Morgunblaðið - 17.12.2000, Page 30
30 SUNNUDAGUR 17. DESEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
Morgunblaðið/Jim Smart
Framkvæmdastjórn Eignarhaldsfélags ÓJK, Agnar H. Johnson, Þór Kristjánsson og Friðþjófur Ó. Johnson.
SPROTAR VAXA AF
GÖML UM MEIÐI
vjDsnm/mamuúF
Á SUNNUDEGI
► Agnar H. Johnson er fæddur árið 1958. Hann er tölvunar-
fræðingur frá HÍ og rekstrarverkfræðingur frá háskólanum í
Álaborg. Frá 1999 hefur Agnar setið í stjórnum Ó. Johnson &
Kaaber og dótturfyrirtækja og er nú að fullu kominn þar til
starfa. Áður starfaði Agnar hjá Skímu, Landssímanum og var
forstöðumaður tölvudeildar Landakotsspítala.
► Friðþjófur Ó. Johnson er fæddur árið 1956. Hann er við-
skiptafræðingur frá HÍ, lauk MBA-prófi í frumkvöðlafræðum,
stjórnun og markaðsfræðum frá Babson College í Bandaríkj-
unum. Hann hefúr starfað hjá Pilsbury Company, Hewlett-
Packard í Danmörku og er annar tveggja stofiienda Hewlett-
Packard á fslandi. Friðþjófur hefúr verið forstjóri Ó. Johnson
& Kaaber frá árinu 1992.
► Þór Kristjánsson er fæddur árið 1964. Hann er viðskipta-
fræðingur frá HÍ. Þór var fjármálastjóri hjá Heimilistækjum
og Bílaumboðinu. Hann hefur verið aðalíjármálastjóri ÓJ&K, y
Heimilistækja og tengdra félaga frá 1999 og situr nú í fram- (
kvæmdasljórn Eignarhaldsfélags ÓJ&K jafnframt því að vera
framkvæmdasljóri dótturfélagsins HÓP Rekstrarfélags ehf.
eftir Arnór Gísla Ólafsson
OJ0HNS0N & KAABER
var stofnað árið 1906 af
Ólaf! Johnson og Ludvig
Kaaber og var fyrirtækið
fyrsta alíslenska heildsalan. Heim-
ilistæki voru stofnuð árið 1962 af
nokkrum hluthöfum Ó. Johnson &
Kaaber um það leyti sem fyrirtækið
varð umboðsaðili Philips á íslandi.
Nú 94 árum eftir stofnun Ó.J.&K er
velta félagsins um þrír milljarðar
króna og starfsmenn 140 talsins en
aukingin í veltu hefur verið 15 til
25% á ári undanfarin ár.
Gagnger endur-
skipulagning félagsins
Friðþjófur, Agnar og Þór segja að
þetta ár hafí verið mikið umbylting-
arár í rekstri fyrirtækisins enda hafi
verið unnið hörðum höndum að því
að endurskipuleggja fyrirtækið frá
grunni. „Við stofnuðum Eignar-
haldsfélag Ó. Johnson & Kaaber um
eignir og rekstur allra fyrirtækj-
anna í byrjun ársins. Eignarhalds-
félagið keypti öll hlutabréf í Heim-
ilistækjum og Kaffibrennslunni. í
skiptum fyrir bréfín fengu hluthafar
hlut í eignarhaldsfélaginu. Við sitj-
um þrír í framkvæmdastjóm Eign-
arhaldsfélagsins og mótum stefnuna
með aðalstjóm. Við vinnum í senn
náið saman og skiptum þó með okk-
ur verkum og það má segja að sú
skipting endurspegli þá menntun
sem við höfum. Agnar ber ábyrgð á
gæðamálum, upplýsingatækni og
þróunarmálum, Friðþjófur mótar
framtíðarsýn fyrirtækisins, sér um
fmmkvöðlastarfið og viðsldptaþró-
un en Þór sér um fjármálin, rekstr-
arráðgjöf og stoðdeildarþjónust-
una.“ Að sögn þeirra félaga er
ávinningur af stofnun Eignarhalds-
félagsins margþættur. í fyrsta lagi
megi nefna að það er einfaldara en
áður var að samræma og sameina
hin ýmsu viðskiptasvið undir einni
og sömu rekstrareiningunni. „Við
getum nefnt sem dæmi að Heimilis-
tæki seldu tæki og rekstarvörur til
heilbrigðisgeirans en Ó. Johnson &
Kaaber seldi hjúkmnarvömr. Við
Eignarhaldsfélag OJK hf.
Aðalstjórn
Eignarhaldsfélag ÓJK hf Agnar H Johnson - Friðþjófur Ó Johnson - Þór Kristjánsson
ÓJK dótturfélög
Stefnumótun, þróun og eftirfylgni
ÓJK heildsala ehf
Matur og sérvara
ÓJK heilbrigðisvörur ehf
Röntgen- og sjúkrahúsvömr
ÓJK eignir
Greining, eftiriit og ávöxtun
Heimilistæki hf
Raftæki og búnaður fyrir heimili
HT&T ehf
Tækni- og tölvubúnaður
Samband- Samskiptalausnir ehf
'' i Símkerfi, -búnaður og þjónusta
% afasE
Heimsmyndir ehf
Ljósmyndavörur og -þjónusta
Fasteignir
Þróun, rekstur og viðhald
Framkvæmdastjóm
Skráð verðbréf á markaði
Greining, kaup og sala
Framkvæmdastjóm
Óskráð félög á markaði
Framkvæmdastjóm
HÓP Rekstrarfélag ehf
Rekstrarþjónusta og ráðgjöf
Lindax ehf
Loftræstikerfi og blikksmíöi
Búbót ehf
Sultugerð
Árvakur hf
Element ehf
Nýja kaffibrennslan ehf
Póllinn hf
EPS - einangrun ehf
Vilko ehf
sameinuðum þessi viðskiptasvið í
eitt félag sem gerir allt starf þess
mun markvissara. Almennt má
segja að fókusinn eða áherslur
hverrar rekstrareiningar verði mun
skýrari en áður og allt markaðsstarf
verður beinskeyttara. Þá má og
nefna að þessi skipulagsbreyting
tryggir skilvirkari stjómun og
skjótari ákvarðanir, en það er nauð-
synlegt í því viðskiptaumhverfí sem
við störfum. Við stofnuðum sérstakt
þjónustufyrirtæki utan um rekstur
stoðdeildanna og náum fram bæði
sparnaði og markvissari vinnu-
brögðum. Það skiptir líka gríðarlega
miklu máli að hvert fyrirtæki í eigu
móðurfélagsins hefur nú sjálfstæða
möguleika á að stækka með kaupum
á öðrum rekstrareiningum og fyr-
irtækjum eða með samruna án þess
það hafi bein áhrif á önnur félög
Eignarhaldsfélagsins en fyrir breyt-
ingar var það miklum mun erfiðara."
Felum stjórnendum
aukna ábyrgð
Friðþjófur leggur áherslu á að
þessar breytingar hafi jafnframt í
för með sér mikla valdadreifingu.
Þekking á vörum og mörkuðum sé
hjá stjómendum einstakra fyrir-
tækja og starfsmönnum þeirra og
því skilvirkara að ábyrgð á dagleg-
um rekstri sé í þeirra höndum.
Framkvæmdastjórn Eignarhalds-
félagsins tekur hins vegar virkan
þátt i stefnumótun, áætlunum og
eftirfylgni með þeim. Starfsmenn
hvers fyrirtækis vinna nú sem eitt
teymi að skýrum markmiðum og
þeir geta skapað sér sína eigin fyr-
irtækjamenningu án tillits til ann-
arra félaga Eignarhaldsfélagsins.
„Adstæður hafa
breyst það mikið að
það er ekki lengur
hægt að reka Ó.J.&K.
eins og lokað fjöl-
skyldufyrirtæki.“
Sama má segja um starfsmanna-
stefnuna, þar geta menn lagað sig að
þeim markaði sem þeir starfa á og
boðið þau kjör og starfsumhverfi
sem þar tíðkast. Það er til dæmis
ljóst að Samband-Samskiptalausnir,
sem starfar á síma- og samskipta-
markaði, verður að hafa svigrúm til
þess að laða til sín hæft starfsfólk og
bjóða sambærileg kjör og tíðkast hjá
öðrum fyrirtækjum í þessum geira.
Við stefnum einnig að því að starfs-
menn eigi þess kost í framtíðinni að
eignast hlut í því fyrirtæki sem þeir
starfa hjá.
Á einfaldaðan hátt má segja að við
séum að stofna sérstaka liðsheild um
einstaka hluta starfseminnar, veita
henni aukna ábyrgð og gera henni
kleift að standa sig á því sviði. Okkar
hlutverk er svo að marka liðsheild-
inni stefnu ásamt framkvæmda-
stjórum dótturfyrirtækjanna, sam-
þykkja áætlanir og fylgjast með því
að þeim sé fylgt eftir. Við getum
stutt við bakið á liðsheildinni, unnið
að því að finna þær einingar sem
hugsanlega eru álitlegar fyrir hana
að renna saman við, finna fjárfesta
eða koma auga á kaupmöguleika. í
fjölskyldufyrirtæki eins og þessu
endar það með því að hugsjónafjár-
festarnir hverfa og viðskiptafjár-
festar koma inn og við erum meðal
annars að opna fyrir þann mögu-
leika.“
Mörg sjálfstæð fyrirtæki
„Hvert fyrirtæki er stofnað með
eigin efnahag og vöruflokka til
markaðssetningar og segja má að
það sé heimanmundur frá Eignar-
haldsfélaginu. Stofnefnahagur
þeirra er miðaður við sambærileg
fyrirtæki á þeim mörkuðum sem þau
starfa á. Sérhver framkvæmdastjóri
hefur skýr arðsemismarkrnið sem
aftur miðast við arðsemiskröfur
fjárfesta á viðkomandi markaði. Það
er síðan framkvæmdastjórans og
lykilstarfsmanna hans að bera
ábyrgð á daglegum rekstri fyrirtæk-
isins. Öll stoðdeildarþjónusta við
fyrirtækin er unnin af HÓP Rekstr-
arfélagi ehf. sem er sjálfstætt fyr-
irtæki í eigu Eignarhaldsfélagsins.
Markmið þess er að lækka stoð-
deildarkostnað einstakra fyrirtækja
og stuðla að aukinni hagræðingu í
krafti sérhæfingar og umfangs.
Þannig geta fyrirtæki og starfs-
menn einbeitt sér að því að nýta sér
þá sérþekkingu sem þeir búa yfir og
sinna þörfum viðskiptavina og þar
með náð betri árangri en ella.
Starfsmenn Sambands-Samskipta-
lausna, svo dæmi sé tekið, þurfa því
ekki að vera stússast í bókhaldi, inn-
heimtu, símsvörun eða fjárvörslu
heldur sér HÓP um þá þætti. Hver
eining er því að fást við það sem hún
er hæfust í og ekkert annað.“
Bregðumst við
breyttum aðstæðum
Aðspurðir segja þeir Þór, Agnar
og Friðþjófur að rekstrarumhverfi
fyrirtækja á íslandi sé að breytast
hratt. Kaup, yfirtökur og samruni
fyrirtækja sé nánast orðið daglegt
brauð. Heimilistæki og ÓJ&K hafi
til að mynda vaxið með kaupum á
öðrum fyrirtækjum. Með stofnun
sérstakra félaga um rekstur af-
markaðra viðskiptasviða sé öðrum
þræði verið að bregðast við þessum
aðstæðum. Dæmi um þetta hafi ver-
ið þegar Kaffibrennsla ÓJ&K og
Kaffibrennsla Akureyrar runnu
saman í eitt fyrirtæki, Nýju kaffi-
brennsluna ehf. Þá hafi hugbúnaðar-
deild Heimilstækja verið sameinuð
Elementi ehf. Með þessu hafi verð-
mæti þessara rekstrarsviða vaxið,
auk þess sem skapast hafi ný tæki-
færi. ,Af skipuritinu má lesa að
Eignarhaldsfélagið vill skoða hvern
þann flöt sem til er á stækkun með
kaupum, samruna og samvinnu við
aðra aðila.“
„Vöxtur fyrirtækja okkar hefur
verið mikill á síðustu árum og nú er
svo komið að húsnæðið sem fyrir-