Morgunblaðið - 17.12.2000, Qupperneq 64
Tf mr ^ HR PÓSTURINN
Einn heimur - eitt dreifikerfi!
\ www.postur.is jg
EE22EES
Alvöru þjónusta
fyrir alvöru fólk
Landsbankinn
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI1,103 REYKJAVÍK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF5691181, PÓSTHÓLF3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 5691122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1
SUNNUDAGUR 17. DESEMBER 2000
VERÐ í LAUSASÖLU 150 KR. MEÐ VSK.
Morgunblaðið/Þorkell
Framleiða límtré í
stærstu verslunarmið-
stöð Portúgals
* 200kíló-
metrar af
grenifjölum
FLUTNINGASKIP hélt í gær áleið-
is til Portúgals með stærsta farm af
unnu timbri sem farið hefur frá Is-
landi. Um borð í skipinu voru lím-
trésbitar í þak stærstu verslunar-
miðstöðvar Portúgals sem er í
(.atyggingu rétt sunnan við Lissabon.
Límtré hf. á Flúðum tók að sér
hönnun á þaki og framleiðslu þakbita
úr límtré í verslunarmiðstöðina, að
sögn Guðmundar Ósvaldssonar
framkvæmdastjóra. Hafa bitamir
verið sendir smám saman út og enn
er eftir að senda hluta þeirra, en
stærsti farmurinn fór um borð í
flutningaskipið Florinda í Þorláks-
höfn í vikunni.
Farmurinn er á fjórða hundrað
tonn að þyngd. í límtrésbitunum eru
um 200 kílómetrar af grenifjölum og
20 tonnaflími.
----------------
^ Vextirhækka
hjá Lánasjóði
landbunaðarins
VEXTIR hjá Lánasjóði landbúnað-
arins verða hækkaðir 1. janúar næst-
komandi og verða vextir á lánum
sem bera 5% vexti eða minna hækk-
aðir um 0,13 prósentustig, en vextir á
lánum sem bera vexti sem eru hærri
en 5% hækkaðir um 0,45 prósentu-
stig,
.Ástæðan fyrir þessum hækkun-
um er fyrst og fremst sú að það hafa
orðið gífurlegar vaxtahækkanir í
þjóðfélaginu,“ segir Guðmundur
Stefánsson, framkvæmdastjóri
(,|p4jánasjóðs landbúnaðarins.
„Vextir hjá bönkunum hafa hækk-
að um 25% sýnist manni en vaxta-
hækkanir okkar á þessu ári eru sam-
tals um 10%.“
Smáköku-
bakstur
fyrir jólin
ÁSGEIR Mogensen, 7 ára, og
litla systir hans Thelma, 1 árs,
eru fyrir löngu komin í jólaskap
og hafa í nógu að snúast fyrir
jólin. Þau hjálpa til við jóla-
baksturinn, baka súkkulaði-
bitakökur og auðvitað verður að
smakka deigið líka.
Bíll lenti í smábátahöfninni í Vestmannaeyjum
Tveir karlmenn létust
TVEIR karlmenn, báðir um sex-
tugt, létust í fyrrakvöld þegar bíll
þeirra lenti ofan í smábátahöfninni
í Vestmannaeyjum.
Mennirnir fóru af stað um
klukkan níu í fyrrakvöld og hugð-
ust aka svokallaðan bryggjurúnt.
Lögreglan í Eyjum hóf eftir-
grennslan í gærmorgun, þegar
mennirnir komu ekki fram, en rétt
fyrir klukkan eitt í gær, laugar-
dag, sá vegfarandi bílinn í höfninni
við Nausthamarsbryggju en þá var
farið að fjara.
Lögreglan fór strax á staðinn og
kallaði til allt tiltækt lögreglulið,
björgunarsveit og kranabíl. Þegar
bíllinn var hífður upp reyndist
ökumaðurinn vera í bflnum og far-
þeginn fannst fljótt í höfninni. Þeir
\fí, : '
ilijlpílljísf
MorgunblaðifVÁsdía
Samvinna Landsvirkjunar og Orkuveitu Reykjavíkur
Nýtt grunnnet sem
nær víða um land
FJARSKIPTAKERFI dótturfyr-
irtækja Landsvirkjunar og Orku-
veitu Reykjavíkur verða sameinuð
upp úr áramótum. Þannig verður
til nýtt grunnnet sem í framtíðinni
mun ná til stærsta hluta landsins.
Lína.Net, dótturfyrirtæki Orku-
veitu Reykjavíkur, og Fjarski,
nýtt dótturfyrirtæki Landsvirkj-
Æ L-l-n ífU •a-n
ÆsfeiíMíiííMfe
6% vextir
Grundvöllur að góðrí framtíð
Æskutínubók er verðtryggður 36 mánaða reikningur
með hæstu vöxtum almennra reikninga bankans.
Forráðamenn barna geta þó bundið reikninginn
til lengri tima, þannig að innstæóan verði laus til
útborgunar við ákveðinn aldur, td. 16 eða 18 ára.
®BÚNAÐARBANKINN
Tramtur banki
unar, kynntu í gær samtengingu
fjarskiptakerfa sinna. Samningur
þeirra felur í sér að fjarskipta-
kerfi, sem Lína.Net hefur verið að
byggja upp á höfuðborgarsvæð-
inu, í Hveragerði, á Selfossi og
Akureyri, tengist fjarskiptakerfi
sem Landsvirkjun hefur byggt
upp á landsbyggðinni. Grunnnet
Fjarska er að meginhluta byggt
upp með ljósleiðurum og örbylgju-
samböndum og spannar stóran
hluta landsins. Grunnnet Fjarska
nær ekki til Akureyrar en að sögn
Guðmundar Inga Asmundssonar,
framkvæmdastjóra Fjarska, er
verið að athuga hagkvæmni þess
að leggja ljósleiðara þangað. Ei-
ríkur Bragason, framkvæmda-
stjóri Línu.Nets, sagði að þessi
tvö fjarskiptakerfi féllu mjög vel
saman.
IP-gagnaflutnings-
kerfí nýr valkostur
Þessi tvö kerfi munu mynda
grunnnetið undir hið nýja gagna-
flutningakerfi sem er IP-netkerfi.
Það kerfi er verið að innleiða um
voru báðir látnir. Ekki er hægt að
greina frá nöfnum þeirra að svo
stöddu.
Lögreglan telur að slysið hafi
orðið skömmu eftir klukkan níu í
fyrrakvöld. Hálka var á bryggj-
unni og fannst bíllinn á hvolfi í
höfninni. Ekki er vitað um tildrög
slyssins en lögreglan vinnur að
rannsókn þess.
allan heim, að sögn framkvæmda-
stjóranna, enda er það mjög hrað-
virkt. Guðmundur lagði á það
áherslu að með uppbyggingu IP-
kerfisins væri verið að bjóða upp á
nýjan valkost til gagnaflutninga.
Fyrirtækin munu reka kerfið sam-
eiginlega en Lína.Net sjá um dreif-
ingu til fyrirtækja og einstaklinga
enda skUgreinir Fjarski sig sem
heildsölufyrirtæki á þessu sviði.
Lína.Net mun einnig samræma
sölu- og markaðssetningu beggja
fyrirtækjanna inn á gagnaflutn-
ingskerfið.
Nýja fjarskiptakerfið
yrði öllum opið
Guðmundur sagði að nýja fjar-
skiptakerfið yrði öllum opið og
taldi hann að flest fjarskiptafyr-
irtæki landsins myndu nýta sér
það að einhverju leyti. Eiríkur
benti á möguleika símafyrirtækja
til að nota kerfið og sagði að það
myndi einnig henta stærri fyrir-
tækjum, meðal annars þeim sem
væru með starfsemi á fleiri en ein-
um stað á landinu.
Drög að samningi
um Borgarieikhúsið
Borgin
leysi til
sfn eign-
arhlut LR
BORGARRÁÐ Reykjavíkur
hefur til umfjöllunar drög að
samningi Leikfélags Reykja-
víkur og borgarinnar um að
borgin leysi til sín eignarhlut
LR í Borgarleikhúsinu á
næstu árum. Verði rekstur
leikhússins tryggður með 180
milljóna króna framlagi á ári
næstu árin en að ákveðnum
tíma liðnum geti borgin ráð-
stafað notkun leikhússins að
vild.
Veitir 180 milljónir til
reksturs 2001
Samningurinn kom til um-
ræðu á síðasta borgarráðs-
fundi en afgreiðsla hans mun
ekki fara fram fyrr en á
næsta fundi á þriðjudaginn
kemur. Reykjavíkurborg hef-
ur undanfarin ár veitt LR 120
til 140 milljóna króna árlegan
rekstrarstyrk en síðustu árin
hefur hann hækkað og verður
180 milljónir króna á næsta
ári.
Gert er ráð fyrir að Leik-
félagið ljúki gerð á nýjum sal
í nýrri tengibyggingu við
Borgarleikhúsið. Nýi samn-
ingurinn á að leysa eldri sam-
starfssamning af hólmi og er
gert ráð fyrir því að eftir
ákveðinn árafjölda sé Reykja-
víkurborg laus allra mála
gagnvart LR og geti ráðstaf-
að rekstri í leikhúsinu að vild.
KSMsmKiK
dagar til jóla