Morgunblaðið - 17.12.2000, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 17.12.2000, Blaðsíða 22
22 SUNNUDAGUR 17. DESEMBER 2000 LISTIR MORGUNBLAÐIÐ Picasso vakir yfir verkum sínum Mynd af Pablo Picasso vakir yfir tveimur listaverkum hans meðan þau bíða þess að verða hengd á veggi listasafnsins í Ankara. Tyrkneska Iögreglan handtók smyglara fyrir nokkru í suðaust- urhluta landsins með fjögur mál- verk eftir Picasso. Það er hald manna að þeim hafi verið stolið í Kuwait á tímum Persaflóastríðsins og nú hafi ætlanin verið að selja málverkin í Evrópu. Reuters „Vona að fölkið á Hrauntjörn verði kyrrt“ Guðrún Helgadóttir var að láta frá sér skáldsöguna Odda- flug nú á dögunum og kemur hún út á veg- um Vöku-Helgafells. Er þetta fyrsta skáld- saga hennar sem ekki er ætluð börnum sér- staklega, og kaus Guðrún sjálf að kalla hana fjölskyldusögu þegar blaðamaður tók tal af henni einn eftirmiðdaginn. Frásagnarháttur- inn í bókinni er sam- settur og fær hver persóna að segja sína hlið á mál- unum. Ur verður margradda saga og lék blaðamanni forvitni á að vita hvort slík uppsetning hafi ekki reynst erfið viðfangs? Guðrún sam- sinnti því. Vissulega væri hér á ferð- inni margradda saga og hafi henni ekki þótt annað hægt en að byggja þessa ættarsögu upp með slíku móti. „Mesti vandinn var að setja saman byggingu sögunnar, en þegar hún var risin varð eftirleikurinn auðveld- ur. Sagan streymir aldrei fram hjá mér fyrr en samhengið er orðið ljóst, þá fyrst fær þessi skringilegi sagnarandi lausan tauminn." Sagði hún það jafnframt vera henni með öllu óskiljanlegt hvaðan sagan kæmi hverju sinni og íhugaði hvort einhver aukafálmari eða auka- rás réði þessu. Guðrún sagðist hafa kappkostað að gera byggingu sög- unnar sem best úr garði svo að ólík- ar raddir sögupersóna gætu tekið til máls án þess að sögusviðið hryndi til grunna eða yrði ruglingslegt. „Það kom mér reyndar á óvart að ekki skuli hafa vafist fyrir mönnum að átta sig á skyldleika þessara fjölmörgu per- sóna og hver það væri sem tæki til máls hverju sinni.“ Hún sagðist til hægðarauka hafa látið skýringarmynd fylgja framan við sjálfa sög- una, en svo virtist sem fæstir hefðu haft einhver not fyrir hana. Guðrún sagðist ennfremur hafa gert sér far um að setja fram skýra sviðsetningu, nánast ljóslifandi á stundum, svo lesendur gætu fylgst með sam- skiptum persóna líkt og væru þær staddar á leiksviði. Með þeim hætti gengi margröddunin bet- ur upp en ella. Persónumar búa saman á Hrauntjöm, gömlum og hlýlegum bæ, sem er svo sannarlega rissaður upp fyrir augliti lesanda í rás sögunnar. Þögn um það sem máli skiptir Sögupersónur, þó að margar séu, eru nákomnar, búa nánast undir sama þaki og hafa tíð samskipti. Samt sem áður þegja þær oftar en ekki um það sem máli skiptir og brennur á þeim hveiju sinni. „Þegar fólk hefur svo náið samneyti skapast kannsld aldrei meiri þörf fyrir að virða leyndarmál hvert annars. Það má vera að þögnin og leyndarmálin séu ástæðan fyrir því að þessar kyn- slóðir geti lifað í sátt og samlyndi undir því sem næst sama þaki.“ Guðrún kvaðst þó ekki síst hafa verið að velta fyrir sér því sem hreinlega er hægt að vekja máls á og svo aftur því sem með engu móti má koma orðum að. Sumt er betur látið ósagt, en annað ekki. Á sögu- sviðinu er margt gefið í skyn og fell- ur það iðulega í hlut lesanda að fylla inn í eyðumar þegar persónumar tala í hálfkveðnum vísum. Persón- urnar tala gjaman með sjálfum sér og taka afstöðu til annarra persóna og sögusviðsins. Með því móti áskotnast lesanda veigamiklar upp- lýsingar. Blaðamanni þótti því líkast sem Guðrún gerði sér far um að Uá öllum persónum rödd, að hver og einn nyti sannmælis. Það væri ekki fyrr búið að birta einhveija persónuna í óhag- stæðu Ijósi, en hún tæki til máls og bæri hönd fyrir höfuð sér. Vakti eitt- hvað slíkt fyrir Guðrúnu þegar hún setti saman þessa margradda frá- sögn? „Eg hef trú á því að eitthvað gott búi með öllum og að góður vilji búi jafnan að baki því sem komið getur fyrir sjónir sem slæm breytni. Sú sannfæring útheimti þessa upp- byggingu." Er sagan hefðbundin? Blaðamað- ur bar það á borð fyrir Guðrúnu hvort sagan væri hefðbundin, jafn- vel íhaldssöm? Hún hampar stórfjöl- skyldunni, heldur í heiðri gamaldags gildi um tryggð við jörðina og átt- hagana. Eða er samspilið í sögunni kannski flóknara en svo? „Mér þykir ekkert athugavert við að halda í heiðri slík gildi og setja stórfjölskylduna á dálítinn stall. Eg held að engu foreldri sé hollt að axla einsamalt ábyrgðina á bami sínu, heldur beri að dreifa henni meðal ættingja. Það er hreinlega til of mik- ils mælst að foreldrar sjái einir síns liðs um bamið og allt annað sem við kemur heimilishaldinu, og kemur það baminu ekki síst til góða að geta leitað til annarra en foreldranna." Guðrún sagðist ennfremur hafa vilj- að skrifa sögu um gamla konu. Konu sem heldur í heiðri gildi sem hún trúir á og gæðir þau lífi með því við- horfi sínu. „Mér þykir óþolandi að horfa upp á þegar gamalt fólk er sett fram sem einhvers konar fyrr- verandi fólk í sögum. Mér þykir þarft að beina sjónarhominu að hversdagslegu gleðiefni og hörmum eldri konu, sem á reyndar mun fleira sameiginlegt með ungu fólki en það gerir sér grein fyrir. Aðalpersónan í sögunni er fjörgömul, en hefur sig til líkt og hver annar og er jafnvel hé- gómagjöm á stundum." Guðrún sagði ungt fólk oft hafa undarlegar hugmyndir um líf eldra fólks, kannski vegna þess að það fái svo sjaldan að sjá sjónarhom þeirra. Hefðbundin saga eða ekki, Guðrún vildi ekki taka af skarið um það, en vonaðist einfaldlega til þess að sag- an kæmi til með að skemmta fólki og vekja það til umhugsunar um sitt- hvað í tilverunni: Leiðinlegar bækur em vondar bókmenntir. Bók sem gleymist um leið og lestri lýkur, er lítils virði. Góð bók finnur sér sama- stað í hugarheimi okkar og er þar. Eg vona að fólkið á Hrauntjöm verði kyrrt.“ Guðrún Helgadóttir „Ó, hvað þetta er fallegt“ ANNAR geisladiskurinn í heild- arútgáfu verka Jórunnar Viðar, Slátta, kom nýverið út hjá Smekkleysu. Á honum eru fjög- ur verk Jórunnar, samin á árunum 1963-1977. Útgáfu- röðin hófst með disknum Únglíngur- inn í skóginum sem út kom fyrir tveimur áram og innihélt tuttugu sönglög tón- skáldsins og væntan- legir era a.m.k. tveir diskar til viðbótar; sá næsti með tveim- ur ballettverkum og einu kórverki og hinn fjórði með þul- um og kvæðalögum í útsetningum Jór- unnar. Titilverkið, Slátta, er konsert fyrir píanó og hljómsveit. Ein- leikari með Sinfóníuhljómsveit íslands er Steinunn Birna Ragn- arsdóttir og stjórnandi er Petter Sundquist en verkið var flutt á tónleikum hljómsveitarinnar í júní 1999. Það var hins vegar tónskáldið sjálft sem fmmflutti verkið með Sinfóníuhljómsveit- inni í Háskólabíói árið 1977. „Næst spilar þú píanó- hlutverkið, Steinunn mín“ „Þá var það Steinunn Bima sem fletti hjá mér. Hún var þá ung að ámm, nemandi í Tónlist- arskólanum. Þegar ég átti í mesta baslinu einhvers staðar í lok fyrsta þáttar heyrði ég hana stynja: „Ó, hvað þetta er fal- legt.“ Það fór unaður um mig - og ég komst í gegnum þetta. Á eftir sagði ég við hana: „Næst þegar þetta verður flutt spilar þú píanóhlutverkið, Steinunn mín. Og það gerði hún,“ segir Jórann og brosir. „Steinunn er stórskemmtilegur píanóleikari og svo spilar hún af lífi og sál,“ bætir hún við. I bæklingi sem fylgir geisladisknum er eftirfarandi haft eftir tónskáldinu um píanó- konsertinn. „Ætlun mín var að verkið sameinaði hefðbundið form píanókonserts og sérkenni úr íslenska músíkarfinum. Fyrsta stefið í fyrsta þætti ber í sér hið einfalda lag stemmunnar, en hleður brátt utan á sig. Annað stefið er söngrænna og síðan leik ég dálítið með taktskipti. Annar þáttur er hægur og syngjandi og þriðji þáttur er fjörugur vikivaki í rondo-formi.“ Tilbrigði við kvæðalag Nathans Ketilssonar Annað verkið er Tilbrigði við gamalt íslenskt kvæðalag fyrir selló og píanó. Á sellóið leikur Lovísa Fjeldsted, dóttir tón- skáldsins, og Steinunn Birna á píanó. „Þetta eru tilbrigði við kvæðalag Nathans Ketilssonar, sem mér finnst eitt unaðslegasta íslenskt lag sem til er. Ég samdi tilbrigðin á nokkrum dögum árið 1965. Lagið hafði svo óendanlega marga möguleika og ég var búin að gera miklu fleiri tilbrigði en fannst það vera orðið óþarflega langt. Eitt tilbrigðanna hélt Lov- ísa dóttir mín langmest upp á og hún flytur það alltaf með þegar hún spilar tilbrigðin á tónleikum en hún hefur m.a. flutt þau víða á Norðurlöndum. Hún er sú eina sem hefur þetta tilbrigði með. Ég ætlaði að sleppa því en hún heimtaði að hafa það með og spilar af hjartans einlægni - og þær Steinunn era mjög samhentar,“ segir Jórunn. Stemma í sérkennilegum takti úr Mýrdalnum Númer þrjú í röð- inni eru Hugleiðing- ar um fimm gamlar stemmur fyrir píanó í flutningi Valgerðar Andrésdóttur. „Hún spilar þetta feikna- vel. Valgerður hefur flutt þetta verk víða og nálgast það af svo skemmtilegum áhuga. Hún vill komast til botns í því hvaðan þessar stemmur koma og hvernig á að flytja þær,“ segir Jómnn. „Það er svona ótuktarleg tækni í þessu - eins og píanóleikarar geta gert hverjir öðmm,“ bætir hún við. Hugleiðingarnar má rekja til ársins 1963. „Þetta em alveg rammíslensk lög. Síðasta stemm- an er úr Mýrdalnum og systir mín, Drífa, lærði hana þegar hún var þar í kaupavinnu. Það var gömul kona sem lá í kör og söng þessa stemmu allan liðlangan daginn í sérkennilegum takti: Ég er að flaaakka eins og svín, út um baaakka og heim til mín ...“ raular Jórunn og slær um leið taktinn. „Það er einn tónn í hverri línu sem á að draga svolít- ið - eiginlega á maður að leggj- ast á þennan langa tón,“ útskýrir hún. „Þessi stemma hefur svo sérstakan takt og þetta er ein- mitt það sem við, sem skrifum upp gömul lög, eram skyldug til að varðveita, því þessi taktur er í útrýmingarhættu," segir hún. „Laufey er með þetta í blóðinu“ Fjórða og síðasta verkið á disknum er svo íslensk svíta fyr- ir fiðlu og pianó (þjóðlífsþættir), í flutningi þeirra Laufeyjar Sig- urðardóttur og Selmu Guð- mundsdóttur. Svítuna samdi Jórunn að beiðni Ríkisútvarpsins fyrir þjóðhátíð 1974 en nokkmm tónskáldum var þá falið að semja tónlist í tilefni tímamótanna til flutnings í útvarpi. „Vegna þess að þarna átti að minnast 1100 ára afmælis byggðar á íslandi fannst mér það verða að vera um þjóðlífið. Fyrsta kaflann kalla ég Ávarp, því þá hugsa ég mér að verið sé að ávarpa lýðinn á þingstaðnum, svo er Óttusöngur og stilla á vatninu. Því næst Þjóðlag, „Hættu að hrína Mangi minn“ með ótal stílbrögðum, þá Fiðlu- lag og að lokum er stiginn Viki- vaki, sem er dans okkar íslend- inga,“ segir Jórunn. Hún segir samleik þeirra Laufeyjar og Selmu aldeilis frá- bæran. Sú fyrrnefnda hefur reyndar margoft flutt svítuna með ýmsum píanóleikuram. „Laufey er með þetta í blóðinu síðan hún heyrði Björn Ólafsson flytja þetta. Ég held meira að segja að hún hafi flett hjá okk- ur,“ segir Jórann, sem sjálf lék á píanóið þegar verkið var tekið upp árið 1974. Jórunn Viðar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.