Alþýðublaðið - 15.07.1959, Síða 9
( ÍÞróltir -)
Heimsckn JBU:
varð iafntefli 1:1
alitlum leik
ÞRÍÐJI og síðasti leikur
Jóta (JBU) fór fram á Laug-
ardalsleikvanginum á mánu-
dagskvöldið. Léku Jótar þá
við úrval Suðvesturlands,
sem er eins konar opinbert
dulnefni á landsliðinu.
Nokkru fyrir leikinn gerði
hellirigningu, sem átti sinn
þátt í að draga úr aðsókn og
-gera völlinn glerhálan. Kom
hálkan á vellinum verr við
úrvalið en gestina, sem van-
ari eru að leika á grasi við
misjöfn skilyrði.
Lið Jótanna var nú skipað
þeirra sterkustu leikmönnum
og úrvalið líkt og gegn danska
landsliðinu, bó með beim
breytinum, að Rúnar, sem þá
lék bakvörð, lék nú miðfram-
vörð í stað Harðar Felixson-
ar og Árni Njálsson bakvörð
í stað Rúnars. Þá kom Helgi
Jónsson inn sem framvörður
í stað Garðars Árnasonar.
Ekki var séð að þessar breyt-
ingar veiktu liðið að neinum
mun frá bví sem var í lands-
leiknum. Rúnar átti t. d. góð-
an leik sem miðframvörður
og hafði í fullu tré við hinn
ágæta jóska miðherja, sem
var sá sami og í landsleikn-
um, og Árni Njálsson stóð sig
mjög vel í baráttunni við h.
útherjann, sem var einn af
leiknustu mönnum Jótanna.
Skiptin á Helga og Garðari
mega og teljast hagkvæm,
miðuð við leik Garðars í
landsleiknum við Dani, en þar
m
HANN heitir Seye og er
nýjasta stjarnan í heimi
frjálsíþróttanna. Hann er
franskur og setti nýlega Ev-
rópumet í 100 m hlaupi —
10,2 sek. — og náði tíman-
um 46,6 sek. í 400 m hlaupi.
HWWWWMMMMMMWMWW
var danski hraðinn og ná-
kvæmnin honum ofviað.
V'
Fyrstu 12 mínútur leiksins
voru mest spennandi og á
þeim tíma voru þau tvö mörk
sém gérð voru í leiknum,
sköruð. En honum lauk með
jafntefli 1:1. Má úrvalið hrósa
happi að ekki fór ver, því
það mörg tækifærj áttu Jót-
arnir á markið fram yfir það,,
svo að undravert má teljast, að
enginn knöttur nema þessi
eini, skyldi hafna í netinu.
Þegar á 3; mínútu átti Kjær
fast skot í slá og innherjinn
Arentoft annað skot rétt þar
á eftir. Helgi missti af knett-
inum en náði til hans aftur í
tæka tíð. Á 5. mínútu er sókn
úrvalsins, sú eina í leiknum,
sem tókst virkilega vel. Þór-
ólfur fær knöttinn sendan,
leikur hratt á tvo varnarleik-
menn og sendir af nákvæmni
fram og u\a leið brunar Rík-
harður inn og skorar með
snöggu og öruggu skoti. í sjö
mínútur stóðu svo leikar 1:0
úrvalinu í hag, en þá jöfnuðu
Jótarnir, og voru þar að verki
útherjar þeirra. Kjær fær
knöttinn, leikur á Hreiðar, og
það gerði hann reyndar oft-
ast, og sendir fyrir markið há-
an bolta, sem h. útherjinn tek-
ur á móti af lofti og sendir
á markið viðstöðulaust, með
þvílíku þrumuskoti, að við
ekkert var ráðið.
Þessi tvö mörk, aðdragandi
þeirra og lokatilþrif voru há-
punktar leiksins. Það sem eft-
ir var fyrri hálfleiksins skeði
ekki neitt markvert, sem í
frásögur sé færandi. Þófkennd
barátta á báða bóga, með ein-
staka langskoti að marki, sem
engin ógn stóð af.
í síðari hálfleiknum skall
hurð oftar en einu sinni
nærri hælum við mark úr-
valsins. Á 10. mínútu varði
Árni Njálsson á línu, eftir að
Helgi hafði misst knattarins.
Á 22. mínútu varði Hreiðar
á línu, knött, sem skallað
hafði verið úr þvögu, sem
myndaðist fyrir framan mark
ið, og enn bjargar Hreiðar í
horni marksins á 33. mínútu.
Einnig varði Helgi mjög fast
skot frá v. innherja, og loks
eiga Jótar fast skot í slá frá
miðherja stuttu fyrir leikslok.
í þessum hálfleik má segja,
að úrvalið ógnaði aldrei að
neinu ráði jóska markinu, þó
komust framherjar þess nokkr
um sinnum í sæmilegt færi
við það, en annað hvort voru
þeir of seinir að nýta þau, eða
skotin fóru yfir og utanhjá.
Þórður Jónsson sem lék v. út-
herja, átti til dæmis sæmileg
færi, en þau mistókust. Rík-
harður gerði tilraunir til að
brjótast í gegn, en hans var
nú gætt vel.
í knattleikni stóðu liðs-
menn úrvalsins yfirleitt að
baki hinum jósku mótherjum,
svo sem í hinum fyrri leikj-
um. Jótarnir notuðu eins og
áður útherja sína óspart og
opnuðu með því vörn mót-
herjanna, enda voru það einna
snjöllustu leikmenn þeirra í
framlínunni, og það voru þeir
sem kvittuðu. „Taktik“ úr-
valsins nú, eins og oftast áð-
ur, var sú, að brjótast það
beint, með Ríkharð í broddi
fylkingar. Þetta heppnaðist
eirm sinni, en ekki oftar. Örn
Steinsen, sem nú er ótvírætt
bezti útherji sem við eigum,
um, fékk knöttinn áberandi
sjaldan sendan, var þó yf-
irleitt á sínum stað og til
taks. S'amvinna hans og Rík'
harðs, sem innherja, var nán-
ast engin, aftur á móti fékk
Þórður Jónsson allmargar
sendingar, m. a. frá Ríkharði,
en honum tókst ekki að gera
sér mikinn mat úr þeim, hann
staðsetti sig líka sjaldnast vel.
Þórður hefur fengið það mörg
tækifæri sem v. útherji, að
geta hans liggur Ijós fyrir,
svo ekki hefði það verið nein
goðgá að reyna þar nýjan
mann í þetta skipti, t. d. Guð- !
jón Jónsson í Fram, sem er
fjölhæfur leikmaður, að ekki
sé minnst á Björn Helgason
ísfirðing, sem fær sitt tæki-
færi í B-landsliðsleiknum við
Færeyjar! Ef þessi heimsókn
Jótanna gæti fært íslenzka
landsliðinu heim sanninn um
hvers virði góðir útherjar eru
í sókn, þá er koma þeirra hing
að ekki til einskis.
Dómari leiksins var Hauk-
ur Óskarsson og dæmdi yfir-
leitt vel. EB.
Iþróttir erlendis
2 Evrópumef í sundi.
Á iSUNDMÓTI í París á
sunnudagin nvoru sett tvö Ev-
rópumet. Frakkinn Robert
Christophe sigraði í 100 m< bak-
sundi á 1:02,2 mín., sem er Ev-
rópumet. Gamla roetið, sem
Christophe átti sjálfur, var
1:02,9 mín.
Evrópumet var einnig sett í
100 m flugsundi. ítalinn Fritz
Dennerlein hlaut'Jímann 1:01,8
mán. Gamla metið, 1:02,2, átti
Ungverjinn Tumpek.
Finnskf mef í kúiuvarpi.
HINN kornungi finnski kúlu
varpari Jarmo Kunnas (20 ára)
setti met á móti í Tammerfors
um helgina. Hann varpaði kúl-
unni 16,96 m, sem er 10 sm
betra en gamla metið, sem Koi-
visto átti. Einnig setti Leena
Karna met í hástökki kvenna,
stökk 1,60 m.
Á móti í Lampis náði hinn
fjölhæfi Paavo Lammi eftir-
töldum árangri: 51,90 m í
kringlu, 15,29 í kúlu og 1,90 í
hástökki. Matti Huttunen og
Pekka Höykinpuro hlupu 10
km á 29:54,8 og 29:55,2 mín.
Kallevagh 8:17,0 í 3 km.
FRJÁLSÍÞRÓTTAMÓT var
í Gávle á sunnudaginn. Þar
náðist góður árangur í nokkr-
(Fr«mhald á 10. sí3u)
Njófið lífsins
í Nausti.
Naust.
U f b o ð
Þeir, sem gera vilja tilboð í raflagnir og pípulagni?
fyrir hringingar-. síma-, kall-, o« útvarpskacfi í skóla
hús við Gnoðarvog og Laugalæk, vitji uppdrátía og
útboðslýsingar í Skúlatún 2, 5 hæð, gegn 300.00 kr„
skilatryggingu.
Húsameistari Reykjavíkurbæjar.
nn
V Ný sertding jf
1 Poplínkápur ^
MARKAÐURINN
Hafnarsíræti 5.
nýkomnar.
Pantanir óskast sóttai*.
Sighvatur Eitiarsson & Co.
Skipholti 15. Sími 24133—24137.
1. að það er tiltölulega mjög ódýrt að ferð-
ast með strandferðaskipum vorum í krmg*
um land, fátt veitir hetri kynni af landi
þjóð.
2. að siglingaleið m. s. „Heklu“ að sumrinii
til Færeyja, Noregs, Svíþjóðar og Daiv
merkur ér mjög skemmtileg og fargjöid
hófleg.
Skipaúfgerð ríkisins
.1
Alþýðublaðið — 15. júlí 1959