Skírnir - 01.01.1834, Page 17
n —
leggja til penínga styrk þann, er þartil útheimtist;
er |jaÖ cinsætt, aö jietta fyrirtæki, ef því mætti
veröa framkvæmt, mundi verða verzlun þýzkra
viö Austrlönd og Tyrkji til mikils hagnaÖar, og
er það því vinsælt mjög og alþjóðligt.
I Schveissa fríveldum var sami kritr og
sundrlyndi, og áriö það næstliðna; voru þartil
allar þær sömu orsakir og áðr er frásagt. Var
það einkum í fríveldinu Schwyz ogBasel og Neuen-
burg að misklíðirnar urðu almennar og leiddu
til opinberrar mótstöðu; var það ætlun þeirra
að slíta felagskap við hin önnur fríveldi, -og
gjörðust þau Iíklig til að láta því framkvæmt
með valdi; varð þá sú ályktun af landdeginum, er
þá stóð yfir, að herlið fríveldanna skyldi skerast
i ieikinn og koma aptr á friði og samlyndi, gengu
þá og Basel og Schwyz aptr til hlýðnis, en frí-
veldið Neuenburg, er ogsvo stendr undir vernd
Praussa konúngs, tregðaðist við að svobúnu, en
þó lauk svo, að friðr og einíng komst þar á að
nýu, og var þá samið ný stjórnarskrá fyrir Schwyz
af landdeginum, er þvínæst endti aðgjörðir sínar
og aðskiidist lGda október í haust; var þá fridt í
fríveldunum að ytra áiiti, en síðan er farið aptr
að brydda á gömlum misklíðum, þarsem serligir
hagsmunir í þeim einstöku fríveldum draga allan
kjark úr sameginligum vilja og framkvæmd þar; er
það einsætt að eigi muni vankvæði það að sinni
upprætt, svo ei verði menjar og mein að í mörgu
tilliti.
Margir frelsisvinir, er flúið hafa af föðurlandi
*inu, einkum frá Vallandi og þýzkalandi og Pólen,
(2)