Alþýðublaðið - 16.07.1959, Blaðsíða 5

Alþýðublaðið - 16.07.1959, Blaðsíða 5
HONG KONG. — Kínverskt tímarit skýrir svo frá, að óá- nægja meðal kínverskra bænda með kommúnukerfið hafi aukizt mjög í seinni tíð. Hefur óánægja með „hið mikla stökk fram á við“ orðið miklu meiri en Pekingstjórn- in bjóst við. Eitt málgagn kommúnista- flokksins í Kína birti nýlega grein um þessi mál og játar þar, að margir verkamenn vinni bókstaflega gegn komm únismanum og kommúnukerf inu og sameignarskipulaginu. Einkum er fólk andvígt hinni kömmúnistisku „gerjun“. Tímaritið segir, að „margir bændur eru óánægðir með 'stofnun kommúnanna og segj- ast nú hafa allt sameiginlegt, en finnst þeir hafi tapað sínu í hálfgerðu fjárhættuspili. Bændurnir eyða því, sem þeir eiga í fæðu og vín og aðrir seldu húsgögn sín og margir misstu stjórn á sér og fóru um einkalönd og rændu þar og rupluðu“. „Þeir bændur, sem komust vel af áður en kommúnurnar voru stofnaðar, telja að nú hafi þeir verri kjör en áður. En óánægjan er ekki einungis meðal bænda, heldur einnig meðal verksmiðjuverkamann- anna og er stór hópur þeirra, sem er æfur út í „sjálfboða- vinnu“ og hina kauplausu yfirvinnu. Ýmsar nýjar mót- sagnir hafa risið upp, sem ráða verður fram úr. Komm- únistaflokkur segir að vísindi og menntun skuli þjóna stjórn málunum, en margir eru enn áhugalausir Um forystuna, þeir trúa á sérfræðinga ekki forustuhlutverk flokks- ins. Flokkurinn leggur höfuð- áherzlu á, að tæknihæfni sé tengd pólitískum rétttrúnaði en margir telja að hægt sé að aðgreina þetta tvennt og sér- fræðingarnir geti einir mótað framfarirnar. En það er ekki hægt að vera sérfræðingur nema að vera kommúnisti um leið“. Þetta segir hið kínverska tímarit. Kínverskir. kommún- istar virðast vera ^ð komast á þá skoðun, að takmarkinu verði ekki náð eins fljótt og þeir héldu, og blöð þeirra ræða æ meira um matarskort, erfiðleika með flutningatæki, skort á vinnuafli og hráefn- um og telja þetta allt stafa af hinum ,,pólitísku“ aðferðum við stofnun kommúnanna. r 1, * Berkeley, Kaliforníu. NÆST stærsti stjörnu- kíkir heimsins verður bráðiega tekinn í notkun og mun kanna það, sem gerist í þúsund milljön ljósára fjarlægð. Spegill stjörnukíkisins er 120 þumlunga glerflöt ur þaldnn alumíniumlagi, sem er aðeins tveir millj ónustu hlutar úr þumlung á þykkt. Stjörnusjáin á Palomar f jalli er ein stærri en þessi nýja stjörnusjá Berkeley háskóla. Hlutverk hennar er að fylgjast með þróun stjörnukerfa, einkum yngri stjarna og þeirra sólkerfa, semi eru utan vetrarbrautarinnar. Undirbúningi að gerð stjörnukíkisins hófst 1947 og hefur kostað 2.500.000 dollara. Erfiðasta verkið við gerð stjörnukíkja er fág un glerjanna. Nákvæmn in verður að vera um 5 milljónustu úr þumlungi. Myndin sýnir þennan störa stjörnukíki. MWMHMMHMIUMVtUMMW KVIKMYNDAAKADEMÍAN franska hefur nýlega kjörið Montgomery Clift bezta er- lenda leikara ársins 1958. Þennan heiður hlaut hann fyrir leik sinn í kvikmynd 20th Century Fox, „The Young Lions“. í kvikmynda- akademíunni eiga sæti fransk- ir kvikmyndagagnrýnendur og. ý-msir áhrifamenn á sviði kvikmynda. • *y** Fred Astaire mun bráðlega leika á móti Lílli Palmer í kvikmynd frá Paramount, The Pleasure of His Comp- any“. í myndinni leikur hann víðförlan ferðamann, sem snýr aftur til Bandaríkjanna til þess að hitta dóttur sína, áður en hún gengur í hjóna- band. • •/• • Jack L. Warner hlaut ný- lega Irving G. Thalþerg verð- launin, sem ameríska kvik- mynda- og vísindaakademían veitir, en hún hefur aðsetur í Hollywood, Stófnað var til þessara verðlauna árið 1937 og eru þau veitt kvikmynda- f ramíeiðendum,. sem álitið er að hafi stuðlað að framleiðslu jafnbeztra kvikmynda undan- farin fimrn ár. Vea'ðlaunin hafa aðeins verig veitt 15 sinn um á undanförnum 22 árum.' Elizabeth Taylor og Mont- gomery Clift munu leika sam an í kvikmynd Kolumbíafé- lagsins „Suddenly, Last Summer", en hún er gerð eft- ir leikriti Tennessee Williams. Kvikmyndahandritið hefur höfundurinn sjálfur gert í samráði við Gore Vidál. í myndinni leikur Montgomery Clift ungan lækni, sem á að framkvæma heilauppskurð á stúlku, en hana leikur Eliza- beth Taylor. Stanley Kubrick hlaut silf- urborða ítalskra kvikmynda- gagnrýnenda fyrir leikstjórn í mynd United Artist, „Paths of Glory“. Kubrick var eini útlendingurinn, sem hlaut verðlaun árið 1958. Aðalhlut- verk í myndinni leikur Kirk Douglas. Verðlaun fyrir beztu leikstjórn í ítalskri mynd hlaut Pietro Germi fyrir „L’ Uomo di paglia“. • .y. • Meðal þeirra kvikmynda, s.em Metro-Goldwyn-Mayer hefur í hyggju að senda á markaðinn á næstunni, eru „Green Mansions“, með Aud- rey Hepburn og Anthony Per- kins í aðalhlutverkunum, byggð á samnefndri skáld- sögu W. H. Hudsons, „Count Ýour Blessings“, með Maurice Chevalier, Deborah Kerr og Rossano Brazzi í aðalhlutverk unum, gerð eftir skáldsögu Nancy Mitford með sama nafni: „The S'capegoat“, með Alee Guinness og Bette Davis, gerð eftir skáldsögu Daphne du Maurier, og loks „North by North-West“, sakamála- mynd, stjórnað af Alfred Hit- chock, með Gary Grant, Eva Marie Saint og James Mason í aðalhlutverkunum. • •y*» Sophia Loren og Clark Gable munu leika saman í gamanmynd, sem Paramount- félagið hefur á nriónunum og heitír „Bay of Naples“. Leik- stjórar verða Jack Rose ög Melville Shavelson, sem einn- ig hafa skrifað handritið að myndinni. • •y*» „The Jounrey“, cinema- scopekvikmynd frá Metrc- Goldwyn-Mayer félaginu, var frumsýnd nú á dögunum í New Ýork og Washington, og létu gagnrýnendur vel af henni. Handrit að mynd þess- ari' samdi George Tabori, en Anatole Litvak annaðist leik- stjórn. Það.er saga ung.verskr- ar frelsishetju, sem er særð og reynir að komast undan til Austurríkis með hjálp enskx-- ar konu, Lady Ashmore, en. þau hafa fellt hugi saman. Rússneskúr majór stöðvar bif- reið þeirra og kyrrsetur far- þegana. Þegar hann uppgötv- ar. hver hinn særði maður er, lætúr hann taka hann fastan, en sér’síðar að sér og hjá’ipsr elskendunum til að sleppa yf- ir landamærin til Austurrík- is. Myndin er í litum, tekin í Austurríki. í henni leika á- gætir leikarar eins og Yúl Brynner,- Deborah Kerr, Ja- son Robards jr„ og Robeit Morlay. Er leikur Yul Brynn- ers mjög rómaður í myndinni og sama er að segja um leik Deborah Kerr. Radio Liberation, útvarps- stöð, sem rekin er af fyrrver- andi Sovétborgurum og út- varpar daglega til Sovétríkj- anna, " sæmdi kvikmynda- stjórnandann Anatole Litvak nýlega heiðursskjali. í skjali þessu er skýrt frá því, að Lií- vak er fæddur í Kiev, en hef- ur gerzt bandarískur ríkis- borgari. í síðustu heimsstyrj- öld var hann liðsforingi í bandaríska hernum, og í stríðs lok var hann sæmdur heiðurs- merkjum af ríkisstjórnum Stóra Bretlands, Frakklands ög Bandaríkjanna. Með skjali þessu vilja fyrrverandi.Sovét- borgarar hylla Anatole Lit- vak, ekki aðeins sem skapantli listamann í kvikmyndahein*!- inum, sem hefur náð langt í list' sinni, heldur einnig sem hreinskilinn baráttumann fyi* ir málstað frelsisins. >119 r SÍÐAN 1951 hefur Alþjóða- heilbrigðismálastofnunin | (WHG) og Barnasjóður Sam- einuðu . þjóðanna (UNICEF) aðstbðað yfirvöldin í 41 láncli og landsvæði (samanlögð í- búaíála: 785 milljónir) við að hefja allsherjarbaráttu gegsn berklum með bólusetninga. Þessar upplýsingar gaf foi- stjóri; WHO á stjórnarfuúdi hennar nýlega. A þessum tíma hafa um 234 milljónir manna verið berkla- skoðaðar og 88 milljónir bólu- settar. Þessar tölur eru frá AlþýðuWaðið — 16. júlí 1959 §

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.