Alþýðublaðið - 19.06.1959, Page 1

Alþýðublaðið - 19.06.1959, Page 1
40. árg. — Föstudagur 19. júní 1959 — 125. tbl. HANNÍBAL, Valdimars- son heldur áfram að þeys- ast Um landið, efna til á- róðursfunda — og ganga fram af fundarmönnum. Upp á síðkastið hefur hann hamast við að lýsa . yfir þeirri skoðun, að Al- þýðuflokkurinn muni þurrkast út í kosningun- um, en Framsókn og Al- þýðubandalag fá hreinan meirihluta á þingi og mynda ríkisstjórn. En hvað verður þá um kjördæmamálið? verður fundarmönnum auðvitað á að spyrja. Og þá stendur Hannibal mállaus í pontunni. SVONA lá vatnsflaumur- inn á stöðvarhúsinu í gær morgun. Sívalningurinn fremst á myndinni var inni í jarðgöngunum. Þrír rnenn voru í stöðvarhús- inu þegar vatnsveggurinn kom niður göngin. Einn bjargaðist upp á þak, ann- ar fleygði sér út um glugga og hinum þriðja tókst einhvernveginn að vaða út úr húsinu og bjarga sér á þurrt. SJÁ MYNDIR Á 3. 0G 12. SÍÐU ♦ ATBURÐIRNIR við Efra-Fall £ Sogi geta leitt alvarlegan rafmagnsskort yfir Reykjavík og Suðurlandsundirlendi. Fari svo, eru afleiðingarnar ófyrirsjáanlegar. Vafnsborð Þingvalla- vatns hélt áfram að lækka í gær, og takist ekki að hefta vatns rennslið um skarðið í varnargarðinum, sem lét undan þunga vatns og veðurs skömmu fyrir hádegi 17. iúní, vofir vatnsskort ur yfir virkjununum við Ljósafoss og Ýrufoss. Engu skal um það spáð hvað bá tekur við. En á leikmannsmáli má segja, að svo liafi litið út í gærdag sem sú hætta vofði yfir Þingvalla- vatni, að það missti nauðsynlegt vatnsmagn 'sitt út um flóð- gáttina, sem opnaðist svo óvænt. Þá var gizkað á3 að yfirborð vatnsins hefði þegar lækkað um 30 sentimetra. Og þá varð engu um það spáð, hvenær takast mundi að hefta vatnsflauminn, sem ætla má að þegar hafi valdið milljónatjóni. BRYNDÍS Pétursdóttir Miðbænum, og menn virt- var Fjallkona Reykvík- ust skemmta sér ágætlega, inga á 15 ára afmæli lvð- þótt rauðar kinnar og blá veldisins. Myndin er tek- nef klæddu þá misjafn- in í Alþingisgarðinum. lega. Um kvöldið var dansað í •MMWIWl-MmMMHMMUMMUMHMMIHMMMtMMMHMM Annars var í gærdag mjög erfitt að henda reiður á, hvað í raun og veru var að gerast við Sogið. Næirri ógerningur var að ná í ábyrga menn, og þeir sem fundust, vörðust frétta eftir megni. Blaðinu tpkst til dæmis ekki að fá öruggt sVar við þessum sp.urningum:. 1) Á hvað eru þau verðmæti metin, sem þegar er vitað að hafa gjöreyðilagst? 2) Hvar eru vélar oa mann- virki tryggð og um hve háar upphæðir er hér að ræða? 3) Hver eða hverjir fá skell- inn? Glöggur verkfræðingur, sem blaðið náði í sem snöggyast á ) sjötta tímanum í gær,.taldi, að ástandið við Sog mundi skýr- ast með deginum í dag og morg j undeginum. Hann kvað ekki hægt að slá því föstu að menn á orkusvæðum Ýrufoss- og Lj ósafossvirkjanna yrðu að búa sig undir rafmagnsskort. En hann Þvertók alls ekki fyr'ir, að erfiðleikar. í þessum' efnum gætu verjh framundan. Þessi verkfræðingur var að fara austur að Sogj, þegar blað- ið náði í hann. Á bæj arskrif stof u Reykj avík- ur var engar fréttir að fá. Þar yísaði hver til annars. En ábyrg ir menn, sem til náðist, voru daufir í bragði og kvíðnir. Það er ekki um að villast, að hér hafa gerst uggvænleg tíð - indi. Næstu dágar munu sennilega skera úr um það, hversu alvar- legt ástandið er. Stjórn Sogs- virkjunarinnar mun sennilega í dag fá bráðabirgðaskýrslu um málið. Hún mun þá væntanlega — og vonandi — leyfa blöðum að birta almenningi sannar og glöggar upplýsingar um ástand- ið. Þánnig — og aðeins þannig i— er hægt að komá í veg fyrir flugufregnir. Alþýðublaðið sendi tvo frétta menn snemm.a í gærmorgun upp að Efra-Falli til myndatöku og fréttaöflunar. Hér er frá- sögn þeirra: o—o—o VABNARGARÐURINN, fyr- ir ofan jarðgöng Efra-Fallsvirkj Framihald á 2. síðu. HÉR geta menn glöggvað sig á virkjanasvæðinu við Sogið. TVÖ dauðaslys urðu í Reykja vík í gærdag með skömmu milli bili. Miðaldra kona kafnaði af völduirv reyks í eldsV|oða og ungur piltur varð undir vöru- bifreið. Mun hann hafa látizt samstundis, en konan, sem mun hafa verið sofandi, kornst aldr- ei til meðvitundar. Það var kl. 2,15 að Slökkvi- liðið í Reykjavík var kvatt að Múlakamp 3, þar sem eldur var laus í herskála. Þegar kom- ið var á vettvang, var skálinn fullur af reyk, en fólk áleit að einihver væri þar inni. Bruna- verðir réðust ti linngöngu og fundu þá konu liggjandi á legu bekk. Var konan flutt á Slysa- varðstofuna, þar sem lífgunar- tilraunir voru reyndar, en án Framhald á 2. síðu. 1 >

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.