Alþýðublaðið - 16.07.1959, Side 5
HONG KONG. — Kínverskt
tímarit skýrir svo frá, að óá-
nægja meðal kínverskra
bænda með kommúnukerfið
hafi aukizt mjög í seinni tíð.
Hefur óánægja með „hið
mikla stökk fram á við“ orðið
miklu meiri en Pekingstjórn-
in bjóst við.
Eitt málgagn kommúnista-
flokksins í Kína birti nýlega
grein um þessi mál og játar
þar, að margir verkamenn
vinni bókstaflega gegn komm
únismanum og kommúnukerf
inu og sameignarskipulaginu.
Einkum er fólk andvígt hinni
kömmúnistisku „gerjun“.
Tímaritið segir, að „margir
bændur eru óánægðir með
'stofnun kommúnanna og segj-
ast nú hafa allt sameiginlegt,
en finnst þeir hafi tapað sínu
í hálfgerðu fjárhættuspili.
Bændurnir eyða því, sem þeir
eiga í fæðu og vín og aðrir
seldu húsgögn sín og margir
misstu stjórn á sér og fóru um
einkalönd og rændu þar og
rupluðu“.
„Þeir bændur, sem komust
vel af áður en kommúnurnar
voru stofnaðar, telja að nú
hafi þeir verri kjör en áður.
En óánægjan er ekki einungis
meðal bænda, heldur einnig
meðal verksmiðjuverkamann-
anna og er stór hópur þeirra,
sem er æfur út í „sjálfboða-
vinnu“ og hina kauplausu
yfirvinnu. Ýmsar nýjar mót-
sagnir hafa risið upp, sem
ráða verður fram úr. Komm-
únistaflokkur segir að vísindi
og menntun skuli þjóna stjórn
málunum, en margir eru enn
áhugalausir Um forystuna,
þeir trúa á sérfræðinga
ekki forustuhlutverk flokks-
ins. Flokkurinn leggur höfuð-
áherzlu á, að tæknihæfni sé
tengd pólitískum rétttrúnaði
en margir telja að hægt sé að
aðgreina þetta tvennt og sér-
fræðingarnir geti einir mótað
framfarirnar. En það er ekki
hægt að vera sérfræðingur
nema að vera kommúnisti um
leið“.
Þetta segir hið kínverska
tímarit. Kínverskir. kommún-
istar virðast vera ^ð komast á
þá skoðun, að takmarkinu
verði ekki náð eins fljótt og
þeir héldu, og blöð þeirra
ræða æ meira um matarskort,
erfiðleika með flutningatæki,
skort á vinnuafli og hráefn-
um og telja þetta allt stafa af
hinum ,,pólitísku“ aðferðum
við stofnun kommúnanna.
r 1, *
Berkeley, Kaliforníu.
NÆST stærsti stjörnu-
kíkir heimsins verður
bráðiega tekinn í notkun
og mun kanna það, sem
gerist í þúsund milljön
ljósára fjarlægð.
Spegill stjörnukíkisins
er 120 þumlunga glerflöt
ur þaldnn alumíniumlagi,
sem er aðeins tveir millj
ónustu hlutar úr þumlung
á þykkt.
Stjörnusjáin á Palomar
f jalli er ein stærri en þessi
nýja stjörnusjá Berkeley
háskóla. Hlutverk hennar
er að fylgjast með þróun
stjörnukerfa, einkum
yngri stjarna og þeirra
sólkerfa, semi eru utan
vetrarbrautarinnar.
Undirbúningi að gerð
stjörnukíkisins hófst
1947 og hefur kostað
2.500.000 dollara.
Erfiðasta verkið við
gerð stjörnukíkja er fág
un glerjanna. Nákvæmn
in verður að vera um 5
milljónustu úr þumlungi.
Myndin sýnir þennan
störa stjörnukíki.
MWMHMMHMIUMVtUMMW
KVIKMYNDAAKADEMÍAN
franska hefur nýlega kjörið
Montgomery Clift bezta er-
lenda leikara ársins 1958.
Þennan heiður hlaut hann
fyrir leik sinn í kvikmynd
20th Century Fox, „The
Young Lions“. í kvikmynda-
akademíunni eiga sæti fransk-
ir kvikmyndagagnrýnendur
og. ý-msir áhrifamenn á sviði
kvikmynda.
• *y**
Fred Astaire mun bráðlega
leika á móti Lílli Palmer í
kvikmynd frá Paramount,
The Pleasure of His Comp-
any“. í myndinni leikur hann
víðförlan ferðamann, sem
snýr aftur til Bandaríkjanna
til þess að hitta dóttur sína,
áður en hún gengur í hjóna-
band.
• •/• •
Jack L. Warner hlaut ný-
lega Irving G. Thalþerg verð-
launin, sem ameríska kvik-
mynda- og vísindaakademían
veitir, en hún hefur aðsetur í
Hollywood, Stófnað var til
þessara verðlauna árið 1937
og eru þau veitt kvikmynda-
f ramíeiðendum,. sem álitið er
að hafi stuðlað að framleiðslu
jafnbeztra kvikmynda undan-
farin fimrn ár. Vea'ðlaunin
hafa aðeins verig veitt 15 sinn
um á undanförnum 22 árum.'
Elizabeth Taylor og Mont-
gomery Clift munu leika sam
an í kvikmynd Kolumbíafé-
lagsins „Suddenly, Last
Summer", en hún er gerð eft-
ir leikriti Tennessee Williams.
Kvikmyndahandritið hefur
höfundurinn sjálfur gert í
samráði við Gore Vidál. í
myndinni leikur Montgomery
Clift ungan lækni, sem á að
framkvæma heilauppskurð á
stúlku, en hana leikur Eliza-
beth Taylor.
Stanley Kubrick hlaut silf-
urborða ítalskra kvikmynda-
gagnrýnenda fyrir leikstjórn
í mynd United Artist, „Paths
of Glory“. Kubrick var eini
útlendingurinn, sem hlaut
verðlaun árið 1958. Aðalhlut-
verk í myndinni leikur Kirk
Douglas. Verðlaun fyrir beztu
leikstjórn í ítalskri mynd
hlaut Pietro Germi fyrir „L’
Uomo di paglia“.
• .y. •
Meðal þeirra kvikmynda,
s.em Metro-Goldwyn-Mayer
hefur í hyggju að senda á
markaðinn á næstunni, eru
„Green Mansions“, með Aud-
rey Hepburn og Anthony Per-
kins í aðalhlutverkunum,
byggð á samnefndri skáld-
sögu W. H. Hudsons, „Count
Ýour Blessings“, með Maurice
Chevalier, Deborah Kerr og
Rossano Brazzi í aðalhlutverk
unum, gerð eftir skáldsögu
Nancy Mitford með sama
nafni: „The S'capegoat“, með
Alee Guinness og Bette Davis,
gerð eftir skáldsögu Daphne
du Maurier, og loks „North
by North-West“, sakamála-
mynd, stjórnað af Alfred Hit-
chock, með Gary Grant, Eva
Marie Saint og James Mason
í aðalhlutverkunum.
• •y*»
Sophia Loren og Clark
Gable munu leika saman í
gamanmynd, sem Paramount-
félagið hefur á nriónunum og
heitír „Bay of Naples“. Leik-
stjórar verða Jack Rose ög
Melville Shavelson, sem einn-
ig hafa skrifað handritið að
myndinni.
• •y*»
„The Jounrey“, cinema-
scopekvikmynd frá Metrc-
Goldwyn-Mayer félaginu, var
frumsýnd nú á dögunum í
New Ýork og Washington, og
létu gagnrýnendur vel af
henni. Handrit að mynd þess-
ari' samdi George Tabori, en
Anatole Litvak annaðist leik-
stjórn. Það.er saga ung.verskr-
ar frelsishetju, sem er særð
og reynir að komast undan til
Austurríkis með hjálp enskx--
ar konu, Lady Ashmore, en.
þau hafa fellt hugi saman.
Rússneskúr majór stöðvar bif-
reið þeirra og kyrrsetur far-
þegana. Þegar hann uppgötv-
ar. hver hinn særði maður er,
lætúr hann taka hann fastan,
en sér’síðar að sér og hjá’ipsr
elskendunum til að sleppa yf-
ir landamærin til Austurrík-
is. Myndin er í litum, tekin
í Austurríki. í henni leika á-
gætir leikarar eins og Yúl
Brynner,- Deborah Kerr, Ja-
son Robards jr„ og Robeit
Morlay. Er leikur Yul Brynn-
ers mjög rómaður í myndinni
og sama er að segja um leik
Deborah Kerr.
Radio Liberation, útvarps-
stöð, sem rekin er af fyrrver-
andi Sovétborgurum og út-
varpar daglega til Sovétríkj-
anna, " sæmdi kvikmynda-
stjórnandann Anatole Litvak
nýlega heiðursskjali. í skjali
þessu er skýrt frá því, að Lií-
vak er fæddur í Kiev, en hef-
ur gerzt bandarískur ríkis-
borgari. í síðustu heimsstyrj-
öld var hann liðsforingi í
bandaríska hernum, og í stríðs
lok var hann sæmdur heiðurs-
merkjum af ríkisstjórnum
Stóra Bretlands, Frakklands
ög Bandaríkjanna. Með skjali
þessu vilja fyrrverandi.Sovét-
borgarar hylla Anatole Lit-
vak, ekki aðeins sem skapantli
listamann í kvikmyndahein*!-
inum, sem hefur náð langt í
list' sinni, heldur einnig sem
hreinskilinn baráttumann fyi*
ir málstað frelsisins.
>119 r
SÍÐAN 1951 hefur Alþjóða-
heilbrigðismálastofnunin |
(WHG) og Barnasjóður Sam-
einuðu . þjóðanna (UNICEF)
aðstbðað yfirvöldin í 41 láncli
og landsvæði (samanlögð í-
búaíála: 785 milljónir) við að
hefja allsherjarbaráttu gegsn
berklum með bólusetninga.
Þessar upplýsingar gaf foi-
stjóri; WHO á stjórnarfuúdi
hennar nýlega.
A þessum tíma hafa um 234
milljónir manna verið berkla-
skoðaðar og 88 milljónir bólu-
settar. Þessar tölur eru frá
AlþýðuWaðið — 16. júlí 1959 §