Alþýðublaðið - 25.10.1959, Blaðsíða 9
Erlendar knattspyrnu ffréttir:
Lék á sex Júgóslava oa
UNGVERJAR hafa verið í
fremstu röð knattspyrnuþjóða
undanfarin ár og eru enn, þrátt
fyrir útkomuna á heimsmeist-
arakeppninni í fyrra. Það verð-
ur að taka tillit til þess, að
margir beztu knattspyrnumenn
þeirra flýðu land, þegar upp-
reisnin stóð yfir 1956.
Fyrir nokkru sigruðu Ung-
verjar Júgóslava með 4 mörk-
um gegn 2 í landsleik, sem háð-
ur var í Júgóslavíu. Júgóslav-
arnir hafa einhverja minnimátt
arkennd gagnvart Ungverjum.
Þeir hafa ekki unnið þá i 28 ár.
í þessum umrædda leik skor-
aði undrabarnið Florian Albert
þrjú mörk, hat-trick, en Florian
þessi er aðeins 18 ára. — Um
tíma var jafnt í leik þessum —
2:2 — og þ áskoraði Florian sér
staklega fallegt mark. Hann lék
á fimm Júgólsava og loks mark
manninn og sendi síðan knött-
inn í mannlaust markið!
Annars eru Ungverjar í
,,stuði“ þessa dagana. Ferenc-
; vors sigraði Kickers Offenbach
6:1. — Honved vann Dukla
Prag 8:0 og Ujpest sigraði Bre-
men og Standard Liege. Ung-
MMMMHHHHHHMmMUW
Sjö Rússar hafa
stokkið 16 metra
eða lengra í ár.
ALLS hafa sjö Rússair
stokkið 16 metra og
lengra í þrístökki á þessu
sumri, sá sem gerði það
síðast heitir Kobeljev,
hann stökk 16,01 m.
Hinir eru:
Fedossejev 16,70 m
Gorjajov 16,51 m
Kreer 16,48 m
RJachowski 16,38 m
Karputjenko 16,20 m
Michalow 16,02 m!
iWWIWWMMWWMMHWWMM
verjaland B vann Júgóslavíu B
4:0.
★
í LEIK Frakklands og Búlg-
aríu í Sofiu á dögunum var það
Koleff, sem skoraði sigurmark
Búlgaríu. Frakkar mættu með
HM lið sitt, það vantaði aðeins
Wiesniewski.
ÁHUGAMANNALIÐ Brasi-
líu, sem var á keppnisferðalagi
á Norðurlöndum og skýrt var
frá hér á síðunni, heldur áfram
keppni með batnandi árangri.
Hér eru nokkur úrslit Rio de
Janeiro — Neumunster (Þýzka
land) 4:1, Rio Hildeshem 1:3 og
Rio St. Pauli (Hamborg) 3:2.
Íþróttir erlendis
JÚGÓSLAVNESKI gvinda-
hlauparinn Stanko Lorger hef-
ur náð tímanum 13,9 sek. í 110
m grind og 10,5 sek. í 100 m
hlaupi. Radosevic setti júgóslav
neskt met í kringlukasti, 54,11
m.
HOLLENZKA stúlkan Mari-
anne Heemskerk hefur sett met
í 200 m flugsundi, 2:35,3 mín. í
25 m Iaug. Er það 3,3 sek. betri
tímii en heimsmet Collins frá
USA, sem sett er í 50 m Iaug.
SKÝRT var frá þvf á
síðunni í vikunni, að
heimsmeistaramót í fim-
leikum hefð farið fram í
Kaupmannahöfn um síð-
ustu helgi. Myndin er frá
keppninni og það er ein-
mitt heimsmeistarinn
sjálfur, Rússinn .Turi Tre-
tov, sem þið sjáið í hring-
unum.
MIÐJARÐARHAFSLEIK-
IRNIR eru nú háðir í Beirut
með þátttöku 11 þjóða. í sundi
hefur náðst ágætur árangur.
Pucci, Ítalíu, sigraði í 100 m
sbriðsundi á 57,2 sek., annar
varð Koomur, Júg., 58,2 sek. —
Brinovic, Júg. sigraði í 400 m
skrðsundi, 4:44,5 mín., annar
varð Jeger, Júg. 4:44,9. í 100
m baksundi sigraði Christophe,
Frakkl. 1:04,8, annar vau-ð Dor-
sic, Júg. 1:06,3.
Sýning Myndlistarfélagsins
FÉLAG íslenzkra myndlist
armanna heldur myndlistar-
sýningu í Listamannaskálan-
um um þesar mundir og eru
þar til sýnis verk eftir 27
málara Oo- myndhöggvar'a.
Athygli manns dregst ó-
sjálfrátt fyrst að„ verkum
hinna gömlu og góðu forvíg-
ismanna í málaralistinni,
þeirra Kristínar Jónsdóttur
og Snorra Arinbjarnar. Mér
þætti viðeigandi að Mennta-
málaráð gegnist fyrir yfirlits
sýningu á verkum þessara á-
gætu listamanna eins og stund
um hefur verið gert áður, svo
sem yfirlitssýning á verkum
Kjarvals, Ásgríms Og Jóns
Stefánssonar og Júlíönu
Sveinsdóttur. Færi einkar vel
á því að hið opinbera heiðri
minningu þessara brautryðj-
enda með yfirlitssýningum
á vetri komanda.
Jóhannes Sv. Kjarval á
tvær myndir á sýningunni.
Önnur „Skólaskylda11 er
ágætt verk í abstraktformi og
hefði verið gaman að sjá
meira af slíku. í hinni mynd-
inni „Eldgos“ er merkileg
upplifun, en e. t. v. hefði mátt
v.nna.meira úr efninu, enda
mun hún ennþá vera í vinnslu
að sögn meistarans.
Jóhannes Jóhannesson kem
ur nokkuð á óvart og hefur
sótt í sig veðrið. Sérstaklega
er það ein mynd, sem gefur
góð fyrirheit ,,Komposisjón“
nr. 8 og er bezta mynd frá
hans hendi til þessa og væri
athugandi fyrir listamanninn
að leggja meiri rækt við Þess
konar listsköpun, hinar mynd
irnar eru allgóðar, en nokkuð
hrjúfar í lit og formi.
Karl Kvaran á fjögur goua-
che-verk og eru þau öll traust
og tær, unnin af öryggi.
Valtýr Pétursson sýnir fjög
ur verk, þau eru fremur
grunn, en þó í léttum tón-
um og er skemmtileg stemn-
ing 'yfir' myndinni „Nótt í
Samarkand“.
Hafsteinn Austmann á fjög
ur málverk á sýningunni og
eru þau í svipuðum dúr og áð-
ur, en þó hvílir meiri ein-
lægni yfir verkunum.
Guðmundu AndrésdóttuP
tekst ekki sem skyldi; verkin
eru nokkuð yfirspennt, þó
sker nr. 39 sig úr, sem vel
uppbyggt verk.
Verk frú Barböru Árnason
era yfirlætislaus og einlæg
að venju.
Sigurður Sigurðsson skapar
verk sín í hefðbundnum nat-
úralisma, en þó er léttara yfir
þeim en áður.
Hjörleifur Sigurðsson á eitt
málverk á sýningunni frá
1955 og hefði verið fróðlegt
að sjá nýrri verk.
Skarphéðinn Haraldsson
hefur mjög fágaða tækni í
vatnslitum.
Magnús A. Árnason á eina
mynd, sem er saklaust nat-
uraliskt verk.
Kristján Davíðsson á fjórar
terra cotta myndir, sem sýna
nýja hlið á listamanninum.
Einair E. Baldvinsson hélt
sýningu fyrir tveimur árum
síðan og málaði þá naturalist-
iskt, nú hefur hann horfið af.
þeirri braut til óhlutkenndr-
ar myndsköpunar og kemur
þar fram hve vandmeðfarin
sú listsköpun er. því lista-
manninum tekst nú miður en
áður og þarf þó ekki að efast
um hæfileika málarans.
Verk Kristins Sigurbjcl-ns-
sonar eru traus og gerð af
einlægni, en um of þunglama
leg og líflaus. Af nýliðum í
málaralistinni finnst mér
Steinþór Sigurðsson Iang efni
legastur, að vísu hvílir nokk-
ur drungi yfir verkum hans,
en það leynir sér ekki að hér
er efni í góðan málara á ferð.
Mæðgurnar Málfríður Kon-
ráðsdóttir og fr. Guðrún
Svava Guðmundsdóttir vekja
á sinn hátt athygli, verkin eru
kvenleg og finnst mér móðir-
inni takast betur.
Magnús Þór Jónsson mun
vei'a yngsti þátttakandi á mál
verkasýningunni hér til þessa,
mynd hans er laglegt skóla-
stykki.
Auðsær byrjandablær er á
geðþekku verki Helgu Jónat-
ansdóttur.
Vilhjálmur Bergsson hefur
gjörsamlega tekið Vasarelv til
fyrirmyndar og BjtUni Jóns-
son fer dyggilega í fótspor
Dewasnes. Vera má að slíkt
sé nauðsynlegt til þess að fá
reynslu á einhvern hátt, en
ómögulegt er að meta hæfi-
leika manna af slíkmu til-
raunum.
S*gurjón Ólafsson á þrjú
ágæt verk á sýningunni, og er
nr. 10 þeirra bezt.
Jón Gunnar Árnason á
skemmtilegt verk, í allhefð-
bundnum stíl.
Verk Guffmunlar Bene-
diktssonar gefa til kvnna gott
verklag og hugkv.æmni, er kem
ur skýi't fram í ,stálverki‘ nr. 4.
í heild er góður blær yfir
sýningunni, henni lýkur á
kosningadaginn.
G. Þ.
Bárður iakobsson
lögfræðingur
Hafnarstræti 11
Sími 16188
■■■■■■■■■■•■•■■■■■■■■■•■■■■•■■Bfftí
Innilegustu þakkir sendum við öllum þeirn sem auðsýndct
samúð og vináttu við fráfall og útför eigipmanns míns cjf
föður okkar,
DR. MED. BJÖRNS SIGURÐSSONAR.
Una Jóhannesdóttir,
Edda Sigrún Björnsdóttir,
Sigurður Björnsson,
Jóhannes Örn Björnsson.
Alþýðublaðið — 25. okt. 1959 ^