Morgunblaðið - 17.12.2000, Qupperneq 56

Morgunblaðið - 17.12.2000, Qupperneq 56
56 SUNNUDAGUR 17. DESEMBER 2000 MORGUNBLAÐIÐ FÓLK í FRÉTTUM Borgardætur meó jólaplötu Jóladætur Það eru sannarlega jólaleg jól hjá Borgar- dætrum þetta árið því út er komin jólaplat- an Jólaplatan. Arnar Eggert Thoroddsen hitti á dætur tvær við jólatré útvarps- hússins og spjallaði við þær um...jólin. JÓLAANDINN hefur heltekið land- ann sem fyrr. Jóla þetta og jóla hitt. Yndislegt. Og svo jólatónleikar Borg- ardætra í Salnum, tónlistarhúsi Kópavogs, í kvöld kl. 20.00. „Við verðum með fjögurra manna sveit með okkur, þá Eyþór Gunnars- son á píanó, Eðvarð Lárusson á gítar, Þórð Högnason á bassa og Matthías Hemstock á trommur,“ segir Ellen Kristjánsdóttir en hún, Berglind Björk Jónasdóttir og Andrea Gylfa- dóttir skipa Borgardætur. Berglind var á hraðferð og því sátu þær Andr- ea og Ellen fyrir svörum. Andrea segir lagaval plötunnar nýju hafa tekið mið að því hvað myndi passa fyrir raddsetningu dætranna. „Þetta er svona í stíl við það sem við höfum verið að gera á síðustu tveimur plötum okkar. Þessi ákveðni þríhljómur sem var geysi- lega vinsæll á stríðsárunum, svona í kringum ’40 og ’50. Þá voru alls kon- ar söngtríó í gangi, það þekktasta var Andrews-systur." Er erfitt að syngja? Ég hef oft velt því fyrir mér hvort það sé ekki erfitt að þríradda svona. j Manni finnst samt hálfbamalegt að spyrja svona sjóaðar söngkonur út í þetta. En best að láta bara vaða. Það eru nú einu sinni jólin. „Jú, það er það,“ segir Andrea, og er góðu heilli áhugasöm um málefnið. „Þetta er bara eitt af því erfiðasta en skemmtálegasta sem ég hef gert á mínum söngferli," bætir Ellen við. „Þetta er orðið aðeins auðveldara núna en fyrst var þetta bara eins og erlent tungumál." „Raddimar vefjast saman,“ út- skýrir Andrea. „Það er ekki bara ein okkar sem er með laglinuna og hinar einhvers staðar undir heldur er þetta eins konar vafningur." Borgardætur hafa nú verið starf- andi í sjö ár., Að vísu tókum við okk- ur tveggja ára hlé hér um árið,“ segir Andrea. „Þetta byrjaði allt með ein- um tónleikum á Hótel Borg sumar- daginn fyrsta. Þá var þetta allt á ensku og við vorum margar vikur að undirbúa þetta. Þetta gerði svo alveg gífurlega lukku og í framhaldinu héldum við fleiri hljómleika á Borg- inni. Svo var þess farið á leit við okk- ur að gera plötu og þá fórum við í það að láta íslenska textana." Ellen segir þær vera leynisystur. „Við eram ótrúlega ólíkar.“ Andrea Handunnar jólagjafir Veski, gsm-töskur, trdlar, kragar, armbönd, púðar, dúkar, sængurverasett o.m.fl. m a m í m o textílsmiðja - gallerí tryggvagata 16 • » 551 1808 Á MYNDBANDI19. DESEMBER ÆGISSÍÐU 123 SIMI: 551-9292 HAFNARFIRÐI SÍMI: 565-4460 FURUGRUND 3 KÓP. SfMI: 554-1817 LAUGAVEGUR164 SÍMI: 552-8333 MOSFELLSBÆ SfMI: 566-8043 NÚPALIND 1 KÓP. SlMI: 564-5680 „ÞAR SEM NÝJUSTU MYNDIRNAR FÁST“ Morgunblaðið/Kristinn Jólin eru komin til Borgardætranna Berglindar Bjarkar, Ellenar og Andreu. samsinnir og segir þær vera með ólíkar raddir sem jjersónuleika. „Það er kannski þess vegna sem við náum svona vel saman.“ Jólajóla Allir eiga sér uppáhalds jólalag og Borgardætur era þar engin undan- tekning. Engu að síður taka þær sér drjúgan tíma til umhugsunar og mæna einbeittar út í loftið. Loks seg- ir Ellen. „Ég get ekki að því gert en mér finnst „Skreytum hús með greinum grænum" alveg frábært lag.“ Andrea tekur undir. „Já, það er svona jóla jóla.“ Hún fer svo árang- urslaust að reyna að rifja upp eitt- hvert lag sem hún hefur oft heyrt í jólamessu en allt kemur fyrir ekki. „Heims um ból,“ segir hún loks með hægð og er sýnilega létt. Jólaplata Borgardætra hefur verið að fá góða dóma í fjölmiðlum. „Ég er afskaplega ánægð með hana,“ segir Andrea og Ellen segir. „Já, ég er það núna.“ Hún er beðin um að útskýra þetta nánar. „Þegar maður er á kafi í vinnsluferlinu þá er maður ekki dóm- bær á þetta. Það er kannski eitt lag sem gengur eitthvað illa með og mað- ur er hættur að þola það. Svo þegar líður frá sér maður þetta í réttu ljósi. Viðbrögð áheyrenda á tónleikum við einstökum lögum hafa t.d. sitt að segja. Þegar við spilum þetta með hljómsveit á sviði öðlast lögin oft nýtt líf fyrir manni.“ Morgunblaoio/Knstinn Miðnes er á meðal þeirra sveita sem gefa út plötu hjá R&R í ár. Útgáfutónleikar R & R músíkur á morgun VELDU ÞAÐ BESTA O P I naglalökkin ...þekja vel ...þoma fljótt ...endast einstaklega lengi O PI er eitt mest selda naglalakkið í Bandaríkjunum Útsölustaðir Art-hús Keflavík, Baðhúsið, Hagkaup Akureyri, Hagkaup Kringlunni, Hagkaup Smáratorgi, Hagkaup Spönginni, Lyfja Garðatorgi, Lyfja Grindavik, Lyfja Hamraborg, Lyfja Laugavegi, Lyfja Lágmúla, Lyfja Setbergi, Krista hársnyrtistota, snyrtistofan Helena Fagra, snyrtistofan Paradís, Salon Ritz. „Umfram allt hug- • / LL sjon R & R músík er eitt þeirra útgáfu- fyrirtækja sem eru með í jólaplötu- slagnum í ár. Fyrirtækið er ekki stórt að vöxtum, hefur verið með þetta fjóra, fimm titla í hitunni und- anfarin ár. Á bak við það stendur hins vegar stór og öflugur hug- sjónamaður, trommarinn góðkunni Rafn Jónson, eða Rabbi eins og hann er betur þekktur. Á Gauk á Stöng í kvöld hyggst hann, ásamt sveitum sínum, slá upp ótgáfu- tónleikum sem ætlað er að kynna það sem á boðstólum er frá fýr- irtækinu þetta árið en þeir hefjast kl. 21.30. „Þarna koma fram þijár hljómsveitir, Ampop, Miðnes og svo Rabbi og Rónar ásamt Helga Björns og Andreu Gylfa," segir Rafn. „Buttercup verða þó því miður fjar- verandi vegna annarra skuldbind- inga.“ Hann segist hafa stofnað ótgáfu- fyrirtækið R & R árið 1997. „Fyrsta platan undir þessu nafni var plata Botnleðju, Fólk er fífl. Þetta eru svona 20 pfötur sem geftiar hafa verið ót á þessu merki. Áður rak ég ótgáfu sem hét Rymur.“ Rafti segist hafa stofnað ótgáfuna eftir að hann seldi hlut sinn í Hljóð- hamri og gengst við því að vera kallaður hugsjónamaður. „Þetta er umfram allt hugsjón. Þannig hefur það verið hingað til sem hér eftir.“
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.