Alþýðublaðið - 12.01.1960, Qupperneq 11

Alþýðublaðið - 12.01.1960, Qupperneq 11
Ritstjóri: Örn Eiðsson ir BANDARÍSKA skíðastúlk- an Betry Snite, 20 ára gömul og bezt í alpagreinum þar í Iandi, fótbrotnaði á æfingu í Aspen, Colorado á miðviku- daginn og getur ekki keppt nieira í vetur. Eins og getið var um hér í blaðinu fyrir nokkru meidd- ist einnig bezti skíðaniaður Bandaríkjamanna í alpagrein um, Bud Werner nýlega og getur ekki heldur verið með í Squaw Valley. Veikir þetta að sjálfsögðu mjög vonir Bandaríkjamanna í þessum greinum á Olympíuleikjun- um. Alþýðublaðið — 12, jan. 1960 Frægir tenn- isleikarar TENNIS er íþrótt, sem Iítið er iðkuð á íslandi, enda erfitt vegna veðrátt- unnar. — Hér sjáið þið fræga tennisleikara; myndin er tekin í Stokk- hólmi fyrir nokkru og er af Dananum Kurt Niel- sen og ítalanum Pietr Angeli, en sá síðarnefndi sigraði. —o— EINN þekktasti knatt- spyrnumaður Englands, Nat Lofthouse, getur ekki leikið knattspyrnu af fullum krafti í framtíðinni. Hann hefur verið meiddur í ökla síðan í ágúst og mun aldrei ná sér til fulls, segja læknar. — Loft house hefur alls verið með í 33 landsleikjum og í þeim hefur hann skorað 29 mörk. Hann hefur skorað fleiri mörk með skalla en fæti og í þeirri list stóðu honum fáir á sporði. Hann vakti alveg Framh. á 14. síðu. Sigurvegararnir í karla- og kvennaflokki á Afmælismóti KR. í afmælismóti KR AFMÆLISMÓT KR í hand- knattleik hófst að Hálogalandi á Iaugardaginn og lauk á sunnudagskvöldið. — Þátttaka í mótinu var mikil og keppnin a$ ar jöfn og skemmtileg. KR sigr- aði í ltvennaflokki og FH í karla flokki og lilutu þessi félög bikar til fullrar eignar og hver leikmaður verðlaunapening, er formaður KR, Einar Sæmunds son afheníi er hann sleit mót inu. Á laugardagskvöldið voru háðið sex leikir og urðu úrslit þeirra þessi: í karlaflokki: Fram-FH (b) 6:3. FH (a)—Þróttur 11:2. ÍR ■—'KR 9:6, eftir framlsngd an leik, én að loknum venju- legumleiktíma, var jafnt 6:6. Ármann ■—■ Víkingur 4:3. Afturelding — Ármann 11:7. í kvennaflokki: KR — FH eftir framlengdan leik. Fram •— Þróttur 6:4. Ármann — Víkingur 3:2. Á sunnudagskvöld fóru fram undanúrslit mótsins og fyrst léku KR og Fram í kvenna flokki og sigruðu KR-stúlkur.n ar með töluverðum yfirburðum eða 8 mörkum gegn 1. Leikur- inn var daufur og tilþrifalítill. Lið KR sýndi þó góðan leik á köflum. Leikur Vals og Ármanns var aftur á móti geysispennandi, þó e'kki væri hann heldur vel leik- einkenna hann og var þó til mikils að vinna. Valur sigraði með 6 gegn 4 og kom það á ó- vart. Valur getur vænzt mikils af þessum ungu stúlkum, sem þarna unnu sinn stærsta sigur til þessa. Beztar í liði Vals voru Sigríður Sigurðardóttir og Berg ljót Hermundsdóttir, sem báð- ar eru mjög hættulegar skytt- ur. Einnig vakti Katrín Her- mundsdóttir athygli í markinu en húú varði oft vel. Ármans stúlkurnar treystu um of á Sig- fíði, en hennar var vel gætt. Úrslitaleikurinn í kvenna- flokki var þvf á milli Vals og KR og var mun jafnari en bú- iizfc var við. í hálfleik hafði að- eins eitt ímark verið skorað og gerði Valur það. Valsstúlkurn- ar bættu öðru marki við strax í upphafi síðari hálfleiks og sumir fóru að reikna með því óvænta, eða sigri Vals. En KR- stúlkurnar ná nú betri tökum á leiknum og skora þrisvar og sigruðu í leiknum með 4:3. — Telja verður það nokkuð sann- gjörn úrslit eftir gangi leiksins, en Valsstúlkurnar mega einnig vel við una. FH OSIGRANDI. Fyrsti karlaleikurinn . á sunnudaginn var milli Fram og FH og þeir síðarnefndu sigr- uðu en aðeins með einu marki og var það mun minni munur en búizt var við. Fram lék ágæta vörn og hinum snöggu FH-ing- um gekk illa að finna glufur á henni. Úrslit urðu 5:4 fyrir FH, Ldkur ÍR og Aftureldingar mörkunum, enda opnar varnir beggja liðanna. ÍR hafði yfir mestallan leikinn en honum lau'k með jafntefli 10:10. — 1 framlengingu náði ÍR betri tök um á spilinu og skoraði þrjú mörk en Afturelding ekkert, — leiknum lauk því með sigrj ÍR 13:10. FH og ÍR mættust til úr- slita og vann FH auðveldan sig ur skoraði 8 mörk gegn 5. Lið ÍR átti þó nokkuð góðan leik, en vörnin er alltaf hin veik.a hlið liðsins. Beztu menn F'H voru Ragnar, Birgir og Pétur Antonsson, sem er að verða e.inn okkar bezti maður. Hjá ÍR voru beztir Gunnlaugur, Her mann og Pétur, en liðinu bef- ur farið mikið fram síðan í haust. — Þar með lauk þessu skemmtilega afmælismóti. <WWMWM*MWW%WWWW« inn, deyfð og kæruleysi virtist i var skemmtilegur og nóg var af ' Heims-1 met ÁSTRALSKA stúlkan Rosemary Lassing, sem að eins er 18 ára setti nýtt heimsmet í 110 yds bringu sundi á laugardaginn er hún synti á 1:21,3 mín. í 55 yds. laug í Brisbane. iWWHWWWWWIWIIMIMWWI

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.