Alþýðublaðið - 06.09.1959, Síða 6

Alþýðublaðið - 06.09.1959, Síða 6
- ■ ■:■■' . :■■ Karlmenn, ÞAU eru ekki svo fá orð- in og orðtökin á íslenzku — um rigninguna: húðarrign- ing, hellirigning, ausandi rigning, grenjandi rigning, steypiregn, — það rignir eldi og farennisteini og það rignir eins og hellt sé úr fötu, svo að nokkur dæmi séu nefnd. Öll þessi orð og orðtök áttu vel við isíðaetþðinn föstudag. Þá rigndi sannar- lega eins og hellt væri úr fötu. Það rigndi stanzlaust allan eftirmiðdaginn og rigndi enn, þegar þessar lín- ur yoru hamraðar á ritvéi- ina litlu fyrir kvöldmat. Manneskjan reynir að skýla sér fyrir hamförum veðursins, og algengustu varnir borgarbúa gegn rign- ingunni eru eins og kunnugt er regnkápur einhverskon- ar — og regnhlífar. Þegar við gengum um miðb.æinn umræadan dag og vorum orðnir holdvotir fyrr en varði, fór ekki hjá SIGFÚS (hann er líka á efstu myndinni) — kannski ég hafi rekið hana í Helga Hjörvar ! því að við öfunduðum kven- fólkið sem spígsporaðí fram og aftur um stræti og torg, skrælþurrt undir regnhlífun um sínum. Engan karlmann sáum við með regnhlíf og þess vegna vaknaði spurn- ing dagsins: — Hvers vegna er ekki algengara, að karlmenn gangi með regnhlífar á sama hátt og kveníóik? Erlendis er það mjög el- gengt, að karlmenn gangi með regnhlífar og þykir ekkert ,,snobberí“ eða upp- skafningsháttur, eins og á- litið virðist hér á Iandi. Við ákváðum að fram- kvæma hávísindalega rann- sókn á einum einasta hálf- tíma. Við gengum um bæ- inn í leit að karlmönnum með regnhlífar og fundum — þrjá! í hvert skipti, sem við hittum svo skynsaman mann, sem bar regnhlíf til þess að vernda frakkann sinn, stóðumst við ekki mát- ið og tókum hann tali. — Áður en við segjum nánar frá vitringunum þremur, má skjóta því inn í, að fyrsti maðurinn, sem vogaði sér að ganga með regnhlíf, var brezkur. Þegar hann sást úti á götu, var hann grýttur af kvenfólki! 4* Roskinn maður var á gangi fyrir utan dómkirkj- una og bar þessa fyrirtaks regnhlíf, stóra, svarta og djúpa. Hann hitti kunningja sinn og hið fyrsta, sem kunn ingjanum varð að orði var: — Það er vit í þéssu hjá þér! Að svo mæltu skreið hann undir regnhlífina til hans. Við tókum mynd af þeim og spurðum eigandann, — • Björn Sveinsson, — hvort hann hefði notað regnhlíf í mörg ár. Nei, hann hafði ekki gert það. Gekk með hana núna, af því að hann vantaði regnkápu. Hins veg- ar kvaðst hann búast við, að bera hana framvegis. Þetta væri svo aldeilis prýðilegt. Við endann á Tjarnargötu hittum við Steinþór Sigurðs son, listmálara — með regn- hlíf. Hann kvaðst hafa keypt hana á Spáni, er hann dvaldist þar. — Ganga karlmenn með regnhlífar á Spáni? — Já, ég er nú hræddur um það. Þeir ganga með regnhlífar engu síður en kvenfólkið, og þar er meira að segja eriginn . munur á regnhlífum karla og kvenna — Sem sagt: Algert réttlæti karla og kvenna — Fþess- um efnum. — Kanntu vel við þig með regnhlífina? — Já. prýðilega. ■ Mér finnst afskaplega slæmt að láta rigna í hausinn á mér, og þar sem ég geng alltaf berhöfðaður, er regnhlifm einn af mínum þörfustu hlutum. * Sigfús Halldórsson, tón- skáld, kom brunandi út úr Alþýðuhúsinu á leið úr vinnu sinni og spennti upp regnhlífina sína í hendings- kasti. — Ertu búinn að ganga lengi með hana þessa? — Já, það er sennilega ein fimm ár síðan. Ég keypti hana í Hamborg þegar ég fór með Fóstbræðrum. — Segðu okkur eitthvað nánar af þessum ágæta grip. — Ja, ég setti hana fyrst upp í Frakklandi og þá fór ekki vel. Það var úti á miðri götu og ég skellti henni beint í augað á þrekvöxnum lögregluþjóni. Ég dró hana náttúrlega niður á auga- bragði og leit skelfdur upp á lögregluþjóninn. En þegar hann sá, hvað ég var aum- ingjalegur, — þá brosti hann. — Síðan hefur allt gengið vel? — Já, síðan hafa engin slys orðið, hvorki á lögreglu þjónum né öðrum. Það væri þá helzt, að ég hefðj. rekið hana í vin minn Helga Hjör- var, — en ég hef þá ekkert orðið var við það! — Þetta er sem ?agt sögu- leg regnhlíf. — Já, það er hún, því að auðvitað gleymdi ég henni um borð í Gullfossi, þegar heim kom. Hún fór aftur til Kaupmannahafnar. en skilaði sér. Að svo mæltu gekk Sig- fús niður Bánkástræti og hélt regnhlífinni sinni hátt og virðulega, •— skrjáfþrifr og hamingjusamur, meðan aðrir voru eins og hundar af sundi dregnir. — jafnrét Þeir hittust fyrir utan Dómkirkjuna og hið fy sá regnhlífarlausi sagði, var: „Það er vit í þessu Að svo mæltu skreið hann undir regnhlíf FANGAR FRUMSKÓGARINS FRANS tekst að hífa vin sinn upp klettana. ,,Þakka þér íyrir, Frans“, segir Ge- org. ,,Éf ég hefði ekki notið hjálpar þinnar . . .“ — „Við skulum sleppa því“, grípur Frans fram í fyrir honum. ,En segðu okkur heldur, — hvernig stóð á þ^ hafnaðir skyndile um“. — , Já, hei en“, segir prófess ,,Segðu okkur, Y fyrir þig“. „Óþok M g 6. áept. 1959 — Alþýðublaðið

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.