Alþýðublaðið - 08.04.1959, Side 7
n
r hann.
í NÆSTU VIKU mun all-
ur heimurinn sameinast í
hamingjuóskum til lítils
manns í alltof stórum stíg-
vélum, í allt of stórum bux-
um, í dálítið snolluðum
jakka, með dálítið of lítinn
pípuhatt, með mjóan bamb-
usstaf, sem er e'ins og tákn
hins ókúgandi glæsileika í
miðri niðurlægningu fá-
tæktarinnar og getur þjón-
að sem tæki til tjáningar í
ótrúlega flóknum sálræn-
um viðbrögðum, með kostu
legt yfirvararskegg á and-
liti, sem á einni svipstundu
getur endurspeglað tilfinn-
ingar þúsundanna allt frá
skelmissvip versta skúrks
til göfugmannlegs yfir-
bragðs ljóðræns hugsuðar.
1 stuttu máli sagt: Charlie
Chaplin verður sjötugur í
næstu viku.
Hinar þöglu myndir
Chaplins, 80 að tölu, hafa
verið sýndar og séðar um
heim allan. Hver og ein hef
ur að meðaltali verið sýnd
fyrir 350 milljónir manns
og um helming þeirra er
stöðugt verið að sýna við
mikla aðsókn og svo virðist
muni vera um ófyrirsjáan-
lega framtíð. Hvorki kyn-
þáttahatur, trúarofstæki né
stjórnmál hafa á nokkurn
hátt komið við frægðar-
sögu Chaplins. Rauðir Rúss
ar í Moskvu, kolsvartir íbú-
ar Jóhannesarborgar, sheik
ar í tjöldum sínum í fínasta
kvikmiyndahúsi Damaskus,
allir taka þátt í sorg Chap-
lins og gleði.
Blómatímabil þöglu kvik
myndanna var aðeins þrjá-
tíu ár. Söguskoðarar kom-
andi tíma eiga eftir að fella
dóm sinn varðandi menn-
ingarlegt gildi þeirra, en
eitt er þó víst. Þöglu kvik-
myndirnar leiddu fram í
sviðsljósið a. m. k. einn
snilling, Charlie Chaplin.
Æska Chaplins var sér-
stæð, en ekki eins skugga-
rík og ýmsir hafa viljað
vera láta. Hann svo að segja
fæddist á sviðinu og á
þriðja ári kom hann fyrst
fram. Þá þegar átti hann
hyllj áhorfenda. Síðar átti
hann eftir að fá að kynnast
því örlítið hve veröldin get-
ur verið skeytingarlaus og
harðhent við börn sín. Móð
ir hans varð geðveik, faðir
hans drykkjurútur, og
Charlie var komið fyrir á
barnaheimili. Síðar var
hann eitt ár blaðasöludreng
ur í London og voru þá ó-
seldu blöðin oft eina teppið
til að breiða ofan á sig í
vetrarkuldunum. Þetta voru
þó aðeins stundarerfiðleik-
ar, því Ohaplinfjölskyldan
átti góða að, og þegar 10—
11 ára hafði Charlie getið
sér góðan orðstír sem leik-
ari í barnaleikritum.
Chaplin 63 ára — í mynd-
inni „Limelight.“
Chaplin var ekki ungur,
hungraður, óþekktur lista-
maður, þegar hann kom til
Bandaríkjanna eins og róm-
antískt fólk vill vera láta.
Hann var þá þegar dáður
leikari í sirkus, sem fræg-
ur var á þessum tíma og far
ið hafði í sýningarferðir
víðs vegar. Og hinn 23 ára
gamli Charlie Chaplin átti
íbúð í New York búna for-
dýrum húsgögnum, tyrk-
nesk teppi þöktu salarveggi
og austurlenzkir lampar
slógu dularblæ á umhverf-
ið. Hann vann sér þá 50
dollara inn vikulega og var
það dágóður skildingur í
þann tíð.
Sigurbraut Chaplins hófst
þó raunar eins og vera ber
með, algjörri misheppnan,
en það var aðeins fyrsta
skrefið fyrir framan kvik-
myndavélina. Hamingjusól
hans hækkaði brátt og enn
er hún ekki sigin til viðar.
Enn er rifizt um réttinn til
að sýna myndir hans og
sjötugur er hann kallaður
konungur kvikmyndanna,
★
PIPARKÁRL
ÞEKKTASTI skilnaðar-
dómari í Englandi, Bern-
ard að nafni, hefur nú dreg
ið sig í hlé. Hann var þekkt
ur fyrir kaldhæðnislegar
athugasemdir við réttar-
höld í skilnaðarmálum,
eins og til dæmis þetta:
— Trú eiginkona? —
Skyldu þær nú líka vera
til á okkar dögum?
Og þegar verjandi á-
kærðrar eiginkonu sagði
eitt sipn:
— Engin kona mun þó af
fúsum vilja viðurkenna, að
hún hafi verið manni sín-
um ótrú, — þá hreytti
Bernard út úr sér:
— O, skyldu þær hafa
meira á móti því en karl-
mennirnir!
Bernard hefur séð fleiri
óhamingjusöm hjónabönd
renna alveg út í sandinn en
nokkur annar maður, — og
honum stendur hjartanlega
á sama. Hann er piparkarl
og segist munu verða það.
☆
Heimsnte
FRANSKUR flugmaður
segist hafa sett heimsmet í
að fljúga flugvél öfugri.
Hann var tvo tíma á flugi,
en gamla metið var aðeins
75 mínútur. Hann flaug
tveggja sæta kennsluvél, en
þegar hún hafðj verið þessa
tvo tíma á lofti (öfug),
varð hún benzínlaus, og
tókst heimsmethafanum
naumlega að nauðlenda.
Eftir á sagði hann, að senni
lega hefði benzinleysið
bjargað lífi sínu, því að
farið var að blæða rir nös-
um og eyrum.
lá í bátinn,
kyrrlátum
mzar hann
að verður
að frelsa
erður vand
lega gætt, og það er hægra
sagt'en gert að komast burt
úr þessum dal. Sjáðu, ég
skal sýna þér, hvert flótta-
leiðirnar liggja." Hann riss
ar nú upp teikningu af daln
um og sýnir á teikningunni
þær leiðir, sem munkarnir
nota, þegar þeir fara burt
í leiðangra. Á meðan Frans
og Bob ræða þetta, er
þjónninn á hraðri ferð til
byggingarinnar. — Þegar
þangað kemur skipar hann
nokkrum mönnum að koma
með sér á báti út á vatnið
til þess að taka flóttamenn-
ina tvo höndum.
MOCó
JP
Myndavélar
til fermmgargjafa
Góð 6x6 kassavél kr. 286.—
og með tösku kr. 381.—
Góð 6x9 útdregin myndavél kr, 422.—
og með tösku kr. 541.—
Verzlun Hans Petersen^
Bankastræti 4 — Sími 13213.
ákranes
Tveggja íbúða steinhús til sölu.
Laust til íbúðar 1. maí n. k.
Upplýsingar gefur Hálfdán Sveinsson, Akránesi,
Sími 392.
Haldið vélinni í bifreið yðar ávallt hreinni.
Höfum tekið í notkun þvottavél, sem gufuþvær
bílvélar. Véiarnar eru þvegnar f bifreiðunum.
. Fljót afgreiðsla.
Bifreiðaverksiæði
Hrafns Jónssonar
Brautarholti 22 — Sími 22255.
álalfimdur
Flugfélags íslands hf.
verður haldinn í Kaupþingsalnum í Reykiavík, föstian
daginn 8. maí kl. 14.
Dagskrá:
Venjuleg aðalfundarstörf.
Atkvæðaseðlar og aðgöngumiðar að fundinum, verða
afhentir í afgreiðslu félagsins, Lækjargötu 4, daganfj
6. og 7. maí.
Stjórnin.
Höfum fil sölu
að Skúlatúni 4, skolplagnaefnj 2“, 3“ og 4“. Vatns-<
kassa sem nota má fyrir lofthitunarkerfi, trétex 1‘*.
Delco Remy, Dinamó, Startara: Anchor o. fl.
Rafmagnsrör 1“ og 114”.
Sölunefnd varnarliðseigna.
Ylþýðublaðið — 8. apríl 1959
a