Alþýðublaðið - 16.09.1959, Page 1

Alþýðublaðið - 16.09.1959, Page 1
i UM MIÐNÆTTI aðfaranótt sl. sunnudags var hringt á lög- reglustöðína og tilkynnt að slys Iiefði orðið í Vonarstrœti á móts við Iðnó. Er lögreglan kom á staðinn, lá ungur maður á götunni. Sagði hann, að bifreið, sem var þar skammt frá, hefði eki á hann. Maðurinn kvaðst ekkert finna til, en þar sem hann var greinilega undir áhrifum víns, og ekki víst, að hann gerði sér grein fyrir meiðslum, var þegar hringt á sjúkrabifreið. Hann var síðan fluttur á slysavarðstofuna og tekinn til rannsóknar. Gátu læknar ekk- ert fundið að manninum og úr- skurðuðu hann algerlega ó- meiddann. Virðist ekkert hafa vakað fyr HLERAÐ Blaðið hefur hlerað Að búið sé að loka hinni myndarlegu matvöru- verzlun Clausens á Laugavegi 22. STAÐAN í biðskák Friðriks og Fischctrs er þannig: Friðrik (hvítt): Kh2, He3, d4, g3, h3. Fischer (svart): Kg5, Bd3, c4, f7, h4. Friðrik á biðleikinn. Biðskákin verður tefld í dag. ir honum annað, en að gabba hjúkrunarlið og lögreglu á stað- inn. Sjónarvottur segir, að mað- urinn hafi gengið í veg fyrir bifreið sem kom akandi. Bif- reiðarstjórinn ók á mjög hægri ferð og hemlaði strax og hann sá manninn, en var ekki viss um, hvort bifreiðin hefði snert hann. ALLSHERJARÞING SÞ SEIT í GÆR. NEW YORK, 15. sept. REUT- ER). Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna verður sett hér í kvöld. Utanríkisráðherra Líba- non, Rachild Karame, mun setja þingið. Karame er bráðabirgðafor- seti þingsins, þar eð forseti síð- asta þings var dr. Charles Malik frá Líbanon, en formaður sendi nefndarinnar frá því landi, sem síðasti forséti var frá, setur æ- tíð næsta þing. Þingið hefst með bænastund, að öllum fulltrúunum stand- andi, síðan verður útnefning í trúnaðarráð. Á fyrsta fundi er einnig kos- inn forseti þingsins. Talið er, að þetta árið verði dr. Victor Andrews Belaunde fyrrverandi stjórnarerindreki frá Perú, fyr- ir valinu. : ÉG er ekki há í loftinu að vísu, en ég skal segja .ykkur það, að ég er búin að vera í garðyrkju í sum- ar, og þó að ég segi sjálf frá með mjög sæmilegum árangri. Ég er að taka upp þessa dagana. (Framh. á bls. 3) LISTAMENN hafa nú fundið út, að eðlilegast og réttast sé, að einhver úr þeirra hópi skipi stöðu þjóðgarðsvarðair. Telja þeir að á þann hátt einan verði vernduð þinghelgi hingvalla. Blaðinu barst í gær eftirfar- andi frá Bandalagi ísl. lista- manna: Stjórnarfundur Bandalags ís lenzkra listamanna með fulltrú um allra sambandsfélaga, Arki tektafélags íslands, Félags ís- lenzkra leikara, Félags,ísl. list- dansara, Félags íslenzkra mynd listarmanna, Félags íslenzkra tónlistarmanna, Rithöfundasam bands íslands og og Tónskálda- félags íslands samþykkti nýlega einróma eftirfarandi áskoxxm til Þingvallanefndar: Framhald á 3. síðu. AÐ beiðni Reykjavíkur Iét ICA bænum í té þjónustu um- ferðarsérfræðings 50 daga tíma bil frá 11. apríj til 30. maí sl. Hefur hann nú skilað áliti og leggur í því íi.'am róttækar t.’l- lögur. Vill hann m. a. að bif- reiðaslöðvarnar og benzínstöðv arnar verði fluttar úr miðbæn- um. Skýrsla umferðarsérfræðings ins, Lawrence J. Hoffman, varp ar mjög skýru ljósi á umferðar- öngþveitið í Reykjavík og er að finna í henni miklar upplýsing- ar um umferðarmái höfuostað- arins. ÖLL UMFERÐ Á TAKMÖRK- UÐUM GATNAFJÖLDA Hoffman bendir á það, að staðsetning Reykjavíkur geri það að verkum, að öll umferð leggist á takmarkaðan gatna- fjölda. Miðdepil athafnalífsins er á litlu svæði milli hæða og sjávar, segir Hoffman, og þar eru einnig helztu opinberar byggingar. Þar af leiðandi ver.ð ur nær ölj umferð milli bæjar- hluta að fara gegnum verzlun- arhverfið. Miðbærinn ræður ekki við þessa umferð auk um- ferðarinnar innan miðbæjarins og um höfnina. Á 7—8 metra breiðar götur og gangstétt'ir 2ja metra eða enn mjórri er þröngvað bif- reiðum, almenningsvögnum, vörubílum, lijólhestum, mót- segir erlendur umferðarsérfræðingur orhjólum og gangandi fólki,♦- sem komast þarf inn á svæði þetta eða um það. FLEIRI EN EIN ENDASTÖÐ SVR Hoffmann fellst á, að SVR hafi stöð í miðbænum, en hann vill hafa endastöðvarnar fleiri til þess að þrengþlin veröi ekki of mikil á enum stað. Leggur hann til, að auk enda stöðva þeirra, sem nú eru, verði einnig komið upp endstöðvum við Sölvhólsgötu og við Hring- braut nærri Reykjavíkurflug- velli, þar sem hann telur hent- ugan stað fyrir millibæja-al- menningsvagna. Hoffman gerir sér vel Ijóst, Framhald á 3. síðu. PARÍS, 15. sept. (REUTER). f kvöld heldur de Gaulle, for- seti Frakklands, útvarpsræðu, þar sem hann skýrir frá hinni nýju stefnu Frakka í Alsírmál- inu. Búizt er við því, að de Gaulle muni staðfesta það, að Alsírbú- ar fái sjálfsákvörðunarrétt í því máli, hvort þeir vilji vera á- fram undir stjórn Frakka eða ekki. Þetta er hinn vinsæli dæg urlagasöngvari Sigurdór Sigurdórsson. Hann ætlar að kynna nýtt dægurlag eftir Ástu Sveinsdóttur á kabarettinum „Gamalt og nýtt“ í Austurbæjarbíói á föstudagskvöldið. S. siðu

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.