Morgunblaðið - 17.12.2000, Síða 37
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
SUNNUDAGUR 17. DESEMBER 2000 37
[
Si
+ Bergljót Sigríður
Rafnar fæddist í
Reykjavík 20. sept-
ember 1922. Hún lést
í Landspítalanum 11.
þ.m. Hún var dóttir
séra Haralds Níels-
sonar og Aðalbjarg-
ar Sigurðardóttur.
Hálfsystkini hennar,
börn séra Haralds og
Bergljótar Sigurðar-
dóttur, fyrri konu
hans, voru Sigurður,
Soffía, Kornelíus, El-
ín og Guðrún, en þau
tóku sér ættarnafnið
Haralz. Albróðir Bergljótar, sem
nú lifir einn systkinanna, er Jónas
H. Haralz, fyrrv. bankastjóri.
Bergljót ólst upp á heimili for-
eldra sinna í Lauganesi við
Reykjavík. Hún stundaði gagn-
fræðanám á Isafirði og í Reykja-
vík og lauk stúdentsprófi við
Menntaskólann í Reykjavík árið
1941. Hún starfaði við blaðið Vik-
una og í Grænmetisverslun rík-
isins til 1944 þegar hún gekk að
eiga Bjarna Rafnar, Iækni, son
Jónasar Rafnar yfirlæknis í
Kristnesi og Ingibjargar Bjarna-
dóttur. Bjuggu þau Bergljót og
Bjarni fyrst í Reykjavík en sfðan
á Akureyri, en dvöldust í Dan-
mörku árin 1952-1954 og í Banda-
Nokkur orð um einstaka ömmu.
Æskuminningar okkar úr Ása-
byggðinni hjá ömmu Beggu og af-
anafna eru litaðar sterkum tilfinn-
ingum. Ást, hlýja og öryggi. Við
vissum nefnilega að við vorum
augasteinamir hennar ömmu og
þannig leið okkur.
Opinn faðmur fyrir utan flugstöð-
ina. Amma Begga í aftursætinu til
að getað haldið í höndina. Rúntur
um helstu stofnanir Akureyrar til
að sýna bamabörnin („Já, nú em
þau loksins komin!“). Við lánuðum
henni góðfúslega mýkstu eyrna-
snepla í heimi til að strjúka og hlýj-
ar hendur í bæjarferðum. Stöðugt
hrós, allt sem við gerðum alveg
stórmerkilegt. Kossar og faðmlög,
bænirnar, sofna í afa- og ömmubóli.
Að finna fyrir svo sterkri ást, tjáðri
á svo opinn hátt er ómetanlegt fyrir
barn. Það er góð tilfinninga þegar
einhver er stoltur af manni. Og
svona hefur það verið alla tíð.
Amma Begga var alltaf jafnglöð að
sjá okkur, hafði alltaf áhuga á því
sem við vomm að gera. Okkar ein-
lægasti stuðningsmaður. Endalaus
bakkamon og rommý. Ömmu alveg
sama hver vann, tilgangurinn að
spila og spjalla. Hún smitaði frá sér
gleði, eigin hrakfallasögur í sér-
stöku uppáhaldi. Maður sat eftir
með sömu vellíðan og forðum.
Þetta verða erfið jól, sérstakega
fyrir elsku afa nafna. Við verðum
lengi að venjast því að amma taki
ekki á móti okkur frammi á gangi:
„Ég er búin að fara í sund, er ég
ekki dugleg?“ Síðan með glotti á
vör: „Ef ég hæli mér ekki sjálf er
mín dýrð engin“. Við höfum misst
mikið og sorgin er sár.
En sorgin er líka ljúfsár. Ljúfsár
því hún er blönduð öllum góðu til-
finningunum sem amma Begga
vakti með okkur. Blönduð óendan-
legu þakklæti fyrir að hafa átt hana
að, fyrir að hafa fengið að vera einn
af augasteinunum hennar.
Blessuð sé minning ömmu Beggu.
Bjarni og Lilja.
Bergljót Rafnar var falleg kona
og erfði marga góða eðliskosti úr
báðum ættum. Faðir hennar, sr.
Haraldur Níelsson prófessor, lést
þegar hún var mjög ung. Aðalbjörg
Sigurðardóttir, móðir hennar, var
mikil merkiskona og tengsl þeirra
mæðgna voru náin. Ekki þótti mér
Begga lík mömmu sinni, en þær
voru báðar sterkir persónuleikar,
vel gefnar, mælskar og skemmti-
legar. Aðalbjörg var alltaf mjög virk
í félagsmálum og stúdentinn Begga
ríkjunum 1959-1960,
þar sem Bjami var
við framhaldsnám.
Eftir það bjuggu
þau samfellt á Akur-
eyri til ársins 1989,
er Bjarni lét af störf-
um sem yfirlæknir.
Á Akureyri sinnti
Bergljót ýmsum
félagsstörfum. Átti
hún sæti í bæjar-
stjórn sem fulltrúi
Sjálfstæðisflokksins
árin 1978-1989 og
gaf sig framar öðru
að málefnum bama.
Þá starfaði hún mikið í Zonta-
klúbbi Akureyrar. Siðustu ár áttu
þau Bergljót og Bjarni heima í
Reylqavík, þar sem öll börn
þeirra eru búsett. Þau em: Björg
Rafnar, læknir, maki Össur Krist-
insson, Haraldur Rafnar, raf-
eindavirki, maki Rósa Þorsteins-
dóttir, Kristín Rafnar, hag-
fræðingur, maki Gunnar
Stefánsson og Þórunn Rafnar, líf-
fræðingur, maki Karl Ólafsson.
Barnabörn Bergljótar og Bjarna
eru átta og barnabarnabörn era
þijú.
Utfor Bergljótar fer fram frá
Bústaðakirkju mánudaginn 18.
desember og hefst athöfnin
klukkan 15.
var kannski þess vegna heimakær
og kaus að njóta móðurhlutverksins
þar til börnin fjögur voru flogin úr
hreiðrinu. Hún hvatti bömin sín til
dáða og síðar barnabörnin og var
einstaklega umhyggjusöm um
þeirra hag. Begga var vinamörg og
um skeið bæjarfulltrúi fyrir Sjálf-
stæðisflokkinn á Akureyri.
Rafnarsfjölskyldan er samheldin
og það voru þau líka systkinin
Begga og Jónas H. Haralz. Á með-
an bræðurnir, Bjami hennar Beggu
og Jónas faðir minn, bjuggu báðir á
Akureyri var stutt á milli heimil-
anna og samgangur mikill. Okkur
systmm þótti alltaf notalegt að
koma á Skólastíginn og síðar í Ása-
byggðina. Húsmóðirin var miðdepill
heimilisins, full af lífskrafti og
dugnaði, gaf sér tíma til að spjalla
við unga fólkið, segja fréttir og vera
skemmtileg. Hún var viðlesin og
fróð, hlý og blátt áfram og ræktaði
vel garðinn sinn. Þegar Bjarni hætti
læknisstörfum á Akureyri og þau
fluttu suður urðu bræðumir aftur
nágrannar og alla tíð vom tengsl
fjölskyldnanna mikil. Það er ham-
ingja í því fólgin að eiga góða að og
rækta þá list að eiga sína að vinum.
Við Begga höfum verið spilafélagar
í mörg ár. Hún var notalegur félagi,
fastlynd og fundvís á færar leiðir.
Hún hafði allt það til að bera sem
skiptir máli um eftirsóknarverðan
félagsskap. Með frásagnargáfu sinni
sló hún upp myndum af liðinni tíð
og af mannfólki, sem varð ljóslifandi
fyrir mér eins og ég hefði sjálf verið
viðstödd atvik hverrar sögu. Mjög
oft var kímni í frásögninni. Slíkt er
ekki öllum gefið.
Við systur og fjölskyldur okkar
sendum Bjarna, Björgu, Haraldi,
Kristínu, Þómnni, Jónasi H. Haralz
og öllu þeirra fólki okkar innileg-
ustu samúðarkveðjur. Góð kona er
horfin af sjónarsviðinu og Bergljót
Rafnar verður öllum minnisstæð
sem henni kynntust.
Ásdís J. Rafnar.
Með þakklæti fyrir góðar sam-
vemstundir kveð ég ömmusystur
mína, Bergljótu Rafnar. Ég hef
þekkt hana frá því að ég man eftir
mér. Hún var skemmtileg kona og
gott að vera nálægt henni.
I fjölmennum fermingarveislum
og jólaboðum leitaði ég hana ávallt
uppi og settist hjá henni. Og þó að
ég væri bara krakki lét hún mér
alltaf finnast að ég væri stórmerki-
leg manneskja sem henni þætti
gaman að tala við. Hún var með svo
sérstök brún augu. Það var alltaf
glettnisglampi í þeim og þau vom
svo skýr og skörp að það var eins
og hún gæti lesið hugsanir með
þeim.
En Begga bjó langt í burtu, alla
leið norður á Ákureyri svo það var
nú bara spari sem maður fékk að
hitta hana. Haraldur sonur hennar
datt aftur á móti stundum óvænt
inn úr dyranum og varð mikill
uppáhaldsfrændi. Einhvern tíma
hafði ég fengið hann til að lofa að
taka mig með sér norður til Beggu
við tækifæri og var svo að herma
þetta loforð upp á hann í hvert
skipti sem hann kom. Loks var það
eitt sumarið að hann sá þann kost
vænstan að senda mig bara eina og
setti mig upp í rútu norður. Það var
sumar og ég var tíu ára og þessi
óralanga rútutuferð líður mér seint
úr minni. Og í heila viku fékk ég
vera hjá Beggu og Bjarna eins og
prinsessa því um þetta leyti var
barnahópurinn Jieirra allur floginn
úr hreiðrinu. Ég fékk að gista í
bókaherbergi Bjarna og naut þess
að ganga meðfram hillunum, snerta
kilina og lesa titlana á fallegu bók-
unum hans. Svo fékk ég ótakmark-
aðan aðgang að Andrésar andar
möppum Haralds frænda og
Barbie-dúkkum stelpnanna. En
mesti lúxusinn var að sitja í eldhús-
inu hjá Beggu, spjalla við hana og
spila. Hún kenndi mér mörg ný spil
og tók sér góðan tíma í að útskýra
reglurnar. Þennan spilaáhuga vissi
ég að hún hafði frá mömmu sinni
Aðalbjörgu. Já þetta vora góðir
dagar og auðvitað skein norðlensk
sól allan tímann.
Og heimferðin með Beggu og
Bjama, sem áttu þá einmitt leið
suður, var alveg ævintýri og gjör-
ólík ferðinni norður. Bjarni var
nefnilega óþreytandi við að benda
út um gluggann og segja mér hvað
fjöllin og dalimir hétu, hvaða fólk
hafði búið þar í gegnum aldirnar og
fara með Ijóðin sem þar höfðu verið
samin. Landið lifnaði við fyrir aug-
unum á mér og einhvers staðar á
leiðinni stoppuðum við bílinn, geng-
um út fyrir veginn og hann sýndi
mér hvernig ég gæti dmkkið vatn
úr lófa mér þar sem uppspretta
hafði gert grasið í kring iðagrænt.
Á seinni ámm bjó Begga í
Reykjavík til að vera nálægt mynd-
arlegum hóp af börnum og barna-
bömum og ég leitaði hana þá enn
uppi og hún mig í leikhúsinu. Og þá
vom Bjarni og Jónas bróðir oft með
í för.
Núna þegar hún er skyndilega á
bak og burt verða þessar samvera-
stundir sannkölluð foréttindaaugna-
blik. Dýrmætar minningar sem
hlýja mér um hjartarætur.
Elsku Bjami, Haraldur, Þórunn,
Kristín, Björg og Jónas frændi, ég
votta ykkur og fjölskyldum ykkar
innilegustu samúð.
María Ellingsen.
Ég var sextán ára gamall er ég
fyrst hitti Bergljótu Rafnar, þá ný-
byrjaður í Menntaskólanum á Ak-
ureyri. Þangað kom ég með æsku-
vini mínum Bjarna Össurarsyni,
barnabami Bergljótar og Bjarna
Rafnar. Sextán ára unglingur er
ekki fúllorðinn, allra síst einn í nýj-
um skóla, á nýjum stað, í niður-
gröfnu kjallaraherbergi, fjarri
heimahögum. Þá var það Bergljót
Rafnar sem tók mig undir sinn
vemdarvæng og varð ég heima-
gangur í Ásabyggð 5 frá fyrsta degi.
Ég borðaði þar, spilaði, spjallaði og
lagði mig í stofunni hjá hjónunum
Bjarna og Beggu Rafnar oft í viku
þau fjögur ár sem ég var í MA.
Ógleymanlegar em þær stundir
sem við skólafélagamir og Bergljót
áttum í stofunni hennar við Trivial
getraunaspil og Yatsi. Bjarni eldri
inni í eldhúsi, þóttist ekki vilja vera
með, en hafði svör við öllu og gat
ekki á sér setið að kalla þau jafn-
harðan fram í stofu, okkur spila-
félögunum til mikillar mæðu. Að
loknum skóladegi ef ekki var spilað
vom stíómmálin rædd af miklum
móð í Ásabyggð 5. Bergljót sem þá
var bæjarfulltrúi á Akureyri var
heldur ekki lengi að snúa mér,
vinstri róttæklingnum að sunnan,
frá villu vegar. Hún var talsmaður
samhjálpar, umhyggju og um leið
einstaklingsfrelsis, sjálfstæðiskona
af gamla góða skólanum.
Að hafa átt þess kost í fjóra vetur
að umgangast nær daglega svo vel
gert, gáfað og ekki síst skemmtilegt
fólk sem þau Bjarna og Bergljótu
Rafnar var ómetanlegt og eitthvað
sem ég mun búa að alla ævi.
Fyrir það vil ég þakka henni um
leið og ég sendi Bjarna Rafnar og
öðram ættingjum mínar innilegustu
samúðarkveðjur.
Bjöm Ársæll Pétursson.
Góður vinur okkar hjóna, Berg-
ljót Rafnar, er til moldar borin í
dag.
Andlát hennar kom á óvart og er
sjónarsviptir að svo mikilli konu.
Hún var gædd leiftrandi gáfum og
lá áhugasviðið víða. Þau Bjarni vora
höfðingjar heim að sækja, heimili
þeirra var menningarheimili, lát-
laust og hlýtt.
Þegar þau fluttu suður hafði
Bergljót við orð, að þá reyndi á,
hvort við sæjumst jafnoft og áður.
Því miður reyndist gmnur hennar
réttur. Það er lengra milli húsa hér
syðra en fyrir norðan.
Bergljót heitin og Bjami nutu
trausts og vinsælda meðal Akureyr-
inga. Bæði vom þau hjónin í bæj-
arstjórn fyrir Sjálfstæðisflokkinn.
Það lætur að líkum, að Bergljót
beitti sér einkum á sviði félags-,
skóla- og íþróttamála og svo
skemmtilega hittist á um svo mik-
inn kvenskömng, að Bergljót átti
sæti í fyrstu jafnréttisnefnd Akur-
eyrar. Én póhtískur áhugi hennar
takmarkaðist ekki við þessi mál,
heldur var hann altækur og minnist
ég margra skemmtilegra stunda,
þar sem við skeggræddum gegnum
tíðina. Ég þakka henni að leiðarlok-
um góða vináttu og stuðning og
hollráðin sem hún gaf mér.
Nú er þungur harmur kveðinn að
þér, Bjarni Rafnar, gamli vinur, og
fjölskyldu þinni. Þá er gott að hafa
þroska til að mæta mótlætinu. Þess-
um línum fylgja samúðarkveðjur
okkar Kristrúnar. Guð blessi minn-
ingu Bergljótar Rafnar.
Halldór Blöndal.
Árið 1938 kom há og sæt stelpa,
Bergljót, í M.R. Hún hafði tekið
gagnfræðipróf í skóla Ágústar en
áður lært í skólum á Isafirði. Hún
fór í stærðfræðideild, sem þá var
óvenjulegt um stúlkur, en bróðir
hennar Jónas hafði ráðlagt henni að
gera ekki það sama og hann hafði
gert, það að fara í máladeild. Þarna
kynntist hún Þórdísi, Lídu, dóttur
Guðmundar Björnssonar landlækn-
is. Þær urðu nánar vinkonur, sem
ég kynntist lítið fyrr en eftir að við
úskrifuðumst. Þá varð ég hissa,
hversu skemmtilegar þær vom
þessir reikningsheilar.
Og þá var sko gaman að lifa. Við
vöktum og hlógum og sungum, t.d.
„En dag er ikke livet uden kærlig-
hed.“ Allt varð að ævintýrum og
Begga var líklega okkar frásagn-
arbest. Hún þurfti ekki að fara
lengra en út í mjólkurbúð án þess
að koma aftur með bráðfynda sögu,
hvað þá eftir að fara í útilegur eða
út á land. En eftir að hitta háa og
laglega læknanemann að norðan
urðu brosin leyndardómsfyllri og
sögunum fækkaði.
Þau Bjarni giftu sig fyrr en flest
okkar hinna og hafa alla tíð litið
hvort annað ástaraugum.
Eftir að Björg fæddist og ungu
foreldrarnir bjuggu enn á Leifsgöt-
inni hjá Aðalbjörgu, móður Beggu,
fóram við vinkonur hennar stundum
til hennar okkur til ánægju, á með-
an bóndinn lærði. Svo liðu árin og
hver gerði sitt. Við reyndum að hitt-
ast í stúdentsafmælum fimmta
hvert ár.
Stundum komu skeyti frá Akur-
eyri á þá leið að hún kæmist ekki,
hún væri að hjálpa bami eða barna-
barni. Hún var frábær móðir og
amma. Eitt sinn var hún aðalræðu-
maðurinn, og sagði með glettni frá
sínum skólaendurminningum og
einnig frá því, þegar þau hjón og
börn bjuggu í Baltimore á meðan
Bjarni var þar í sémámi, en að í
raun hefðu þau aldrei fundið Am-
eríku.
Á þeirra smekklega menningar-
heimili hylja bækur veggina, enda
vom þau bæði víðlesin og fróð.
Þannig var gott að koma og njóta
hlýrrar gestrisni.
Mörgum ámm seinna fékk ég
hringingu frá Baltimore. Þangað
vora hjónin komin aftur, en nú í
heimsókn til Þómnnar, yngstu dótt-
ur sinnar og hennar fjölskyldu, en
ungu hjónin vom bæði í sémámi.
Þetta endurtók sig nokkmm sinn-
um og alltaf gátum við hist.
Þvílík ánægja það var fyrir okk-
ur, nú lífsreynd og þroskuð, að
rabba og hlæja. Og ég hugsa að þau
hafi fundið Ameríku.
Blessuð, Begga mín, ég veit að
bekkjarsystkinin munu sakna þín.
Við hjón sendum Bjarna, ykkar
afkomendum og Jónasi okkar sam-
úðarkveðjur.
Hallfríður G. Schneider.
• Fleirí minningargreinar
um Bergfjótu Sigríði Rafnar bíða
birtingar og niuriu birtastíblaðinu
næstu daga.
Móðir okkar,
SIGURLAUG STEFÁNSDÓTTIR
frá Smyrlabergi,
Vogatungu 31 a,
Kópavogi,
er látin.
Bömin.
Vesturhlíð 2
Fossvogi
Sími 551 1266
www.utfor.is
Þegar andlát
ber að höndum
Önnumst alla þætti útfararinnar.
Við Útfararstofu kirkjugarð-
anna starfa nú 14 manns
með áratuga reynslu við
útfaraþjónustu. Stærsta
útfararþjónusta landsins
með þjónustU allan
"IjKÍ sólarhringinn.
% /
Prestur
Kistulagning
Kirkja
Legstaður
Kistur og krossar
Sálmaskrá
Val á tónlistafólki
Kistuskreytingar
Dánarvottorð
Erfidrykkja
UTFARARSTOFA
KIRKJUGARÐANNA EHF.
BERGLJÓT
SIGRÍÐUR RAFNAR