Alþýðublaðið - 04.04.1959, Blaðsíða 9

Alþýðublaðið - 04.04.1959, Blaðsíða 9
( iÞróttir ) Frá aðalfundi ÍR: Aifoert ttgiðnnindsaeii kjörisisi formaður félagsms FIMLEIKADEILD: Á'huginn á fimleikum virðist aftur fara vaxandi inn,an Í‘R og er það vel. Undanfarið hefur verið œft í fimm' f lokkum karla og kvenna og eru æfingar yfir- leitt vel sóttar. Aðalþjálfarar eru Valdimar Örnólfsson, frú Sigríður Val- geirsdóttir og Nanna Úlfsdóttir. 'Eins og sézt á þessu stutta yf- irliti hefur ár,angur ÍR-inga, — bæði pilta og' stúlkna verið framúrskarandi í íþróttum á síð asta ári, eins og svo oft áður. •—o—■ AÐALFUNDUR ÍR var liald- inn 24. marz s. 1. í Iðnó uppi. Formaður félagsins Jakob V. Hafstein setti fundinn. — Fund arstjóri var kjörinn Örn Claus- ; en, en fundarritari Kristmann Eiðsson. Formaðurinn flutti skýrslu sjtórnarinnar og einnig ávarp til ÍR-inga. Jakob r.æddi um gildi íþróttafélaganna fyrir æsk una, semhannóleit ómetanlegt, ef rétt væri á málum haldið. Jakofo þakkaði ÍR-ingum traust og vináttu í fimm ára formanns starfi, en hann gaf ekki kost á sér til formiannskjörs. Ingi Þór Stefánsson las end- urskoðaða reikninga félagsins í forfölium gjaldikerans Finn- bjarnar Þorvaldssonar. Voru þeir samlþykktir einróma og at- hugasemdalaust. 'Gunnar Steindórsson, fyrrver andi formaður ÍR og fundar- stjóri Örn Clausen- héldu ræð- ur og þökkuðu Jakob V. Haf- stein mikil og ómetanleg störf hans í þágu félagsins. Var Jak- ob hylltur með ferföldu húrra- hrópi í þakklætisskyni. Nú, sem oft áður voru afrek ÍR-inga á sviði íþróttanna mörg og mik.il eins og kemur fram í eftirfaraíndi skýrslu stjórnar- innar. FRJÁLSÍÞRÓTTADEILD: Vera m|á, að frjálsíþrótta- menn félagsins hafi staðið sig betur eittíhvert annað árið en 1958, en samt var árangur mjög góður^ ef litið er á árið í heild. Ánægj ulegastur er sá skerfur, sem þeir yngstu hafa lagt til. Á meistaramóti íslands í flokki sveina og drengja, þ. e. 16 ára og yngri og 17—18 ára, kemur í Ijós, að ÍR hefur hlotið fleiri sigra, en öll önnur félög saman- lagt í þessum flokkum. Þetta er mjög ánægjuleg þróun og sýnir skynsamlegt starf. Er tal- in eru saman meistarastig í öll- um aldursflokkum karla, bæði inni og úti er útkoman sú, að ÍR hefur hlotið fleiri meistara- stig en nokkurt lannað félag. Frjálsíþróttamönnum' félags- ins gekk mjög vel, bæði í Víða- vangshlaupinu og Drengjahlaup inu. Báru ÍR-ingar sigur úr být- um í 3ja og 5 manna sveita- keppni beggja hlaupanna. Mestu afreksmenn deildarinn ar létu ekki sinn hlut eftir liggja, en ekkerf félag átti fleiri liðsmenn í EM-liði íslend- inga eða í landshðinu gegn Dön um. Eins og kunnugt er tókst aðeins einum íslendingi, að hreppa verðlaun á Evrópumeist aramótinu, en það var ÉR-ing- urinn Vilihjáilmur Einarsson, — sem varð þriðji í þrístökki með 16 metra. Þe.tta afrek hans gaf Albert Guðmundsson einnig íslandi þessi 4 stig; sem það hlaut á mótinu. Aðeins 2 fslendingar voru meðal 10 beztu í frjálsíþróttum í Evrópu s. 1. ár, það voru Valbjörn Þor- láksson í stangarstökki og Vil- hjálmur Einarsson í þrístökki. Þjálfarar voru Ungverjinn Simonyi Gah.or, sem dvaldi hér s. 1. sumiar og Guðmundur Þór- arinsson- SKÍÐADEILD: Skíðamenn félagsins hafa staðið sig mjög vel á miótum, bæði i’nnanlands og erlendis. Á Reykjavíkurmótmu ihlaut ekk- ert félag fleiri meistara, þrátt fyrir fjarveru beztu mannanna í sumum greinum mótsins. ÍR-ingum gekk einnig vel á Landsmóti skíðamanna, hlutu flesta íslandsmieistara einstakra félaga. Eramkvæmdir við skíðaskíjla ÍR lágu að mestu niðri s. 1. sum ar, en vonir standa til að hægt verði að vinna að því mauð- synjamáli af fullum krafti n-æsta sumar, svo að byggingu skálans ljúhi á þessu ári. Þjálfarar, Eysteinn Þórð.ar- son og Valdimar Örnólfsson. SUNDDEILD: Mörg og stór afrek voru unn- in af sundfólki ÍR s. 1. ár, en þar bera afrek Guðmundar Gísla- sonar hæst. Hann setti annað árið í röð lö íslandsmet og hlaut gullmer.ki ÍSÍ. ÍR-ingar hlutu flesta meist- ara á Reykajvíkurmótinu .1958. Á sundmótunum í vetur ‘hefur gengið sérstaklega vel og á flest um þeirra hefur ÍR átt fleirí sigurvegar.a en öll önnur félög samanlagt og ailtaf flesta. í janúarmánuði gekkst sund- deild ÍR fyrir námskeiði í sundi og var það mjög fjölsótt. Þjálf- ari deildarinnar er Jónas Hall- dórsson. HANDKNATTLEIKS- DEILD: Þó að hand'knattleiksmenn fé lagsins ihafi ekki hlotið neinn meistaratitil á meistaramótun- um á fyrra, var frammistaða þeirra ágæt, þeir voru allsstaðar mjög framarlega. í meistaraflokki karlá sigr- aði ÍR FH, ísl-meistara ársins 1957. en tapaði naumlega fyrir KR, sem1 hreppti titilinn 1958. Var ÍR í öðru sæti á mótinu. Á Reykjavíkurmótinu v.ar ÍR í 3ja sæti 1 meistaraflokki og allir yngri flokkarnir stóðu sig vel. í liði því, sem1 ísland sendi á HM í fyrra voru tveir ÍR-ingar, en ekkert félag átti fleiri menn í landsliðinu, sem fór til Norð- urlandia í síðasta mánuði, voru fjórir ÍR-ingar i því. Hinn kunni handknattleiks- maður félagsins, Gunnlaugur Hjálmarsson þjálfaði karlaflokk an,a fyrir áramót, en nú sér Frímann Gunnlaugsson um þjálfunina. Guðmundur Þórar- insson þjálfar nýstofnaðan kvfi ÍR. KÖRFUKNATTLEIKS- DEILD: Það er mikill áhugi á körfu- knattleik innan ÍR og félagið á raarga snjalla flokka í þeirri grein. Á íslandsmótinu 1958 urðú ÍR-stúlkurnar meistarar, en maistaraflokkur karla sigraði á Reykjavíkurmótinu. Öðrum flokkumi gekk einnig vel. Þessa dagana stendu yfir ís- landsmót í körfuknattleik og árangur félagsins á mótinu hef ur verið ágætur til þessa. Álbert Guðmundsson var kjörinn formaður ÍR mieð lófa- taki, en með honum í stjórn eru: Sigurjón Þórðarson, vara- formaður, Atli Steinarsson, rit- ari, Finnbjörn Þorvaldsson, gjaldkeri, Ingi Þór Stefánsson, meðstjórnandi. Varamenn: Örn Eiðsson og Guðmundur Þórar- insson. Fráf.arandi formaður óskaði hinni nýju stjórn gæfu og gengis og gat sérstaklega hins nýja formanns, er væri víð- kunnur íþróttakappi, viður- kenndur dugnaðar- og dreng- skaparmiaður, sem myndi lyfta nafni ÍR hærra og hærra og efla félagið með þroska og virð- ingu bæði innávið og útávið. Lokaorð Jakobs í ávarpi hans til félagsmianna voru: Félagslega verða ÍR-ingar að herða sig. — Þar er veila í starfseminni, sem auðvelt er að bæta. — Samheldni, traust og skilningur, vinnusemi og gleði til félagslegs sam- starfs, samstarfs innávið jafnt sem útávið, er ekki sem skyldi. Starfið Ihvílir á of fárra manna höndum. — Hér bíður mesta verkefni Ihinnar nýju .stjórnar félagsins og vonandi mun vel og giftusamlega úr því rætast. Björgun Hélm 9,15 m. f þrístökki án alrennu FRJÁLSÍÞRÓTTAMENN ÍR héldu innanfélagsmót í stökk- um án atrennu á miiðvikudags- kvöldið og náðist ágætur árang ur. Valbjörn Þoríáksson sigraði í Ihástökki án atrennu stökk 1,63 m., annar bezti árangur fslendings, bræðurnir Karl og Björgvin Hólm stukku 1,57 m. Björgvin Ilólm sigraði bæði í langstökki og þrístökki án at- rennu. Hann náði 3,18 m. í lang stökki og 9,85 m. í þrístökki, en það er bezti árangur í þeirri grein hér í ár og næstbezta af- rek íslending, aðeins Vilhjálm ur Einarsson hefur . stokkið lengra, 10,03 m., en það afrek vann hann 1958. Víðavangshlaup ÍR verður háð 23. apr. VÍÐAVANGSIiLAUP £R, — það 44. í röðinni verður háð á sumardaginn fyrsta 23. apríl eins og venjulega. Keppt verður um tvo bikara í 3ja og fimrn manna sveitum, en handhafi beggja er ÍR. — Þátttaka tilkynnist Bjarna Linn ■et, c/o Pósthúsinu í síðasta lagi sunnudaginn 19. apríl n. k. (Frá Frjálsíþróttadeild ÍR) No. 4676 kom upp í happdrætti HSÍ. VINNINGURINN í happdrætti Handknattleikssambiands ís- lands, sem er flugferð með flug vél Loftleiða tii New York og heim aftur er genginn út fyrir nokkru. Númer 4676 kom uPP, og handhafi miðans var Georg Ólafsson. Vinsælar fermSngar- gjafir; Viðleguútbúnaður 7 Veiðistengiir Skíðaútbúnaður 7 SPORY Austurstræti 1 Sími 13-508 Nylonsokkar Nærföt karla — Nærföt kvenna — Nærföt baxna — Sokkar karla — Sokk- ar kvenna — Sokkar barna — Smávörur. Karlmanna- hattabúðin, Thomsenssundi, Lækjartorgi. Fyrir ferming- arstúlkur: Hvítar peysur . 7 Jakkar Töskur Hanzkar Slæður Pils Haffabúð Reykjavskur Laugavegi10 ársins í UsÍantannaskátamHn Ný Hamilton Beach hrærivél með hakkavéi — Skíðasleðar — Niður- suðuvörur — Saltfiskur — Rafmagns katlar — Prjónles — Skartgripir og óteljandi margt fleira. t—“U' citss.vw’ á morgun tll ágóða fyrir Barnaspítalann. Munið skyndihappdrættið! — Dregið að kvöldi. — Farseðill til Kaupmanna- hafnar — Prjónavél — Brúður — Benzín — Sögusafn ísafoldar — Skál úr alahasti — Peningar. ■T* Alþýðublaðið — 4. apríl 1959 0

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.