Alþýðublaðið - 08.08.1959, Blaðsíða 2

Alþýðublaðið - 08.08.1959, Blaðsíða 2
laiigardagur VEÐRIÐ: Sunnan- eða suð- vestan-kaldi; skýjað. ☆ LISTASAFN Einars Jónsson ar, að Hnitbjörgum, er opið daglega kl. 1.30—3.30. i * MINJASAFN bæjarins. Safn deildin Skúlatúni 2 er opin daglega kl. 2—4. Árbæjar- safn opið daglega frá kl. 2 —6. Báðar safndeildir eru lokaðar á mánudögum. * ÚTVARPIÐ: 13 Óskalög sjúk linga. 14.15 „Laugardags- ' lögin.“ 19.30 Tónleikar: Ungversk þjóðlög. 20 Frétt- . ir. 20.30 Tónleikar: Lög úr . óperettum. 20.45 Upplest- ur: „Ekkja Kild (nbauers", . smásaga eftir Lars Dilling, . í þýðingu Málfríðar Einars . dóttur. 21.10 Tónleikar: Vin . sæl hljómsveitarlög. 21.30 Leikrit: ,,Bréfdúfan“ eftir . Eden Phillpotts. Leikstjóri og þýðandi: Þorsteinn Ö. . Stephensen. 22 Fréttir. 22.10 Danslög. ☆ Messur Hallgrímskirkja: Messa kl. 1-1 f. h. Séra Sigurjón Þ. Árna eon. Laugarneskirkja: Messa kl. 11 f. h. Séra Garðar Svavars- eon. Elliheimilið: Messa kl. 10 árdegis. Heimilispresíurinn. Dómkirkjan: Messa kl. 11 árdegis. Séra Jón Auðuns. LAUGARDAGINN 1. ágúst kl. 14:00 fóru liðlega 20 manns í 2% dags skemmtiferð inn á Hveravelli á vegum Páls Ara- sonar. Fcrðin tók þó reyndar fjóran og hálfan dag mörgum til mæðu, en öðrum þó til gleði. Farið var í þremur bílum, tveimur sendiferðabílum og einum sovézkum diplómatabíi. Á Hveravelli var komið kl. 21:30 um kvöldið. Þangað átti þá að vera komin sú eina bif- reið, sem Páll Arason á, og heitir sú „Pál-lína“, hún var þó ókomin. Átti „Pál-lína“ að koma að norðan með sex manns, taka ferðafólkið á Hveravöllum ásamt öðrum sendiferðabílnum og flytja það til Kerlingaf jalla og síðan til Reykjavíkur. Diplómata- bíllinn og annar sendibíllinn fóru hins vegar strax til Rvík- ur. Hófst nú löng bið fyrir ferðafólk eftir „Pál-línu“, er reyndist árangurslaus. — Á sunnudagskvöldið ákvað far- arstýran að fara til Reykja- víkur á þeim eina sendiferða- bíl, sem eftir var. Tók hún með sér 7 manns. Lofaði hún jafnframt að senda bíla eftir hinu fólkinu næsta dag. Gjarn an mg taka fram að fararstýr- an var þýzk kona, Wagner að nafni. Hljómar það eilítið hjá- kátlega, að hafa þýzka fara- stýru í ferð um íslenzk öræfi. Hófst nú enn löng bið fj'rir ferðafólkið á Hveravöllum, scm aðeins var trufluð af 3 jeppum á suðurleið og tjáðu komumenn ferðafólki, að „Pál -lína“ væri illa stödd um 50 k.m fyrir norðan Hveravelíi og kæmist hvergi. Höfðu jeppa- menn með sér ýmislegt úr innýflum „Pál-línu“ til við- gerðar í Reykjavík. Hin langa bið endaði síðan með því, að kl. 11:30 á þriðjudagsmorgun kom 24 manna Bedford-bif- reið. Hafði bifreiðarstjórinn ekið hvíldarlítið síðastliðna 24 tíma frá Þórsmörk um Reykjavík til Hveravalla. Var hann syfjaður mjög, en lagði þó enn af stað að sækja strandaglópana 6 fyrir norðan. Tók sú ferð á sjöunda tíma og var komið til baka til Hveravalla um kvöldmat. Var nú bílstjórinn svo syfjaður, að hann treysti sér ekki til að aka samdægurs til Reykjavík- ur og mátti ekki heyra nefnt, að annar æki bílnum hans. Fóru því allir að sofa og var það hin fjórða nótt, er öræfa- lýður þessi lagðist til svefns á Hveravöllum. Kl. 9:30 á miðvikudagsmorgun var svo loks lagt af stað til Reykja- víkur með viðkomu í Kerl- ingarfjöllum. Þar skyldi skilja eftir stfandaglópana að norð- an ásamt nokkrum öðrum, er voru á sjö daga ferð. Auk þess una, þar sem gert var að meiðsl um þeirra. Hafði konan hlotið allmikla bólgu á vinstri vanga og upp undir augað við högg árásarmannsins, en við árásina mun konan hafa fengið lost. Eiginmaður hennar hafði hins vegar hlotið brot á öðru fót- leggsbeini hægra megin. Páll hlaut skurð neðan við vinstri augabrún auk þess sem sprung- ið hafði fyrir á munnslímhúð, en gleraugu hans brotnuðu í árásinni eins og fyrr segir. Árásarmaðurinn, Jens Þórð- arson, sem setið hefur í haldi síðan hann var handtekinn í gærkvöldi, hefur borið fyrir sig algeru minnisleysi um málsat- vik sakir ölvunar sinnar, en hef ur ekki véfengt á nokkurn hátt sakir þær, sem á hann eru born- ar. Hann kveðst harma tiltæki sitt og hefur lýst sig reiðubú- inn að bæta að fullu þann skaða, sem hann hefur valdið. Jens hefur ekki verið dæmdur áður, en hefur 4 sinnum geng- izt undir sektargreiðslu með dómssátt fyrir ölvun á almanna færi. Pramangreindar upplýsingar eru byggðar á frumrannsókn í máli þessu, sem rannsóknarlög- reglan hefur haft með höndum í dag, en dómsrannsókn í mál- inu hefst í kvöld.“ RíEUTER Debré, forsætisráð- herra 'Frakka, flaug í dag í þyrlu til aðalstöðva milli 20 og 30 000 franskra hermanna í Kabylíufjöllum, þar sem þeir vinna að því að „hreinsa“ hérað þetta, en það hefur verið áltið hjarta uppreisnarinnar hér, sem nú hefur staðið í fimm ár. Mun ráðherrann ræða þar við Chal- le, yfirmann franska hersins í Algier. fengu 6 danskir ferðalangar að fljóta með til Kerlingar- fjalla. Er þangað kom vildi enginn af ferðafólkinu verða eftir. Urðu því aðeins Danirn- ir 6 eftir og er óhætt að segja, að þeir hafi haft heppninameð sér í það skiptið. Kerlingar- fjallaferðin tók hátt á þriðja tíma og var því ekki komið til Reykjavíkur fyrr en kl. 21:30 eða eftir tólf tíma ferð, á miðvikudagskvöld. Þótti mörgum þetta hafa verið löng og góð ferð fyrir lítinn pening. Mótmæli Framhald af 1. síðu. sætinu við hlið henni. Höfðu þeir tal af þeim og töldu sig finna vínlykt af konunni og sjá á henni fleiri, ölvunarmerki. Voru þau að því búnu f-ærð til flugvallarhliðsins, en þar eru bæði íslenzkir og bandarískir lögreglumenn á verði. íslenzki lögregluþjónninn óskaði þess nú að konan færi til blóðrannsóknar, en hún reyndist vera gift varnarliðs- manni. í þessu sambandi skal þess getið, að venjan hefur ver ið sú að varnarliðsmenn og skyldulið þeirra hefur verið fært til hersjúkrahússins til blóðrannsóknar, ef s_vo ber und ir. Konan vildi ekki gangast undir blóðrannsóknina, en fékk leyfi til að hringja til eigin- manns síns. Kom hann bráðlega á vettvang ásamt nokkrum yf- irmönnum sínum úr varnarlið- inu. Varð nú missætti milli yfir- manna varnarliðsins og ís- lenzka varðstjórans út af skyldu konunnar til að hlýða úrskurði um blóðrannsókn, sem endaði með því að einn bandarísku foringjanna kvaddi til fjölmennt lið herlögreglu, sem vopnuð var skamrnbyssum og rifflum, og umkringdu þcir varðskýlið, þar sem viðræðurn ar fóru fam. Þó varð það að samkomulagi að konan færi með varðstjóranum til her- sjúkrahússins, ásamt nokkrum af foringjunum. Er til sjúkrahússins kom neitaði konan algjörlega að láta taka sér blóð til rannsókn- tHMHMmUMMMtMMWMM | Gengið frá kaup-i! I* um Fiskiðjuvers { f GÆR voru undirritaðirj; samningar um kaup Fisk-|5 iðjuvers ríkisins vegna Bæj-I; arútgerðar Reykjavíkur. Jí Samningana undirrituðu!; fyrir hönd ríkisstjórnarinnar;; forsætisráðherra Emil Jóns-!> son og fyrir hönd bæjar-j; stjórnar Reykjavíkur vegnaþ Bæjarútgerðar Reykjavíkur! j borgstjóri Gunnar Thorodd-j; sen. !! Bæjarútgerðin tók viðj; rekstri Fiskiðjuversins í gær|! og byrjaði vinnsla í húsinuj; á hennar vegum eftir hádegi.j [ Kaupverðið er kr. 29.350.-! j 000,00. j; Tvö af skipum Bæjarút-;í gerðar Reykjavíkur losuðu! j karfa hér í gær, og önnurj; skip voru væntanleg með;! fullfermi af karfa frá Vest-j; ur-Grænlandi. !! MHMHHWHHWHmMHW ar, og bandarísku foringjarnir hindruðu íslenzku lögreglu- mennina í að taka hana og flytja til íslenzks læknis til rannsóknar. Framhaid ef 1. síðu. 600 mál. Geir KE 1000 mál (í 2 löndunum). Engin veiði var fyrir norðan land og mestur hluti flotans kominn austur fyrir land, þar var mjög almenn veiði í fyrri- nótt á svæðinu frá Glettinga- nesflaki suður undir Hvalbak 30 mílur undan landi. Það er að frétta frá Seyðis- firði, að allar Þær eru orðnar fullar og í gækvöldi biðu mörg skip löndunar. Síldarbræðslan, sem skemmdist af eldi á dög- unum, hefur nú verið færð í það stand, að bræðsla átti að hefjast aftur kl. 8 í gærkvöldi. í fyrradag lönduðu þessi skip á Seyðisfirði: Pétur 598 mál, Álftanes 568 mál, Geir 181 mál, Gullver 330 mál, Draupnir 447 mál, Guðbjörg 433 mál, Ársæll 511 mál, Hafbjörg 409 mál, Gu3 finnur 463 mál, Öfeigur 511, Vonin 329 mál. í gær komu svo þessi skip og lönduðu: Hilmir 542, Hamar 700, Tjaldur 324, Öðlingur 398,, Auður 366, Gylfi 411, Hagbarð- ur 600 mál, Sigurkarfi 482 mál. Eftirtalin skip biðu þá lönd- unar: Sunnutindur með 600 mál, Baldvin Þorvaldsson 600 mál, Sigurfari 500 mál, Þráinn 450 mál, Bjarni 450 mál, Hann- es Hafstein 550 mál, Álftanea 350 mál, Heimir 400 mál, Fjal- ar 450 mál, Þorlákur 700 mál. Víðir var á leiðinni með góð- an afla. Heildarsöltun á Seyð- isfirði var í gærkvöldi 417 tunnur j EnnbrGlaæBi MIKIL INNBROT voru fram- in í fyrrinótt. Var brotizt inn í tvö stórhýsi, þar sem fleirl fyrirtæki eru. Brotizt var inn í Fatapress- una við Kolasund, en engu stol- ið svo vitað sé. Brotizt var inn í vörugeymslu L. H. Möller S sama húsi. Engu var þar held- ur stolið. Enn var brotizt inn S Skartgripaverzlun Kornelíusar í þessu sama húsi og stolið.þajj nokkru af skartgripum. Þá var brotizt inn í Söginai h.f. Höfðatuni 2 og stolið nokkr um hundruðum króna. Sömu- leiðis var brotizt inn í járn- vöruverzlun ísleifs Jónssonar J sama húsi og geih tilraun til að brjóta upp peningaskáp, eni sú tilraun mistókst. Þá er þess enn að geta, að J vikunni var stolið spönskuna, garðstól frá húsi við Bárugötu. Stóllinn var blár með járnrör- um og korkdýnum. Ekki hefur neitt orðið upp- víst um, hver eða hverjir hafa verið hér að verki, en allt er þetta í rannsókn hiá lögregl- unni. I Slys í gær f 1 GÆR missti maður nokkuí sekk ofan á fót sér og marðist lítillega. Annar datt af reið- hjóli og skrámaðist allmikið | andliti. J Vöruverð Framhald af 10. síðu. — óniðurgr. — 15.00 Fiskbollur Vi ds. — 14.65 Rinso, 350 gr. — 9.40 10.00 Sparr, 250 gr. — 4.30 Perla, 250 gr. — 4.30 Geysir, 250 gr. —' 4.05 Lægst pr. kg. Súpukjöt kr. 21.00 Saltkjöt — 21.85 Léttsaltað kjöt Gæðasmjör, 23.45 1. fl. niðurgreitt — 42.80 1. fl. óniðurgreitt Samlagssmjör, ■ — 73.20 niðurgreitt — 38.65 — óniðurgreitt Heimasmjör, — 69.00 niðurgreitt — 30.95 — óniðurgreitt Gæðasmjör, — 61.30 II. fl. niðurgreitt — 36.00 II. fl. óniðurgreitt — 68.25 Egg, stimpluð — 42.00 Þorskur, nýr haus. — 2.60 Ysa, ný, hausuð — 3.50 Smálúða —. 9.00 Stórlúða — 14.00 Saltfiskur — 7.35 jFiskfars — 8.50 Hýir ávextir: .Bananar, I. fl. 29.00 EpK, Delicious — 30.80 Grænmeti, nýtt; Tómatar I. fl. — 32.00 Oíía til húsakynd- ingar pr. Itr. — 1.08 Kol, pr. tonn — 710.00 — ef selt er minna en 250 kg. pr. 100 kg. — 72.00 aras (Frá verðlagsstjóra). Framhald af 1. síðu. annan handlegg danska manns- ins og hugðist stöðva hann. Sá danski kippti að sér handleggn- um og losaði sig, en þá greip sá drukkni enn í þann danska og náði taki á jakka hans og hélt honum. Aftur tókst þeim danska manni að losa sig, en í því hann var að losna sló drukkni maðurinn til Danans, en kona hans, sem komin var bónda sínum til aðstoðar, varð fyrir högginu, sem lenti á and- liti hennar vinstra megin. Er hér var komið hörfuðu hjónin undan til anddyris samkomu- hússins og kallaði Daninn til stúlkunnar. í fatageymslunni og bað hana um að hringja til lög- reglunnar. Drukkni maðurinn hélt hins vegar á eftir hjónun- um inn í anddyrið, var hann þá mjög æstur að sögn sjónarvotta. Veittist hann nú enn að dönsku hjónunum, en er maðurinn snerist til varnar sparkaði drukkni maðurinn í fótlegg hans og gat fellt hann. Páll Zóp hóníasson alþingismaður, sem þarna var nærstaddur, hljóp nú til og hugðist skakka leikinn og fá þann ölvaða til þess að láta af barsmíð sinni og fara út úr húsinu, en árásarmaðtirinn veittist þá að Páli, eins og öðr- um, sem hann hafði náð til. Skipti þá engum togum að hann sló Pál í andlitið. Brotnuðu við það gleraugu Páls og sprakk fyrir á vinstri augabrún hans. Eigi að síður tókst Páli að koma manninum í gólfið og halda honum niðri þar til nokkr ir gestanna, sem í anddyrinu voru, komu Páli til aðstoðar og héldu þeir síðan manninum þar til lögreglan kom á vettvang og hafði manninn á brott með sér. Dönsku hjónunum og Páli var síðan ekið í Slysavarðstof- 2 8. ágúst 1959 — Alþýðublaðið

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.