Alþýðublaðið - 11.07.1959, Page 5
Atómniósnarinn æflar að vinna að
Hvernig atóm-sprengja virkar. Uppdráttur eftir Fuchs.
NÍU ÁRA og 115 daga dvöl
í ensku fangelsi hafa dýpk-
að hrukkurnar í hinu háa
enni vísindamannsins með
meinlætissvipinn Andlitið er
þynnra og augun hvassari og
gáfulegri en fyrir tíu árum,
þegar þessi maður var dæmd-
ur fyrir njósnir á játningu
sinni einni saman. Og í brjóst-
vasanum var röð af blýönt-
um, hinum einföldu og ómiss-
andi tækjum stærðfræðings-
ins.
Fimmtán mínútum áður en-
pó'ska fiugvélin átti að leggja
upp frá London einn góðan
veðurdag fyrir nokkru síðan,
komu þrír leynilögreglumenn
frá Seotland Yard með Klaus
Emil Julius Fuchs á flugvöil-
inn. Hinn 47 ára eðlisfræðing
ur var nú laus úr fangelsi eft-
ir að hafa afpiánað dóm fyrir
njósnir í þágu Rússa. Hann
settist upp í pólsku flugvélina
og skömmu síðar sveif hún í
átt til Berlínar, Aiistur-Berl-
ínar. .
Blaðamaður frá Daily Ex-
press, sem upp á von og óvon
hafði fengið sér far með sömu
flugvél í þeirri von að geta
rætt við Fuchs á leiðinni, fékk
ekki orð upp úr honum fyrr
en flugfreyjan tilkynnti að nú
væri komið inn á yfirráða-
svæði Austur.-Þýzkalands. Þá
sneri Fuchs sér að blaðamann
inum og sagði: — Ég skai
segja yður að ég er Englend-
ingum ekkert ramur, -k- Um
Bandaríkin vil ég ekki ræða.
Mér þykir vænt um að vera
kominní til Austur-Þýzka-
lands.
Enda þótt Fuchs væri ekki
gramur við Breta né Vestur-
veldin þá voru. margir, sem
veltu- fyrir sér hvort Bretar
hefðu ekki ástæðu til að vera
honum gramir. Það var enska
stjórnin, sem veitti honum
hæli fyrir ofsóknum naznsta á
sínum tíma, og 14 ára fangelsi
í stað dauðadóms, þar eð segja
mátti að njósnir hans á stríðs-
árunum hafi verið í þágu
bandamanns. Honum var
sleppt löngu áður en sektar-
tíminn rann út og hann fékk
þegar í stað að fara hvert á
iand, sem hann vildi.
Hvað meinti Fuchs með því
að segja að honum þætti vænt
um að vera kominn til Aust-
ur-Þýzkalands? Ætlar hann
sér að taka upp starf fyrir
kommúnismann eins og áður?
Hafði hann einhver leyr.dar-
mál í fórum sínum? Og síðast
en ekki sízt: — hafði honum
tekist að fylgjast svo með
framþróun eðlivísindanna að
hann gæti á stuttum tíma náð
á tindinn aftur?
Dr. Hahs Bethe, fyrrum yfir
maður Fuchs við kjarnorku-
rannsóknarstöðina í Los Ala-
mos sagði nýlega: •— Þekking
Fuchs á kjarnorkuvopnum er
einskis virði í dag. En gáfur
hans eru dýrmætar. Hann var
fyrsta flokks eðlisfræðingur.
Þegar Fuchs kom til Los
Alamos 1943 og hóf samstarf-
ið við dr. Bethe, var hann þeg
ar svikari, og stóð í föstu. sam
bandi við Moskvu og njósna-
hringi Rússa í Bandaríkjun-
um. Enda þótt Bretar vissu
árið 1933 að hann hefði verið
meðlimur þýzka kommúnista
flokksins var honum veittur
brezkur borgararéttur og sett-
ur í ábyrgðarstöður. í Los
Alamos vann hann við rann-
sóknir á mestu leyndarmálum
kjarnorkunnar.
Starf Fuchs í Los Alamos
var mikilsvirði fyrir Banda--
ríkjamenn en á sama tíma
ekki síður gagnlegt fyrir
Rússa. Hann sendi þeim þegar
í stað allar þær upplýsingar,
sem- hann komst yfir varðandi
Framhald á 10. síðu.
k.
Horfúr í haustkósningum
á
sér að leiða lista íhaldsins.
Að Jóni frágengnum dett-
ur mönnum í hug Jón Is-
berg.
f þessu kjördæmi geta
orðið átök um efsta sæti á
lista kommúnista. Gunnar
Jóhannsson er ólíklegur til
að leggja í þá atlögu, enda
var eitt helzta baráttumál-
ið fyrir hans hönd á Siglu-
firði að kjósa hann, því
hann skorti aðeins eitt þing
til að fá eftirlaun alþingis-
manna. Þeim nær hann,
blessaður karlinn.
A- UNGIR MENN EÐA
GAMLIR Á NORÐ-
URLANDI EYSTRA?
Eyjafjörður, Akureyri
og Þingeyjarsýslur eru á-
líka stórt kjördæmi og
Reykjanesið hvað mann-
fjölda snertir og hefur sex
þingmenn. Þar sýndu júní-
kosningarnar að Framsókn
fær þrjá þingmenn, Sjálf-
stæðismenn tvo og komm-
únistar einn.
Hjá Framsóknarmönnum
er eina spurningin um
mannaval varðandi Bern-
harð Stefánsson: Hættir
hann eða heldur áfram?
Verði hann enn í kjöri, er
líklegt að hann verði efst-
ur, Itarl Kristjánsson ann-
ar, Gísli Guðmundsson
þriðji og Ingvar Gíslason
fyrir Akureyri fjórði, þrátt
fyrir mjög góða útkomu í
júní. Verði Bemharð hins
vegar ekki í kjöri, kemur
til álita, hvort Ingvar
flyzt upp eða Garðar Hall-
dórsson bóndi tekur sæti.
Flokksstjórnin reyndi
f ÞESSUM greinum um
horfur til haustkosninga
er, hvað líklegt kjörfylgi
flokkanna snertir, borið
saman við kosningarnar i
júní. Er varla við annað að
styðjast, enda þótt flestir
telji, að úrslit í hinum
stóru kjördæmum kunni
að breytast verulega og
fara eftir töluvert öðrum
sjónarmiðum en áður.
★ HVAÐ VERÐUR Á
NORÐURLANDI
VESTRA?
Við Hrútafjörðinn skipt-
ir um og kemur í héruð,
þar sem Framsóknarmenn
hafa verið fjölmennastir.
í Norðurlandskjördæmi
vestra mundu þeir, eftir
úrslitum júníkosninganna,
liljóta þrjá þingmenn, en
Sjólfstæðismenn tvo.
Á þessu svæði hefur
Framsókn þrjá kjörna þing
menn, þá Skúla Guðmunds
son, sem vafalaust verður
efstur, Ólaf Jóhannesson
prófessor og Björn Pálsson
á Löngumýri. Þeim ganga
næstir Jón Kjartansson,
forstjóri Áfengisverzlunar-
innar, og Kristján Karls-
son skólastjóri á Hólum.
Sjálfstæðismenn eiga
tvo kjörna þingmenn á
þessu svæði, séra Gunnar
Gíslason og Einar Ingi-
mundarsop bæjarfógeta á
Siglufirði. Þá vantar al-
gerlega mann fyrir Húna-
þing, þar sem fallinn er
Jón bóndi Pálmason. Ólík-
legt er talið, að Jón leggi
til orrustunnar enn á ný,
lengi að fá Eyfirðinga til
að taka Jóhannes Elíasson
bankastjóra sem erfða-
prins Bernharðs, en heima
maðurinn varð hlutskarp-
ari.
Hjá Sjálfstæðismönnum
verður Jónas Rafnar án
efa efstur og Magnús Jóns-
son frá Mel annar. Komm-
únistar setja Björn Jóns-
son að líkiridum efstan,
enda fylgi þeirra langmest
á Akureyri.
ÞINGMANNAHRUN
Á AUSTURLANDI.
Austurlandskjördæmi hið
nýja mun fá fimm þing-
menn, en hefur haft sex
— verður hið eina, þar
sem þingmannatalan lækk-
ar. Hitt verður örlagarík-
ara, að Framsóknarmenn
eiga nú alla þessa sex þing-
menn, en munu samkvæmt
júníúrslitunum aðeins fá
þrjá af fimm, íhaldið einn
og kommúnistar einn.
Gera má ráð fyrir, að
Páll Zóplióníasson dragi
sig í hlé, svo að eftir eru
fimrri menn um þrjú sæti.
Eysteinn Jónsson verður
án efa efstur, og líklega
Halldór Ásgrímsson annar
og Páll Þorsteinsson þriðji.
Þá verða þeir eftir Björg-
vin Jónsson, sem yrði að
binda endi á stuttan þing-
mannsferil í litlu kjör-
dæmi, og Vilhjálmur
Hjálmarsson, sem er orð-
inn ýmsu vanur í skugga
Eysteins.
Sjálfstæðismenn eiga
samtals um 1.000 atkvæði
á Austfjörðum, og munu
margir hafa rennt hýru
auga til væntanlegs þing-
sætis. Ógerningur er enn
að spá, hver hnossið hlýt-
ur: Sveinn bóndi Jónsson
á Egilsstöðum; Erlendur
bæjarfógeti á Seyðisfirði;
auðugasti maður landsins
Einar Sigurðsson eða Sverr
ir Júlíusson, sem verið
hefur einn af fremstu for-
ustumönnum útgerðarinn-
ar.
Ekki þarf að efast um,
að Lúðvík Jósefsson verði
efstur á lista kommúnista,
og er nú reynandi fyrtr
hann að segja Austfirðing-
um, að það verði heims-
viðburður, ef hann nær
kosningu, eins og hann
taldi verða í júní, ef hann
félli.
+ SEX SÆTI
SUÐURLANDS-
KJÖRDÆMIS.
Suðurlandskjördæmi fær
sex þingmenn og skiptast
þeir eftir síðustu úrslitum
jafnt milli Framsóknar og
íhaldsins.
Hjá Framsókn má búast
við, að Ágúst bóndí Þor-
valdsson verði efstur,
Björn Björnsson sýslumað-
ur Rangæinga annar og
Óskar Jónsson alþingis-
maður í Vík þriðji. Hins
vegar var Helgi Bergs,
framkvæmdastjóri Aðal-
verktaka, setíur í franiboð
í Vestmannaeyjum í þeim
tilgangi að draga síðar að
listanum á Suðurlandsund
irlendi, þar sem nafn hans
og ætt gæti hjálpað. Er
engirin efi á því, að flokks-
forustan hefur meiri á-
huga á honum en Óskari,
þótt sennilega verði erfitt
að úthýsa Óskari eftir sig-
urinn.
Hjá Sjálfstæðismönnum
verður Ingólfur Jónsson
sennilega efsjtur, þótt þeir
hafi fleiri atkvæði Sigurð-
ur ÓIi Ólafsson á Selfossi
og Guðlaugur Gíslason
bæjarstjóri í Eyjum. Ýms-
ir bjuggust við, að Sigurði
kynni að verða kastað fyr-
ir séra Jónas Gíslason í
Vík, því Skaftfellingar
hafa verið Sjálfstæðis-
flokknum erfiðir í ýmsu í
ár, en Sigurður bætti við
sig aíkvæðum þrátt fyrir
kjördæmamálið og er vand
séð, að hreyft verði nú við
honum.
Karl Guðjónsson tapaði
fyrir kommúnista í Eyjum
og er á niðurleið, en marg-
ir Aíþýðubandalagsmenn
á undirlendinu hafa snúið
við kommúnistum bakinu
og fleiri munu gera það,
þegar Hannibal verður
sendur í útlegðina.
Þá er þessari hringferð
lokið og verður Reykjavík
skilin eftir í þessari um-
ferð. Fróðlegt kann að
verða síðar að segja fregn-
ir af vangaveltum og spá-
dómum, því margt getur
breytzí á þeim 3—4 mán-
uðum, sem eiga eftir að
Hða til kosninga.
þótt hann hafi án efa ætlað
Alþýðublaðið — 11. júlí 1959 *|