Alþýðublaðið - 01.09.1959, Blaðsíða 1
i
32 SÍÐUR í DÁG - 1. blað
40. árg. ■— Þriðjudagur 1. sept. 1959 — 185. tbl.
FYRSTA 12 mílna árið okkar er liðið. Við höf-
um ástæðu til að gleðjast og draga þjóðfánann í heila
stöng, því allar þjóðir sem hafa stundað veiðar á ís-
landsmiðum hafa viðurkennt fiskveiðitakmörkin í
verki að einni undantekinni. Þessi þjóð, Bretar, hefur
nú í eitt ár beitt hervaldi til þess að knýja bandalags-
þjóð sína til uppgjafar.
En þessi skrípahernaður Bret
anna hefur ekki verið þeim að
kostnaðarlausu.
Þeir hafa haft hér á einu ári
37 herskip.
Á þeim hafa verið um 8000
manns.
Þeir hafa orðið að hafa fjöl-
mörg olíuflutningaskip til
birgðaflutninga.
«
HLERÁÐ
Blaðið hefur hlerað
Að brezka flotastjórnin sé
hundóánægð með hlut-
verk sitt hér á íslands-
miðum. Ástæða: Herskip
in eru ekki byggð fyrir
langt úthald á norður-
slóðum og veður og sjór
leikur þau illa.
Afli togara þeirra hefur ver-
ið misjafn, yfirleitt lítill.
Daglega verja um 1000 sjó-
liðar 250 brezka togarasjó-
menn við landhelgisbrot.
Um 260 brezkum togurum
hefur landhelgisgæzlan
stefnt fyrir landhelgiábrot.
Ekki einn einasti togari frá
öðrum þjóðum en Bretum
hefur veitt innan fiskveiði-
takmarkanna svo vitað sé.
Brezki flotinn hefur strítt
gegn 120 manna Hði íslenzku
landhelgisgæzlunnar.
Friðunin innan fiskveiðitak-
markanna er um 80%.:
íslendingar geta verið ánægð
ir með fyrsta 12 r^jlna árið.
Síðustu fréttir
úr landhelginni
son sat við höfðalag hennar.
Var hann mjög ölvaður. Konan
lá á bekk nema hvað annar fót-
ur hennar lá út af honum og
niður á gólf. Brynjar fór heim
til sín, enda þekkti maður sá,
er þarna var til aðstoðar, hann I
og gat gefið hann upp við lög-
regluna.
Var nú læknir sóttur í skyndi
og lögregla. Um kl. 4 skoðaði
læknir líkið. Ekki kvaðst hann
þá þegar geta gefið úrskurð um
Framhald á 3 síðu.
BREZKA flotamálaráðuneytið
tilkynnti í gær, að varðskipið
Þór hefði reynt að taka brezk-
an togara að veiðum. Landhelg-
isgæzlan tjáði blaðinu í gær, að
þarna hefði verið um misskiln-
ing að ræða: Herskipið Trafalg-
ar var að taka olíu úr birgða-
skipi á Langanessvæði og lét
alla brezku togarana fara út fyc
ir 12 mílna mörkin á meðan.
Þór var þarna nærri á báta-
æfingu og þegar Trafalgar sá
bátunum rennt út — var í
skyndi hætt að taka olíuna og
siglt í áttina að Þór.
Illur á sér ills von.
AMUMMWmMMMIHIMWIM
í dag eru liðin
ár síðan heimsstyri-
öldin síðari brauzt út.
Við erum með frétt-
trnar af þessu — eins
og við sögðum þær
— á bls. 6 og 7.
MIVItMMIWMMIWMWIMtW
stöðina á Akranesi en hún varð
að hætta því og var henni þá
komið fyrir á Elliheimilinu.
ÞEKKTUST ÁÐUR.
Pilturinn, Brynjar Ólafsson,
þekkti Ástu heitna og hafði
nokkrum sinnum komið til henn
ar. Aðfaranótt sunnudagsins var
hann ás'amt félaga sínum að
drykkju í húsi einu skammt frá
Elliheimilinu. Var hann orðinn
mikið drukkinn, er hann yfirgaf
féiaga sinn um kl. 3 um nóttina.
Mun hann þá hafa haldið til Elli
heimilisins.
SÁ HÖRMULEGI atburður
gerðist á Akranesi aðfaranótt s.
1. sunnudags, að 22ja ára gam-
all maður varð 43ja ára gamalli
konu að bana. Gerðist atburður
þessi á Elliheimilinu á Akranesi
en konan var þar sem sjúkling-
ur. Mun hinn ungi maður hafa
banað konunni í ölæðiskasti.
Konan, er varð fyrir árásinni,
hét Ásta Þórarinsdóttir. Var hún
fædd á Akranesi og alin þar upp.
Foraldrar hepnar eru látnir. —
Ásta heitin var vangæf bæði til
sálar og líkama. Gat hún lítið
sem ekkert unnið fyrir sér. Um
skeið var hún sendill fyrir sím-
BRAUZTINN f
ÞVOTTAHÚS.
í kjallara elliheimilisins er
þvottahús. Brauzt Brynjar þar
inn og hélt upp þar þar sem vist-
menn heimilisins hafastvið. Mun
hann hafa þekkt þar til, því að
honn fann strax herbergi Ástu
heitinnar.
Einhvern tímann milli kl. 3
og 4 um nóttina verður starfs-
fólk Elliheimilisins vart við
það, að brotizt hefur verið inn
í Elliheimilið. Var þegar reynt
að ná í lögregluna en þegar
það tókst ekki alveg strax var
sóttur maður í næsta hús og
kiæddi hann sig í skyndingu
íil þess að veita aðstoð sína. —
Fannst innbrotsmaðurinn fljót-
lega í herbergi Ástu. Var Ásta
þegar örend en Brynjar Ólafs-
Mynd þessi sýnir herbergið í Elliheimilinu á Akranesí, þar
sem hinn sorglegi atburður átti sér stað aðfaranótt sunnudags.