Alþýðublaðið - 29.10.1959, Síða 3
<
erum e
Forstjóri skrifstofa flugfé-
lagsins Loftleiða í Bretlandi,
R. W. Orme, kom til íslands í
fyrradag og dvaldist hérlendis
í tvo daga. Hann var að koma
af þingi forstjóra ferðaskrif-
stofa og annarra framámanna í I
ferðamálum, en þing þetta var
haldið á Kúbu.
Blaðið átti í gær viðtal við
Mr. Orme.
— Hvenær hófuð þér starf
hjá Loftleiðum?
— Síðan eru þrjú ár. Við
höfðum fyrst eingöngu aðset-
ur í Glasgow, en síðar færðum
við út kvíarnar til London. í
Glasgow höfum við nú skrif-
stofu bæði inni { borginni og
úti á flugvellinum, en skrif-
stofa okkar í Lundúnaborg er
í hjarta staðarins, rétt í nám-
unda við ameríska sendiráðið.
— Hvað er að segja um ár-
angur starfsins?
— Ég held mér sé óhætt að
segja, að hann sé mjög góður.
Ef við reyndum að setja þetta
fram í tölum mundi vera unnt
að segja, að árangurinn annað
árið borið saman við það fyrsta
hafi verið 300%, en árangur
hins þriðja borið saman við
annað árið 200%.
— Er margt starfslið ytra?
— Nú munu um 12 manns
vera starfandi á skrifstofum
Loftleiða í Bretlandi. Eru það
flest Bretar, en öðru hvoru
IWMMWMWWWWmWWIWMWMWmwMMMWWMWWM
Eldsvoði
Framhald af 1. síðu.
Einnig var eldur í járnsmiðju á
sömu hæð hússins.
Slökkviliðsmennirnir kom-
ust að eldinum gegnum glugg-
ann og í öryggisskyni var járn-
ið rofið á þakinu. Þó mikill eld-
ur væri laus, gekk slökkvistarf-
ið það vel, að hann var slökktur
á hálfri klukkustund.
Tjónið af brunanum mun
hafa verið nokkuð mikið, eink-
um á klæðningu og þiljum og
enn fremur voru þarna dýrar
vélar en ekki var kunnugt um
í gær, hversu miklar skemmd-
irnar á þeim eru.
Samkvæmt frásögn rannsókn
arlögreglunnar var ekbi vitað
fyllilega um eldsupptök. Lík-
legt var þó talið, að kviknað
hefði í nálægt eða í járnsmiðj-
unni, því þar var eldurinn
magnaðastur.
R. W. Orme
vinna hjá okkur íslendingar
tíma og tíma.
— Hafið þér margar ferða-
eða skrifstofur í sambandi við
einhvers konar ferðalög undir
yðar stjórn?
— Þær eru alls 1550. Það tók
mig tvö ár, að heimsækja þær
allar í eigin persónu, en tveir
menn eru sífellt á förum á milli
skrifstofanna í ýmis konar um-
boðserindum.
— Haldið þér, að fiskveiði-
deilan hafi einhver neikvæð á-
hrif á framgang Loftleiða í
Bretlandi?
— Alls ekki nein. Það eru
fáir, sem nokkuð vita um fisk-
veiðideiluna hvað þá meir. —
Fyrsta árið, sem ég starfaði hjá
Loftleiðum fór mjög í að kynna
landið og laða fólk að, fólk,
sem stóð á því fastar en fótun-
um, að á íslandi byggju eski-
móar og þar ríkti eilíf nótt og
nístingskuldi.
— Hvað viljið þér segja af
þessari ráðstefnu, sem þér vor-
uð á?
— Þessi ráðstefna, sem ég
sat nú á Kúbu, er ráðstefna
I H fT
J 0 6 1«$
MIKLAR hreytingar verða á
skipan alþingis við nýafsíaðnar
kos.ningar. 13 nýir þingmenn
taka sæti á þinginu í fyrsta
sinn. Nokkrir, er setið hafa
lengi, víkja, þair á meðal Sig-
urður Bjarnason, Jón Pálma-
son, Páll Zóphóníasson, Björn
Olafsson, Áki Jakobsson og
Bernharð Stefánsson.
Þessir þingmenn taka sæti í
fyrsta sinn: Sigurður Ingimund
arson (A), Jón Þorsteinsson
(A) , Birgir Finnsson (A), Pétur
Sigurðsson (D), Birgir Kjaran
(D). Jón Skaptason (B), Alfreð
Gíslason (D), Geir Gunnarsson
(G), Bjartmar Guðmundsson
(D), Jónas Pétursson (D), Auð-
ur Auðuns (D), Eðvarð Sigurðs
son (G), Garðar Halldórsson
(B) .
Sigurður Bjarnason féll í
Vestfjarðakjördæmi og Jón
Páímason komst ekki að í Norð
urlandskjördæmi vestra. Hins
vegar voru Páll Zóphóníasson,
Áki Jakobsson, Björn Ólafsson
og Bernharð Stefánsson ekki í
framboði. Til fróðleiks má geta
þess, að ef Sigurður Bjarnason
hefði komizt að í Vestfjarða-
kjördæmi, en Birgir Finnsson
ekki, hefði Alþýðuflokkurinn
fengið 5 uppbótarmenn og hefði
Unnar Stefánsson þá orðið 5.
uppbótarmaður Alþýðuflokks-
ins, en Jón Þorsteinsson ekki
orðið uppbótarmaður, þar eð
Birgir Finnsson hefði þá haft
hærri hlutfallstölu en Jón. Unn
ar hefði farið inn á tölu. Kom-
múnistar hefðu þá aðeins feng-
ið 3 uppbótarmenn til viðbótar
6 kjörnum og því aðeins verið
með 9 þingmenn. En þeir fengu
4 uppbótarmenn við kjör Birg-
is og hafa því 10 þingmenn.
ASTA (American Society Trav-
el Agency). Um 2200 manns
sótti þingið frá 82 löndum. Það
var skrýtin og skemmtileg til-
viljun, að í fánaborginni, sem
reist var við opnun ráðstefn-
unnar blakti fáni norrænnar,
fjarlægrar þjóðar fyrir miðju
— fáni íslands.
Ráðstefnur sem þessi eru
haldnar árlega, annað árið í
Bandaríkjunum hitt árið í ein-
hverju aðildarríkjanna utan
þeirra. Þær eiga að stuðla að
auknum skilningi milli þjóð-
anna, sem að ferðafélögunum
standa og sömuleiðis stuðla að
framförum í ferðamálum, —
bættum aðbúnaði ferðamanna
og aukinni fyrirgreiðslu. Þing-
ið stóð í 7 daga.
— Haldið þér, að nokkrir hafi
hætt við að fara á ráðstefnuna
vegna þess að hún var haldin
á Kúbu?
— Já, margir munu hafa
hætt við að koma á þingið —
vegna þess, og um 40 meðlimir
sneru aftur, þegar fréttist um
flugvél, sem kom frá Ameríku
og skotin var niður af þjóð-
ernissinnum á Kúbu.
— Hvernig leizt yður á yð-
ur þar í landi?
—Mjög vel. Aðbúnaður all-
ur var sérstaklega góður og hót
elin, sem við bjuggum á tví-
mælalaust fyrsta flokks. — í
hverju stóru hóteli á Kúba eru
einkanæturklúbbar og spilasal
ir. Okkur var gefinn afsláttur
af hóteldvölinni, en dvöl okkar
hefur haft mikinn kostnað í
för með sér fyrir ríkissjóð
Kúbubúa. Kúba er dýrt land.
— Fannst yður, að Fidel
Castro mundi eiga vinsældum
að fagna á eynni?
— Já, hann er vinsæll eink-
um meðal hinna lægri stétta,
en það er fyrir þeirra réttind-
um, sem hann berst. Hinum rík
ari er minna um hann. — Hann
berst fyrir bættum kjörum
hinna lágu, enda mun ekki van-
þörf á, lífsafkoma almennings
virðist mjög slæm, húsakostur
aumir kofar og annað eftir því.
— Hittuð þér Fidel Castro?
— Já, ég talaði við hann per-
sónulega, og hann mætti á
hverjum degi á ráðstefnunni.
Þar hélt hann einnig ræður.
— Hvað álítið þér um Cast-
ro?
— Hann kemur mér fyrir
sjónir, sem mjög fær, — en
ungur maður. Hann vill gera
of marga hluti á somu stundu.
Hann segir við Ameríkumenn-
ina, sem hann talar við, að hann
sé vinveittur Ameríkumönn-
um, en rétt á eftir talar hann
til þjóðar sinnar í útvarp á
móti Ameríkumönnum.
— Eru nokkrar hindranir á
því að komast til Kúbu?
•—Nei, það er algjörlega op-
ið land, og Fidel Castro lagði
einnig mikla áherzlu á, að syo
væri. Hann hvatti okkur til
að skora á fólk að koma þangað,
þar sem allir eru frjálsir og ó-
háðir.
—• Er náttúrufegurð mikil
þar syðra?
— Mjög mikil. Sandströndin
umlykur eyna alla, — sand-
ströndin heit og ljós. Krónur
pálmatrjáanna slúta niður, en
trén ber við bláan, heiðan him
in, þar sem sólin eilíft skín. —
..Við erum ekki kommúnistar‘‘
Framhald á 10. síðu.
ALÞÝÐUBLAÐIÐ hefur
þegar birt myndir af 4
kjörnum þingmönnum Al-
þýðuflokksins. Hér koma
myndir af 5. kjörna þing-
manninum og 4 uppbótar-
þingmönnum Alþýðu-
flokksins, Birgi Finnssyni,
Sigurði Ingimundarsyni,
Guðmundi í. Guðmunds-
syni, Friðjóni Skarphéð-
inssyni og Jóni Þorsteins-
syni.
Birgir Finnson
Sigurður Ingimundarsson Guðmundur í. Guðmundsson
Friðjón Skarphéðinsson Jón Þorsteinsson
MMIWMIWIMIUMMWWVtMMWWIWWMWWWMMMWWVWW
Endanleg úrslit kosninganna;
urini
Heildariirslit Icosninganna hafa þá orðið sem hér scgir:
Alþýðuflokkur: 12 910 atkv. e,a 15,2% (10 632 — 12,5%).
Framsóknarfl. 21 884 atkv. eða 25,7% (23 061 — 27,3%).
Alþýðubandalag: 13 621 eða 16,0% (12 929 — 15,2%).
Sjólfstæðisflokkur 33 798 eða 39,7% (36 029 — 42,5%).
Þjóðvarnarflokkur: 2882 — 3,4% (2137 — 2,5%).
Þingmenn skiptast sem liér segir á flokkana:
Alþýðuflokkur 9 (þar af 4 uppbótarþingmenn).
Framsóknarflokkur 17 (enginn uppbótarmaður).
Sjálfstæðisflokkur 24 (3 uppbótarþingmienn).
Alþýðubandalag 10 (4 uppbótarþingmenn).
KL. 5 í gærmorgun lauk talningu í Vestfjarðakjördæmi
og hafði þá verið talið í öllum kjördæmum. Úaslit í Vest-
fjarðakjördæmi urðu þessi (í svigu múrslit sl. vor): A-
Iisti,Alþýðuflokkur 680 atkv. og 1 mann kjörinn (597 og
engan). B-Iisti, Framsóknarflokkuir 1744 og tvo menn
kjörna (1897 og 2), D-listi, Sjálfstæðisflokkur 1957 og 2
menn kjörna (2091 og 3). G-listi 658 og engan mann kjör-
inn (407 og engan). Þingmienn kjördæmisins eru þessir:
Birgir Finnsson af A-liSta, Gísli Jónsson og Kjatftan
J. Jóhannsson of D-lista. Hermann Jónasson og Sigurvin
Einarsson af B-lista.
imwwwwwmwwiwwwwvmwwiwuwwww
Alþýðublaðið — 29. okt. 1959 3