Morgunblaðið - 17.12.2000, Blaðsíða 59

Morgunblaðið - 17.12.2000, Blaðsíða 59
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17. DESEMBER 2000 59 IQlSOAy Laugavc^i 94 Hvað býr undir niðri Ylit 33.000 átiorfendur! BfflflW Sýnd í Regnboganum DIGITAL FRUMSYNING: Sögusagnir 2 Þaí verða engin jóf ef jressi fýlupúki íær að ráða SOGUSAGNIR DEYJA ALDREI wófbmyndin með Jim Carrey sem er að slá öll met í USA. Myad fyrir alla fjölskylduna um hvernig tröllið stal jólimum AUKASYNINGAR KL. 3 0G 5 Hvernig væri að fá smá gæsahúð svona rétt fyrir jólin? Hér er komið sjálfstætt framhald myndarinnar Urban Legend. Frá framleiðendum I Know What You Did Last Summer og Cruel Intentions Dekkir }ui óvini þína? s Tonlisl Gcislaplaia NO TURNING BACK No Turning Back, sólóplata Páls Rósinkranz. Aðrir flytjendur Eyþór Gunnarsson pianó, Hammond, harmonikka og slagverk, Gunn- laugur Briem trommur og slag- verk, Jóhann Asmundsson bassi, Jón Elvar Hafsteinsson gítar og mandolín, Óskar Einarsson pianó, Rhodes og bakraddir, Hreimur Heimisson söngur í „Whenever God shines his light“, Sigurður Flosason - saxafónar (Yamaha), Árni Schev- ing marimba, Guðmundur Pét- ursson slide-gítar í „No tuming back“, Hera Björk Þórhallsdóttir, Jóhanna Vigdís Amardóttir og Regína Ósk Oskarsdóttir bakradd- ir. Upptökur fóm fram í Sýrlandi og Hljóðmúmum. Upptökumaður var Gunnar Smári Helgason sem einnig sá um hljóðblöndun. Sljóm upptöku Óskar Finnsson. ÞAÐ ER hægt að skipta íslensk- um dægurlagasöngvurum í dag í tvo flokka, Pál Rósinkranz og svo allir hinir. Maðurinn er gjörsam- lega aleinn á stalli langt fyrir ofan alla aðra. Eftir að hafa fylgst með honum í gegnum Jet Black Joe- tímabilið, gospel-tónlistina og svo öll lögin sem hann hefur sungið inn á hinar ýmsu safnplötur er maður samt agndofa eftir að hafa hlustað á nýjustu afurð hans, No Turning Back. Hvað lagaval og út- setningar varðar er platan bara í meðallagi, ýmsir standardar teknir og lítið farið út fyrir upprunalegu útgáfuna en það skiptir bara engu máli. Páll fer svo auðveldlega með þetta allt saman, maður sér hann fyrir sér sitja afslappaðan og yf- irvegaðan í hægindastól og raula með sinni hlýju og voldugu rödd lögin og brosa í leiðinni skilnings- ríkt niður á alla hina sem kalla sig söngvara. Platan byrjar á Simon and Garfunkel-slagaranum „Mrs. Robinson“ í hressilegri og skemmtilegri útgáfu. Van Morr- isson er höfundur tveggja laga á disknum og virðast þau eiga sér- lega vel við rödd Páls. Þetta eru lögin „Have I Told You Lately“ sem er alveg sérlega vel flutt og „Whenever God Shines His Light“ sem hann syngur með Hreimi Heimissyni, öðrum góðum söngv- ara. Platan er nokkuð heilsteypt tónlistarlega séð, þ.e. lögin eru á svipuðum nótunum, nokkuð blúsuð og amerísk, fyrir utan þó lag núm- er þrjú, „That’s Amore“. Það kem- ur eins og skrattinn úr sauðar- leggnum, passar engan veginn inn í heildina og slítur plötuna úr sam- hengi. Samt fyrirgefst Páli þetta, því lagið dregur fram allt aðra hlið á rödd hans, hann minnir svei mér þá nokkuð á Hauk Mortens eða þá Frank Sinatra. Eitt íslenskt lag er á plötunni, reyndar á ensku, en það er lag Magnúsar Kjartansson- ar „To Be Grateful". Þetta er önn- ur platan sem ég fjalla um í mán- uðinum sem inniheldur þetta lag og er maður alltaf jafn hissa á að það sé íslenskt. Það á vel heima með hinum lögunum á plötunni sem eru eftir marga af snillingum poppsögunnar, örugglega eitt besta lag sem samið hefur verið hér á landi og ég held ég hafi aldrei heyrt það eins vel flutt og nú, hreinlega yndislega sungið. „Tears in Heaven“, lagið sem Eric Clapton samdi í minningu sonar síns, varð klassískt um leið og það kom út. Lagið er hér mjög vel sungið af Páli en samt stingur það mig við hverja hlustun hvernig hann heggur á orðinu „would“ í byrjun lagsins, annars hefði það verið fullkomið. „Solid Ground" eftir Willy Hansen er eitt af bestu heppnuðu lögunum, sungið af mik- illi tilfinningu og næmi. Disknum lýkur á þjóðlaginu „No turning back“ sem er tekið upp þannig að það hljómar eins og gömul blús- plata og fer það vel. Umslagið er stílhreint en hefði mátt vera aðeins yfirgripsmeira,' \ það er t.d. alltaf plús að láta texta laganna fylgja. Páll hefur fengið til liðs við sig landslið tónlistarmanna við gerð plötunnar eins og sjá má á nafnalistanum hér fyrir ofan, sem skilar sínu fullkomlega. Svo vel reyndar að maður tekur varla eftir undirspilinu, það undirstrikar bara sönginn. Rödd Páls er fram- arlega sem setur hana enn meira undir smásjá en það er ekki hnökra að finna í söngnum, þvílíkt er öryggið. No turning back er fyrst og fremst söngvaraplata. Með öðrum flytjanda hefði hún orðið venjuleg og eflaust týnst í jólaplötuflóðinu, en ég á bágt með að trúa því að það gerist nú. Ein- hvers staðar las ég eða heyrði að hann vonaðist til að nota plötuna sem kynningu á sér sem söngvara erlendis (í Bandaríkjunum að mig minnir) og verð ég hissa ef þeir falla ekki í stafi þar úti því það eru í raun fáir söngvarar í poppi eða rokki í heiminum í dag sem hafa tærnar þar sem Páll Rósinkranz hefur hælana. íris Stefánsdóttir RÁOHÚSTORGl SAVINGG' Kynlifbreyfrödu Sýnd kl. 2 og 4 meö íslensku tali. samfilm Frumsýning .íSW-'NÝIAt'IÚ Keflavík - sími 421 1170 - samfilm.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.