Alþýðublaðið - 14.11.1959, Side 10
Rœtt við Rolla Gústavsson stud. theoL
OKKUR langaði til að
fræðast ögn um félagslíf stúd-
epta innan Háskólans og sner-
um okkur til Bolla Gústavs-
sonar fyrrverandi fulltrúa
stúdentafélags jafnaðarmanna
í stúdentaráði og spuirðum
hann álits um helztu mál sem
þar eru á döfinni.
★
— í fyrstu langatr okkur að
spyrja þig, sem fyrrverandi
fulltrúa í stúdentaráði, um
áhrif stjórnmála á félagslífið
innan Háskólans.
— Fyrir síðast liðnar kosn-
ingar til stúdentaráðs komu
fram háværar raddir um það,
að stjórnmál settu um of svip
sinn á störf ráðsins. Af þessu
spratt nokkuð öflug hreyfing
á meðal stúdenta, sem leildi
til þess að fram kom ópólitísk
ur listi fyrir kosningarnar. •—
Stuðningsmenn hans nefndu
sig „óháða“ og komu þeir að
einum manni. Hlutverk hans
1 verður að stuðla að því að
pólitíkinni verði með öllu út-
hýst úr ráðinu.
Að sjálfsögðu væri þetta
mjög æskilegt, þar sem að að-
al verkefni þessa vettvangs er
að vinna að ýmsum hagsmuna
málum stúdenta, en reyndin
er sú að pólitískar vangavelt-
ur og deilur hafa um of setið
fyrirrúmi. Nú er það svo, að
margir stúdentar eru pólitísk-
ir og hafa flest allir ákveðnar
* skoðanir á hinum ýmsu stefn-
um og er það mjög eðlilegt og
sjálfsagt. Það er því ljóst að
. stjórnmálafélögunum verður
seint útrýmt innan skólans,
enda ekki æskilegt. Þeim verð
ur því að finna annan vett-
vang og hygg ég að vænlegast
yrði að stofna málfundafélag,
sem þau stæðu að. Hvernig
kosningum til ópólitísks stúd-
entaráðs yrði svo hagað er ó-
leystur vandi og rétt leið vand
fundin. Kommlúnistar innan
skólans hafa fram að þessu
verið hvað hatrammastir and-
stæðingar þessarar -stefnu, —
hver svo sem orsökin er.
— Hvað vildurðu segja um
samband íslenzkira stúdenta
annarra þjóða?
— f heiminum eru nú tvö
alþjóðleg stúdentasambönd og
stafar það af pólitískum á-
!■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■
■ m
■ ■
I Ur heimi I
■ ■
| unga j
| fólsins I
■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■
greiningi í alþjóðamálum. —
Hér kemur járntjaldið al-
kunna enn til sögunnar. —
Stúdentar austan þess mynda
hið svokaUaða IUS-samband,
sem mjög er háð stefnu komm
únista. Má geta þess að á
þingi, sem það stóð fyrir í
Prag fyrir fáum árum, — eða
rétt eftir Ungverjalands-bylt-
inguna kom fram tillaga þess
efnis, að stúdentar vottuðu
Ungversku þjóðinni samúð og
styddu stúdenta þar í lanli í
frelsisbaráttu þeirra. Tillaga
þessi var felld með yfirgnæf-
andi atkvæðamagni. íslenzkir
háskólastúdentar eru aðilar að
vestræna sambndinu, sem
nefnist ISC-CoSec.
Hefur það gengizt fyrir alls
átta alþjóðlegum stúdenta-
þingum. M. a- í Stokkhólmi,
á Ceylon, í Nigeríu og nú síð-
ast í Perú. Eitt af hlutverk-
um þessara þinga er að kjósa
nefnd manna, sem ferðast um
og kynnir sér hag stúdenta í
ýmsum ríkjum. Á það helzt
við um lönd, sem skammt eru
á veg komin og eins þeim sem
átt hafa í ófriði. Skilar nefnd
þessi síðan áliti og eru þá
skipulögð ráð til úrbóta. M. a.
lét CoSec sig mjög skipta hag
ungver'skra stúdenta eftir bylt
inguna og það var og á vegum
þess, sem að tveir íslenzkir
stúdentar fóru fyrir skömmu
suður til Túnis til að vinna,
ásamt með stúdentum víðsveg
ar að úr heiminum, að endur-
byggingu skólahúss, sem orð-
ið hafði fyrir loftárás.
— Hvað hefurðu svo að
segja um félagslíf innan Há-
skólans?
— Það stendur til bóta. —
Stúdentakór var stofnaður fyr
ir tveim árum og æfir hann
af kappi. Samþykkt var tillaga
í stúdentaráði s. ]. vetur, þess
efnis, að fenginn verði að Há-
skólanum tónlistarráðunaut-
ur. Mæltist þessi hugmynd
mjög vel fyrir í Háskólaráði
og er vænzt góðra málalykta.
Þá er nýstofnað leikfélag inn-
an skólans og hefur mér skil-
ist að forráðamenn þess undir-
búi nú starfsemi, sem vonandi
verður blómleg. Stúdentaráð
gekkst fyrir bókmenntakvöld-
um í fyrravetur og er þess að
vænta, að þeirri starfsemi
verði haldið áfram. Kaffi-
kvöld eru tvisvar í viku á
Gamla-^Garði. Er þar oft fiutt
ýmislegt til skemmtunar og
fróðleiks. Meðal gesta sem
þangað hafa komið í heimsókn
og skemmt er t. d. Tómas Guð-
mundsson skáld. Innan Iíáskól
ans eru svo skákfélag og
bridgefélag, sem efna til
keppnismóta á hverjum vetri.
Geta má þess að allar deildir
skólans hafa með sér féiög,
sem starfa með misjöfnum
blóma. Tvær deildir, lækna-
deild og lögfræðideild, gefa.
út blöð, sem að mestu taka til
meðferðar tilheyrandi vísinda
greinar.
Að endingu vil ég taka það
fram, að almennum áhuga fyr
ir félagslífinu hefur verið á-
bótavant og er það ósk mín að
við stúdentar megum bera
gæfu til að reka það slyðruorð
af okkur, að um of skorti á
félagsþroska innan Veggja Há-
skóla íslands.
Baðvafnsgeymar
nýkomnir.
Sighvafur Einarsson & (o.
Skipholt 15 — Sími 24137 — 14233
Kolakatlar
Litlir kolakynntir miðstöðvarkatlar
fyrirliggjandi.
Sighvaiur Einarsson 4 (o.
Skipholt 15 — Sími 24137 — 14233
Sefbaðker
Nokkur gölluð setbaðker seld næstu daga.
Sighvafur Einarsson 4 (o.
Skipholt 15 — Sími 24137 — 14233
Framhald af 12. slðu.
við bálin og virðast eiga ræt-
ur aftur í grárri forneskju.
Downer segir að fáir komi
til með að lesa kennslubók
sína í Yao en þó geti svo far-
ið, að einstöku ferðamcnn á
þessum slóðum hafi einhvern
tíma gagn af henni.
í SAMTALSÞÆTTI í Ríkis-
útvarpinu á sunnudagskvöld
komst Helgi Þorláksson skóla-
stjóri m. a. svo að orði, að vafa-
laust mætti ætla, að óregla og
vandræði á heimilum væri
miklu víðar en menn héldu. Af
því tilefni átti Alþýðublaðið tal
við hann um þessi mál.
„PABBI ER ALLTAF
FULLUR“
Helgi kvaðst hafa sterkan
grun, þótt hann hefði fáar eða
engar sannanir, að óregla og
vandræðaástand á heimilum
væri miklu almennara en ætlað
væri. Hann kvaðst nýlega hafa
haft orð á því við kennara sína
í Vogaskólanum, að í fjölmörg-
um tilfellum mætti rekja slæm-
an heimanbúnað barna um nám
til óreglu, drykkjuskapr og laus
ungar' á heimilum. Þetta kæmi
bezt í ljós er skólar smækkuðu,
kennurum fjölgaði og betra
færi gæfizt á að fylgjast með
hverjum einstökum. Lítill
drengur hefur t. d. í vetur kom-
ið -í skólann mjög illa lesinn.
Aðspurður af skólastjóna og
kennara hví hann lærði ekki,
sagði hann: „Ég get það ekki,
því að pabbi er alltaf fullur.“
Að vísu kvaðst hann hafa her-
bergi, sem hann ætti að geta
lært í, en þegar pabbi hans væri
fullur, þá væri hvergi friður.
Helgi kvaðst enn fremur
Vkf. Framsókn
draga ályktun sína af kynnum
við eldri börn. Þau væru miklu
ófúsari að segja satt og rétt frá
orsök fyrir lélegum lestri en
yngri börn, sem ekki hefðu vit
á að þegja. Hann kvaðst þó geta
markað það af ýmsu, hver
kæmu frá óreglu- og vand-
ræðaheimilum. Stundum talaði
hann við börn til dæmis og lýsti
fyrir þeim slíkum heimilum og
bölvun drykkjuskapar. Hefði
hann þá jafnan auga með þeim
börnum og unglingum, sem
hann hefði grun um að kæmu
frá slíkum heimilum og byrgð-
ist ekki á svip þeirra að sjá, að
þau þekktu þau af eigin reynd.
U- Félagslff
Knattspyrnufél. VALUR:
Framhaldsaðalfundurinn verð
ur á morgun, sunnudag, í fé-
lagsheimilinu að Hlíðarenda,
og hefst kl. 2 e. h. Fundarefni;
Deildaskiptingin.
Fjölmennið stundvíslega.
Stjórnin.
KFUM
Á morgun:
Kl. 10 f. h. Sunnudagaskólinn.
Kl. 1.30 e. h. Drengir.
Kl. 8.30 sd. Samkoma.
Jóhannes Sigurðsson prentari
talar. — Allir velkomnir.
(Framhald af 4. síffu).
Verkakvennafélagið Fram-
sókn hefur alla tíð notið for-
ustu hinna ágætustu kvenna
og stjórnarskipti í félaginu fá
tíð. Aðeins tvær konur hafa
verið formenn félagsins. Frú
Jónína Jónatansdóttir fyrstu
20 árin og frú Jóhanna Egils-
dóttir síðan, eða í 25 ár. Þetta
mun einsdæmi í sögu verka-
lýðssamtakanna.
í stjórn félagsins nú eru
auk Jóhönnu þessar konur:
Jóna Guðjónsdóttir, varafor-
maðup. Guðbjörg Þorsteins-
dóttir, ritari. Guðrún Þorgeirs
dóttir, gjaldkeri. Þórunn Valdi
marsdóttir, fjármálaritari.
Kristín Andrésdóttir, varastj.
Pálína Þorfinnsdóttir, varastj.
í þessari stuttu frásögn af
starfi félagsins hef ég á eng-
an hátt leitazt við að skrifa
sögu þess, heldur aðeins reynt
að draga fram, hvernig kjörin
voru á fyrstu árum þess og
hvað áunnizt hefur til dagsins
í dag.
Á 30 ára afmæli félagsins
1944 skrifaði frú Svava Jóns-
dóttir sögu þess af sinni al-
kunnu vandvirkni og er nauð
synlegt að þar verði við bætt
og heildarsaga gefin út að
fimm árum liðnum, þegar fé-
lagið hefur starfað hálfa öld.
Það yrði merkileg saga, er
margur mun vilja eignast,
saga mikilla framfara og
stórra sigra íslenzkrar alþýðu
og brot úr lífssögu þjóðarinn-
ar um 50 ár.
Á þessum merku tímamót-
um • verkakvennafélagsins
Fi'amsóknar þakka ég forustu
konunum og félaginu sem
heilcT mikið og ágætt starf í
þágu alþýðunnar og árna fé-
laginu framtíðarheilla.
Jón Sigurðsson.
VERA MACKEY
skemmtir í kvöld,
INCOUrS
ALMENNAR
VEITINGAII
allan daginn.
Cdýr og vistlegux
matsölustaður
Reynið viðsMptla.
!si|éEfi-Café.
ÍAFfer
Síminn er
3-59-36.
|,0 14. nóv. 1959 — Alþýðublaðið