Alþýðublaðið - 23.06.1959, Page 10
Miniiingarorð: ..
Aðalverkstjóri hjá Bæjar
útgerð Reykjavíkur, f. 18.
okt. 1893, d. 13. júní 1959
í DAG verður til moldar bor-
inn Friðfinnur Gíslason, yfir-
verkstjóri vi.ð saltfiskverkun
Bæjarútgerðar Reykjavíkur.
Friðfinnur bafði allt frá unga
Friðfinnur Gíslason.
Reykjavíkur, en í nýj um húsa-
kynnum. Mörg sporin frá fyrri
árum átti hann á rcitunum
þarna. Fullorðna fólkið dreif að,
það hélt tryggð sinni við salt-
fiskinn og verkun hans og vildi
vinna undir stjórn F'riðfinns. —
Unglingarnir komu einnig þeg-
,ar skólunum lauk, einnig börn-
in, sum hver tii þess að vinna
sín fyrstu handtök, sem þau
fengu laun fyrir.
Það var bjart yfir fiskverkun
arstöð Bæjarútgerð Re.vkjavík-
ur við Grandaveg, þegar ungl-
inga- og barnahópurinn, ásamt
fullorðna fólkinu, breiddi og
tók saman og stakkaði út; og
inni, samfelldur kliður gamla
og nýja tímans undir hand-
leiðslu prúðmennisins, sem nú
er látinn.
Starfsfólk Bæjarútgerðar
Reykjavíkur, æðri sem lægri,
þakka Friðfinni Gíslasyni, að-
alverkstjóra, samstaríiö. Það
minnist ljiúfmennsku hans í sam
starfinu, leiðbeininga hans'og
samvizkusemi, sem kom fram í
öllu því, sem hann tók sér fyrir
hendur meðan heilsa entist.
Það sendir eiginkonu hans,
börnum og öðrum ástvinum,
innilegar samúðarkveðjur og
biður þeim blessþhar.
Hvíl í friði látni samstarfs-
maður, þökk fyrir^amfylgdina.
Jón Axel Pétursson.
aldri unnið við þá starfsgrein,
sem fólkið við sjávarsíðuna
byggði líf sitt og afkomu á. í
Vesturbænum var athafnasvæði
hans iengst af, þar sem mörg
heimilin stunduðu saltfiskverk-
un sem eins konar heimilisiðn-
að.
Hann gjörðist snemma íeið-
beinandi og verkstjóri á stórri
fiskverkunarstöð, þar sem
margur unglingurinn fékk sín-
ar fyrstu leiðbeiningar við
yinnubrögðin hjá Friðfinni. Þá
framleiddu Islenc^ingar þurrk-
’aðan saltfisk í þúsundumi smá-
lesta, fisk, sem þótti betri að
gæðum, en nokkurra annarra.
Friðfinnur sálugi og margir
starfsbræðu hans áttu sinn
mikla og góða þátt í því, hversu
íslenzkur saltfiskur átti mikl-
um vinsældum að fagna í hifn-
um ýmsu löndum heims, allt frá
ítalíu, Spáni, Portúgal til Arg-
entínu og Braziliu.
Mikið starf og samvizkusemi
allra, sem1 að þessari framleiðslu
unnu, lá til grundvallar fyrir
þessu góða áliti á fiskinum. —
Allt frá sjómanninum um borð
til verkamannanna, sem skip-
uðu upp íiskinum, eins og það
var kallað, til verkakvennanna,
sem vöskuðu, til unglinga og
fullorðinna, sero önnuðust
breiðslu, samantekt og stökkun,
til fiskimatsmannanna og síðast
— en ekki sízt, til verkstjór-
anna, sem með glöggum augum
fylgdust með öllum ve.vkum á
landi, leiðbeindu og fundu að,
þar sem það átti við, undir yf-
irstjórn útvegsmanna, sem létu
sér annt um að hafa góða vöru
á fooðstólum framar öílu öðru
og vissu fovers virði það var fyr
ir iand og þjóð.
Það var mikið happ fyrir Bæj
arútgerð Reykjavíkur, þegar
hún hóf starfsemi sína við salt-
fiskverkun, að fá til starfs sem
aðalverkstjóra Friðfmn Gísla-
$on. Kunnátta hans og vand-
virkni. samfara óvenjulegri sam
vizkusemi og Ijúfmennsku, var
alkunn..
Leggja hurfti traustan grund-
völl að þessu stóra fyrirtæki
bæjarbúa., sem átti eftir að
verða stærsta saltfiskverkunar-
stöð landsins nú. Á sínum
gömlú slóðum byrjaðí Friðfinn
ur störfin hjá Bæjarútgerð
Minningarorð:
Jón Valdimar
Jóhannesson I
í DAG verður til moldar bor-
inn frá Fossvogskapellu Jón
Valdimar Jóhannesson frá
Hraungerði á Hellissandi. Jón
Jón V. Jóhannesson.
fæddist að Berserkjahrauni í
Helgafellssveit 21. sept. 1873
og var því á 86. aldursári er
hann lézt. Upp úr aldamótun-
um 1900 flutti Jón að Hellis-
sandi og giftist skömmu síðar
eftirlifandi konu sinni, Hildi
Sigurðardóttur. Þau Jón og
Hildur eignuðust þrjú börn,
sem til manndómsára komust,
og eru þau öll búsett hér í
Reykjavík. Börn þeirra Jóns og
Hildar eru: Frú Steinunn Jóns-
dóttir, Hólmgarði 35, Þorsteinn
Jónsson, búsettur Bólstaðarhlíð
33, og frú Kristín Jónsdóttir,
Hofsvallagötu 59.
Með Jóni Valdimar er til
rooldar genginn traustur ein-
staklingur úr íslenzkri alþýðu-
stétt. Hann skildi ungur að al-
þýðunni var nauðsynlegt að
standa saman urn hagsmuna-
mál sín. „Hvað má höndin ein
og ein, öll við vinnum saman“.
Þegar Alþýðuflokkurinn var
stofnaður, skipaði Jón sér þeg-
ar undir merki hans og þar
vann hann og starfaði meðan
kraftar entust. Hann var um
íjölda ára skeið afgreiðslu- og
útsölumaður Alþýðublaðsins á
Hellissandi. Sérhverju hags-
munamáli hins óbreytta verka-
manns og sjómanns lagði Jón
öruggt og hviklaust lið.
Þeir, sem áttu þess kost að
leita ráða Jóns Valdimars eða
Jóns í Hraungerði, sem hann
ýmist var kallaður heima á
Sandi, þurftu aldrei að vera í
vafa um, hvemig hinn starf-
andi sjómaður eða stritandi
verkamaður liti á hin aðkall-
andi vandamál dagsins. Það var
gott að eiga Jón Valdimar fyr-
ir vin og ráðgjafa.
Farinn að kröftum og heilsu
eftir langan vinnudag flutti
Jón Valdimar fyrir nokkrum
árum, áttræður að aldri, hing-
að til Reykjavíkur og dvaldist
hér í skjóli barna sinna, lengst
af hjá Kristínu dóttur sinni. I
vetur flutti hann á dvalarheim-
ili aldraðra sjómanna, Hrafn-
istu, og þar andaðist hann 15.
þ. m.
Aldamótamaðurinn Jón
Valdimar, hefur kvatt okkur
samferðamennina.
Maðurinn deyr, minningin
lifir.
Blessuð sé minning Jóns
Valdimars frá Hraungerði.
B. S.
Sænskar
HANDSAGIR
nýkomnar.
ður skrifstof uritvél ?
Vér eigum á leiðinni
sendingu af hinura
heimsþekktu
OLIVETTI
skrifstofuritv^lum,
Lexikon 80,
með 35 cm. valslengd.
Örfáum vélum er enn
óráðstafað úr þessari
sendingu. Sýnishorn
fyrirliggjandi.
olivelfi
Einkaumboðsmenn:
6. HELGA50N & MELSTEÐ H.F.
Hafnarstræti 19 — Sími 11644
Æviágrip flestra frambjóðenda og myndir af þeifn. ★ Línurit yfir styrk-
leikahlutföll stjórmnálaflokkanna 1916—1956. ★ Tölur yfir fyrri kosninga-
úrslit. ★ Þingmenn á síðasta þingi. ★ íslenkkar ríkisstjórnir frá upphafi.
★ Grein um fyrri kjördæmabrevtingar. ★ Kjördæmafrumvarpið. ★ Út-
hlutun uppbótarþingsæta.
Fæst í flestum bókabúðum og söluturnum um allt land.
Svarffygl.
23. júní 1959 — Alþýðublaðið