Morgunblaðið - 17.12.2000, Page 49

Morgunblaðið - 17.12.2000, Page 49
MORGUNBLAÐIÐ DAGBÓK SUNNUDAGUR 17. DESEMBER 2000 BRIDS Um.vjón Guðmundur Fáll Arnarvun STUNDUM rekst maður á ótrúleg spil. Lesandinn ætti fyrst að líta á hendur NS og íhuga möguleika sína í sex spöðum með tíg- ulás út: Noyður * A87542 u DG3 * D * DG7 Vestur Austur *G63 *D9 ¥9754 ¥1086 ♦ ÁG ♦ K10832 *10984 *653 Suður *K10 »ÁK2 ♦ 97654 *ÁK2 Ekki þar fyrir; það blas- ir svo sem engan veginn við hvernig hægt er að vinna slemmuna þótt horft sé á allar hendur. En það er hægt! Vestur spilar lauftíu í öðrum slag og sagnhafi þarf að gefa sér að austur eigi G9 eða D9 í trompi, og geti ekki yfirtrompað fimmta tígulinn. Staðan sem þarf að byggja upp er þessi: Norður * A87 ¥ - ♦ - + - Vestur Austur 4 G63 * D9 ¥ - ¥ - ♦ - ♦ K * - Suður * K10 ¥ - * 9 * - * - Suður er inni og spilar tígulníu. Ef vestur tromp- ar smátt yfirtrompar suð- ur með sjöu og fær vissu- lega á ÁK. Trompi vestur með gosa yfirtrompar sagnhafi með ás og svínar svo tíunni. En hvernig er hægt að ná fram þessari stöðu? Þannig: Suður tekur á laufás, trompar tígul, fer heim á hjartaás og tromp- ar tígul. Ef vestur hendir til dæmis hjarta, þá tekur sagnhafi tvo slagi á þann lit og endar heima til að spila enn tígli og trompa. Síðan tekur hann tvisvar lauf og endar heima og þá er lokastaðan mætt. Gaman væri að vinna svona spil við borðið. Arnað heilia f7A ÁRA afmæli. Nk. I vl þriðjudag, 19. des- ember, verður sjötugur Ást- ráður H. Magnússon, Hörg- sási 4, Egilsstöðum. Af því tilefni bjóða hann og fjöl- skylda hans vinum og vandamönnum að þiggja veitingar á afmælisdaginn frá kl. 20.30 á Hótel Vala- skjálf, Egilsstöðum. O fT ÁRA Sigurður O l) Bjarnason, fyrrver- andi ritstjóri Morgunblaðs- ins og sendiherra, verður 85 ára á morgun, mánudaginn 18. desember. Eiginkona hans er Ólöf Pálsdóttir myndhöggvari. Sigurður verður að heiman. SKAK I msjiín Helgi Áss Grétarsson STAÐAN kom upp á heims- meistaramóti FIDE sem stendur nú sem hæst Ung- verski ofurstórmeistarinn Zoltan Almasi (2668) stýrði hvítu mönnunum en þurfti að bera lægri hlut fyrir Ev- gení Vladim- irov (2621) frá Kasakst- an 27. ...Rf3+! 28. gxf3 gxf3 29. Bxf3 Hxf3 30. Hxc8+ Dxc8 31. Rxb6? Á þessu hefur hvítur ekki efiii. Skyn- samlegra var að leika 31. Rc3 og koma riddaranum í vörnina á kóngsvæng. 31. ...Df5 32. Hcl Hh3! 33. Hc7 Dbl+ og hvítur gafst upp enda mát í næsta leik. Jólapakkamót Ilellis verður haldið í dag, 17. nóvember, klukkan 14 í félagsheimili Hellis í Þöngla- bakka 2. Gríðarlegur fjöldi krakka hefur tekið þátt í mótunum á undanfómum árum og skemmt sér kon- unglega ásamt öllum öðrum sem komið hafa að þeim. Svartur á leik. UOÐABROT UR NJOLU Meistari himna miklu þú, mig þinn andi hneigi, svo hugurinn nokkuð hugsa nú um hátign þína megi. Nú er fögur næturstund, nú ber skrautið frána þakið bláa, er þandi mund þín yfir höllu mána. Lít eg sveima hæða hyl herinn alskínandi; því vill hefjast himna til hugurinn lofsyngjandi. Bjöm Gunnlaugsson. ORÐABÓKIN Að heyja Einu sinni áður hefur verið vikið að so. að heyja í merkingunni að gera eða framkvæma eitthvað. f blaði var rætt um það, að fatlaðir menn hefðu oft þurft að há mikla baráttu fyrir rétt- indum sínum. Hér í Mbl. rakst ég svo nýlega á stutta grein frá blaða- manni þess, þar sem hann notaði nafnháttinn að há. Pistill minn virðist þannig hafa farið fram hjá honum. Það virðist því ekki saka að rifja aftur upp eitthvað af því, sem ég benti lesendum Mbl. á. Nafnháttur þessa so. er að heyja, en ekki há. Orðmyndin að há í nafn- hætti hefur örugglega smeygt sér hér inn í tal- málið fyrir áhrif frá þá- tíð og lýsingarhætti sagnorðsins, sem er háði - háð. Síðan fara menn að skrifa há í nafnhætti. Enginn vafi leikur á því, að þetta hefur gerzt á þennan veg. Þetta so. hefur svonefnda veika beygingu: heyja - háði - háð, og eftir henni fer beyging annarra orð- mynda hennar. Eg heyi, þú heyrð, hann heyr, við heyjum, þið heyið og þeir heyja baráttu fyrir málinu. Állar eru þessar myndir leiddar af nh. að heyja. Því skal ekki segja eða skrifa að há baráttu; og þá ekld held- ur ég hái, þú háir, hann háir baráttu. Sama gildir um ft.: við heyjum bar- áttu, ekki háum baráttu; þið heyið baráttu, ekki háið baráttu, þeir heyja baráttu, ekki há baráttu. - J.A.J. STJÖRNUSPA cftir Frances Drake BOGMAÐUR Áfmælisbam dagsins: Þú ert einstaklega rólyndur, en þó skyldu menn ekki flaska á því að telja þig skaplausan. Hrútur (21. mars -19. apríl) Þú ættir að temja þér hægari atgang að fólkL Það er undra- vert hvað komast má með hægðinni, meðan atfylgið get- ur virkað fráhrindandi á suma. Naut (20. apríl - 20. maí) Þú ættir að gefa þér meiri tíma til að sinna vinum og vandamönnum. Þegar til kast- anna kemur eru þeir sá bak- þjarl sem þú getur stólað á. Tvíburar _ (21.maí-20.júm) H Þú ættir að gefa meiri gaum að smáatriðunum. I þeim felst oft mikil visbending sem vont er að láta sér yfirsjást Margt smátt gerir eitt stórt Krabbi (21.júní-22.júlí) Það er engum að þakka nema sjálfum þér að þú stendur vel á öllum vígstöðvum. Njóttu þess en mundu um leið, hversu fallvölt lukkan er í Ljon (23.júlí-22. ágúst) m Vertu ekki of fljótur að kveða upp dóma yfir öðrum. Hefur hver til sín ágætis nokkuð og kúnstin er að finna það og virkja til góðra verka. Meyja (23. ágúst - 22. sept.) (BÍL Það er oft tímafrekt að skoða allar hliðar mála, en engu að síður nauðsynlegt til þess að geta tekið réttar ákvarðanir. Vertu sanngjarn. Vog (23. sept. - 22. okt.) Engan skyldir þú álíta sjálf- sagðan. Sýndu mönnum tillits- semi og leyfðu þeim að segja sitt, ef þú vilt á annað borð vinna trúnað þeirra og fylgL Sþorðdreki ™ (23. okt.-21.nóv.) Þeir eru margir sem sækja til þín um ráð. Reyndu að sinna sem flestum, en um leið þarftu að verja fyrir ágangi þeirra, sem hafa ekkert gott í huga. Bogmaður m ^ (22. nóv. - 21. des.) jHO Þú ættir að halda að þér hönd- um með kynningu á málstað þínum. Þinn tími kemur seinna en nú fer best á því að þú sitjir og hlustir á hina. Steingeit (22. des. -19. janúar) ttíÍP Stundum er það affarasælast að láta hveijum nægja þá vitn- eskju sem hann þarf til að ljúka sínum hlut. En á endan- um er sjálfsagt að sýna alla myndina. Vatnsberi (20. jan. -18. febr.) k£z Þú þarft að vera svo sveigjan- legur sem mest þú mátt. Að öðrum kosti áttu á hættu að stefna verkefni þínu í voða. Hlustaðu á samstarfsmenn- Fiskar (19. feb. - 20. mars) Þótt vitneskjan sé mikils virði, verða sumir hlutir best geymdir hjá trúnni. Gleymdu ekki að annað fólk þarf líka að eiga sér leyndarmál. Stjömuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum grunni vísindalegra staðreynda. 49 Þakka öllum viðskiptavinum mínum ánægjuleg viðskipti á undanfömum ámm. Verslunin er hætt viðskiptum. Jóla- og nýárskveðjur. Hverfisgötu 50 O Sími 551 5222 GLÆSILEGUR FATNAÐUR Hættu aö leita Komdu til okkar Jólatilboö á náttkjólum. verö frá kr. 1.980, og náttfötum. verö frá kr. 2.900 Ný sending fatnaöar Stór númer Gleöilega jólahátíö LINDIN tískuverslun. Eyravegi 7. Selfossi. s. 482 1800. tiskuverslun v/Nesveg, Seltjarnarnesi, sími 561 1680. Opið daglega frá kl. 10—18, laugard. frá kl. 10—14.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.