ/ Skytturnar - 80 mín
1987
áhuginn á þjónustustúlkunni sem
hvarf gufar eiginlega upp.
Þjónustustúlka hverfur
KannsM það hafi líka eitthvað að
gera með hvemig höfundurinn virðist
vanda sig sérstaklega við að skrifa
góðan texta sem virkar ákaflega fág-
aður en líka eins og leiðinleg tilgerð.
Þannig er að Lára fær það verkefni
að aðstoða frægan leikhúsmann að
nafni Thomas Butler og kynnist ör-
stutt þjónustustúlku hans. Hún biður
Láru um að hjálpa sér að hafa uppi á
peningum sem hún átti en svo gerist
það að stúlkan hverfur við dularfullar
kringumstæður og Butler-hjónin
reyna að láta eins og hún hafi aldrei
verið tiL
Við það eykst áhugi Láru á málinu
enn frekar og hún heldur í mikla leit
að stúlkunni og ástæðunum fyrir
hvarfi hennar og koma ófáir aðilar við
þá sögu alla.
Einstaka aukapersónur vekja
áhuga eins og gamall maður sem
breytt hefur nafni sínu í Martin
Scorsese og situr allan daginn og
horfir á myndir Scorseses. Einnig er
Michelle Spring að velta fyrir sér
áhugaverðum hlutum sem tengjast
stöðu þjónustufólks af erlendum upp-
runa í Bretlandi, er samkvæmt bók-
inni býr við heldur aum kjör, rétt-
indalaust og eiginlega hneppt í
þrældóm.
Sú saga nær þó aldrei að snerta við
manni, ekM frekar en annað í sögu
þessari sem hefði þurft á góðri rit-
stjórn að halda til þess að skerpa lín-
umar, draga fram aðalatriðin og
klippa burtu óþarfann.
Arnaldur Indriðason