Alþýðublaðið - 27.08.1959, Qupperneq 12

Alþýðublaðið - 27.08.1959, Qupperneq 12
TWburafæSing yffr Atlantshafi LONDON, 26. ág. (Reuter). — Kona amerísks hermanns fæddi í nótt tvíbura í flugvél yfir miðju Atlantshafi. Tilkynnti Pan American í morgun, að vélin hefði lent í Gander á Ný- fundnalandi og móður og dætr- um liði öllum vel. Hjón, sem hæði eru læknar, ýcsru með vél inni og aðstoðuðu flugfreyj- una, sem var æfð hjúkrunar- kona, við að taka á móti barn- inu. UM ÞAÐ leyti. er Röðull og Þórscafé voru að taka til starfa í hinum.nýju húsakynnum sín- um, bárust lögreglunni áskor- anir frá fjölmörgum íbúum í rtágrenni þessara húsa uin að ekki yrðu leyfðir dansleikir í húsum þessum sakir þess mikla ónæðis, er slíkt hlyti að hafa í för með sér fyrir íbúana. STOÐUGAR KVARTANIR. Þrátt fyrir kvartanir þess- ar var dansleikjahaldið leyft. Hefur íbúunum þarna í ná- grenninu þótt þetta mjög ó- næðissamt. Hávaði er mikill þegar hleypt er út úr húsun- um á nóttinni og áflog algeng. En íbúðarhúsin standa þarna injög nærri og svefnfriður er því iðulega lítill. Hefur Þórs- café orðið að hafa 3—4 lög- regluþjóna aukreitis við hús- ið til eftirlits vegna kvartana íbúanna. tWWWWWWWMWWWWW Skemmliferð að Hagavalni NK. LAUGARDAG 29. þ. m. efnir SUJ til mið- sumarsferðar að Haga- vatni. Gist verður í sælu- liúsi Ferðafélags íslands, en þe’ir, sem óska, geta tjaldað. Varðeldur verður um kvöldið og margt til skemmtunar, Nauðsynlegt er að vænt anlegir þátttakendur gefi sig fram við flokksskrif- stofurnar í Hafncirfirði, sími 50499 og í Reykjavík, sími 16724. eylti Viðeyjarsun — Þetta Viðeyjarsund mitt er eiginlega 20 árum á eftir á- ætlun. Ég hafði hugsað mér að fara Þegar KR átti fertugsaf- mæli árið 1939, en það dróst úr hömlu þar til nú, að KR er 60 ára. Þetta eru orð Guðjóns Guð- laugssonar, sem synti Viðeyjar sund í fyrrakvöld. En í gær átti fréttamaður Alþýðublaðsins tal við Guðjón. — Það er varla oi’ð á því haf- andi, þótt maður syndi til Við- ejar, það hafa víst níu gert á undan mér, — og þar af fimm KR-ingar, — því má ekki gleyma. ... Það eru 36 ár síðan ég lærði að synda. Þá var ég tæplega átján ára gamall ung- lingux-, og við fórum þetta að undirlagi mínu, tveir strákar úr Djúpinu, að læra sund í gömlu lauginni á Reykhólum. Við vorum þar í mánuð og lærð um allar kúnstir, bæði baksund og hliðarsund auk bringusunds ins, —• Síðan hef ég alltaf verið SAMKVÆMT upplýsingum frá Fiskifélagi Islands fann Fanney vaðandi síld í fyrra- dag um 42 sjómílur SA-A af ÞorSur Eyjélfsson forseli Hæsfaréffar ÞÓRÐUR EYJÓLFSSON bæsfaréttardómari hefur verið kjörinn f< rseti hæstaréttar tímabilið 1. sept. 1959 — 1; sept. 1960. Seley og varð góð veiði þar. í gærmorgun var vitað um 20 skip, sem höfðu fengið um 12 þúsund mál, auk fleiri skipa. Veður var batnandi og síldin var á allstóru svæði. Eftirtalin skip höfðu til- kynnt Síidarlevtinni afla: Keil- ir 800 tunnur, Hrafn Svein- bjarnarson, 600, Stefnir 400, Von II. 550, Júlíus Björnsson 650; Snæfell 900 mál, Kamba- röst 550, Gissur hvíti 800, Gylfi II. 500, Heiðrún 600. Guðbjörg GK 500, Bjarmi EA 400 og Guð mundur Þórðarson RE 600. að gutla eitthvað í vatninu. Ég var fy.rsti baðvörðurinn í Skerjafirðinum og síðan ég hóf trésmíðina hef ég farið hérna í Elliðaárvoginn öðru hverju mér til gamans. — Á stríðsárunum hætti ég alveg að synda í sjónum, en skrapp auðvitað í sundlaugarn ar öðru hverju. — Eftir að stríðinu lauk byrj 'aði ég aftur, þangað t.il árið 1952, þá varð ég að hætta vegna slæmsku í baki. — I fyrra gat eg ekki -stillt mig lengui', og mér finnst ég hafa yngst talsverf upp síðan. Framhaid á 'i. $i5u. iMlllllfllltllllllllltlllllldliMIIIIIIMIIIiMIIIIIIIIIMIIIIIMI'* I ÓMANNÚÐLEG I I VEIÐIAÐFERÐ ! FUGLADRÁP á flek- | I um þykir mörgum ómann- i = úðleg veiðiaðferð. Það fer | | þannig fram, að^ flekum I | með lykkjum er skellt á I | sjóinn við fuglabjörg, en i | þegar fuglarnir setjast á | | flekann festast lykkjurnar i = um fætur þe'V’ra óg þannig ! | berjast þeir um bjargar- i | lausir. ! Mál þetta var tekið til i i umræðu af Dýraverndun- | | arféla^i og flejfi aðiljum ! = árið 1944. Að loknum | ! þeim un træðum urðu úr- i | síit málsins þau, að fugla- | | veiðar á flekum eru að- i | eins leyfðar á tveim stöð- 1 | um á landinu, Grímsey og i | Drangey. Annars staðar I | eru þær pleyfilegar. - = | Að því er ftréttir herma | | hefur verið talsvert um í | slíkar veiðar við Drangey | = alla tí§, • þar á meðal sl. i | Vor, en minna í Grímsey. i | 'Bandingja eðá fælifugla . | | er alls staðar bannað að i i liafa á flekunum. \ = •iiiiiikÍÉiiiiiiiiimiiiiiuuiiiiiiiiiiiifiiiiiiiiiiiiiifiiiiniuai í RÁÐI er, að hefja fjársofn- un og vinna að því að komið verði upp nokkurs konar( „kjöltuhúsdýra-eyðingastöð“ i Reykjavík. Þessa frétt fékk biaðið hjá stjórn Dýraverndunarfélags ís- lands, er það spurðist fyrir um afstöðu Dýraverndunarfélags- ins til katfadrápa að næturþeli, sem sagt var frá hér í blaðinu fyrir skömmu, að fram færi á vegum bæjaryfirvalda. í öllum menpingarborgum er lendis þykja slíkar stöðvar sjálfsagðar, en þangað geta borgararnir komið með húsdýr sín bæði til lækninga og aflíf- unar, en hræjum hinna dauðu dýra er eytt í þar til gerðum eyðingarofnum. í sambandi við þetta er um það rætt, að efla sérstaklega meðal borgaranna Dýravernd- unarfélag Reykjavíkur. dýraverndunai'félaginu hefur verið ágætt samstarf og þess gætt, að til þessa starfa réðust ætíð samvizusamir menn. En þar eð það hefur viljað brenna við, að heimiliskettir hafa verið utan dyra seint á kvöldin og að nóttu til, hefur það oft hent, að þeim hefur ver- ið sálgað, þar eð ekki hefur ver- ið unnt að aðgreina þá frá venjulegum villiköttum. í vetur er sem sé í ráði að koma skipulagi á þessi mál, þannig að Dýraverndunarfélag Reykjavíkui'bæjar sjái um ör- ugga og hreinlega aflífun „kjöltuhúsdýra“, sömuleiðis lækning þeirra, sem sjúk eru, en heilbrigðisyfirvöld og Dýra- verndunarfélagið taki höndum saman um að sjá svo um, að heimilislausum sníkju- og hús- dýrum verði eytt úr bænum. KATTADRÁPIN VARÐA TVENNS KONAR LÖG Að því er varðar kattadrápin er það að segja, að þau varða tvenns konar lög, dýraverndun- arlög og heilbrigðislög. Erlena- is er því á Þann veg farið, að eigendur húsdýra í borgum eru skyldaðir til að borga af þeim háa skatta, og séu. dýrin að flækjast úti við, eru |i>u álitin flökkudýr eða sníkjuhúsdýr og réfctlaus. Kettir t. d., sem þannig er ástatt um, eru settir í sama flokk og dúfur, rotturogmýs, en það er heilbrigðisyfirvaldanna að sjá um eyðing þeirra og dýra verndunarfélagsins, að sú evð- ing sé mannúðlega fram- Að undanförnu hefur sá hátt I ur vei'ið á í Rvík, að starfs- maður frá borgarlækni hefur unnið að eyðingu slíkra dýra, en með yfirmönnum hans og Enn veiisf karfinn... ! SJÖ togarar hafa landað í Reykjavík það sem af er vik- unni, samtals um 1630 lestum. Er. aflinn nær eingöngu karfi og nokkuð jafn, nema hjá Geir sem fór stutta veiðiferð á heimamið. Hinir vroru að veið- uin við Nýfundnaland og Vest- ur-Grænland. Aflinn skiptist þannig milli skipanna: Neptúnus 345 lestir, Geir 95, Ingólfur Arnarson 262, Þorkell máni 149, Jón forseti ca. 280, Hallveig Fróðadóttir ca. 300 og Jón Þorláksson ca. 200 lestir. Irlsffelfur þriðji í 3000 m. hlðupi á ágætu íslandsmefi iSARPSBORG, 26. ág. (NTB). Á alþjóðlegu íþróttamóti, sem haldið var í Sarpsborg í dag, setti Kristleifur Guðbjörnsson nýtt íslenzkt met í 3000 metra hlaupi á 8:21,0 mín. Sigurveg- ari í hlaupinu var Norðmaður- inn Hammarsland á 8:17,6, ann- ar Englendingurinn Gilligan á sama íma, og Kristleifur þriðji, 8:21,0, fjórði Watscthe, Þýzka- landi, 8:21,6 óg Mccriman, Eng landi fiinmti, 8:23,6. Svavar Markússön varð fjórði í 1000 metra hlaupi á 2:31,0 mín. Sigurvegari var Prulsch, Þýzkalandi 2:26,2. Árangur varð góður í mörg- u mgreinum. Bunæs vann 200 metra á 21,2, Radford annary 21,9. 400 m 1. Wrighton, 47^2. í sleggjukasti sigraði Rut, Pól- landi, 64,19, annar Strandli 62,03. þriðji Oddvar Krogh 60,15. Spjótkast: 1) Sidlo, Pól- land 80,19, annar Danielseis 72,47, þriðji Rasmussen 72,16. 100 m: 1) Radford, Englandl 10.5, 2) Gamper, Þýzkaland 10.6. f einkaskeyti til Alþýðublaðs ins, sem blaðið fékk í gærmorg- un, var skýrt frá því, að meiðsli Kristleifs bsfðu tel^ð sig upp, en sem betur fer hefujr það ekki verið alvarlegt, annars hefði hann varla sett met í gær- kvöldi.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.