Alþýðublaðið - 29.01.1960, Blaðsíða 7

Alþýðublaðið - 29.01.1960, Blaðsíða 7
Framhald af 1. síðu. getur því aðeins gerzt, að út- flutningsuppbætur verði lagð- ar niður, eins og boðað hefur Verið, en hin nýja gengisskrán- ing komi í staðinn. f athugasemdum með frum- varpinu segir meðal annars Bvo: „Væntanlegar aðgerðir í efnahagsmálum hafa áhrif til haekkunar á bæði tekjur og út- 20 króna riflingur um H. K. L. ÚT ER KOMINN ritling- ur, sem nefnisí: Er Hall- dór Kiljan heiðarlegur rit- höfundur? Höfundur er Einar. Freyr Kristjánsson, en Episka söguútgáfan gefur út. Verð: Tuttugu krónur. Einar sakar H.K.L. umi að hafa stolið frá sér hug- myndinni að Silfurtungl- inu o. fl. gjöld. Vegna afnáms útflútn- ingssjóðs verður ríkissjóður að taka að sér niðurgreiðslur, en verður jafnframt aðnjótaridi tekna, sém áður runnu til út- flutningssjóðs. Sú aukning á bótagreiðslum almannatrýgg- inga, sem ríkisstjórnin beitir sér fyrir, veldur veruíegri hækkun útgjalda. Þá breytast tekjustofnar mjög vegna værit- anlegra breytinga á skattalög- um. Afnám tekjuskatts á al- mennum launatekjum lækkar tekjuskattinn um 75 milljónir króna frá því, sem var í fjár- lögum 1959. Núverandi 9:% söluskattur á innlendri fram- leiðslu og þjónustu fellur njð- ur. f stað þess tekjumissis kern- ur nýr, almennur söluskattur, sem ríkisstjórnin mun bera fram frumvarp um á næstunni. og sem áætlað er að gefi af sér 280 millj. kr. Gert er ráð fyrir að einn fimmti hluti þessa skatts gangi ekki til ríkisins heldur til jöfnunarsjóðs sveit- arfélaga, og geti þannig orðið til að lækka núverandi útsvör. Að lokum falla niður tveir tekjustofnar, sérstaks eðlis, frá fjárlögum 1959, tolla- og skatta greiðslur Sogsvirkjunar og greiðsluafaangur 1958“. Fjárlagafrumvarpið sýnir greiðsluafgang 1,8 milljónir króna, en vegna hinna stór- felldu breytinga er nú sérstak- lega erfitt að áætla suma liði, til dæmis hinn væntanlega söhiskatt. Tekjuskatturinn er nú áætl- aður 70 milljónir af liátekju- mönnum og fyrirtækjum, en hefði að óbreyttum lögum num ið 180 milljónum, þannig að sú niðurfelling, sem fyrirhuguð er, ætti að nema um 110 milljón- um. Ætlunin er að hækka inn- flutningsgjald af benzíni um 34 aura og verði það kr. 1,47 á líter. Þar af renna 19 aurar til brúarsjóðs og 14 aurar til \rega- lagninga milli byggðarlaga, scm er 3ja aura hækkun á hvoru. Um síma. r>óst, áfen<ri. tóbak og fleiri vörur og þjónustu, sem ríkisfyrirtæki selja almenn ingi, er gert ráð fyrir að verð- lag hækki til að mæta gialda- aukningu vegna efnahagsað- gerða (gengisbrey tingu fyrst og fremst) en um aðrar verð- breytingar er ekki talað í fjár- lagafrumvarpinu. JPr Asfandio í Algier Framhald af 5. síðu louvrier þá Challe mundu koma aftur til Algeirsborgar, þegar borgarar óskuðu þess, og þeir mundu taka í hendur manna og fara til her-minnismerkisins til að syrgja hina dauðu. Síðar var tilkyimt í Algeirs- borg, að þeir Delouvrier og Challe hefðu farið til bæjarins Bida, sem er 65 km. frá borg- inni. Búizt er við, að herinn muni styðja þá dyggilega og þetta muni veita þeim betri aðstöðu í átökunum við öfga- menn. Meðal stjórnmálamanna í París eru taldar hugsanlegar þrjár skýringar á þeirri ráð- stöfun að flytja þá Delouvrier og Challe frá Algeirsborg: 1) Ráðstöfunin er liður í þeirri á- ætlun, sem de Gaulle fékk við- urkennda á ráðuneytisfundin- um í gær. 2) Stjórnin hafði Flensa (Framhald af 5. síðu.) í Svíþjóð segir TT, að heil- brigðisyfirvöldin hvetji lækna, hjúkrunarkonur, fiugáhafnir á millilandavélum og fólk, sem ætlar ti! landa, þar sem veikin herjar, að láta bólusetja sig. Hins vegar mun magn af bólu- efni vera takmarkað fengið upplýsingar um, að öfga menn hefðu á prjónunum áætl- anir um að setja á laggirnar sjálfstæða stjórn í Algier eftir ræðu de Gaulles annað kvöld. Delouvrier og Challe hefði ver ið skipað út úr borginni til að hindra, að þeir væru teknir til fanga. 3) Getið er upp á, þótt því sé lítt trúað, að de Gaulle hyggist fara leynilega til Algi- er til viðræðna við Delouvrier og Challe. í París lét de Gaulle í ljós þá bjargföstu ákvörðun sína að sjá um, að stofnanir lýðveldis- ins verði virtar. í ræðu í ríkis- ráðinu sagði hann, að Frakk- land gæti ekki verið til án rík- isins. Fyrr í dag hafði hann rætt við stjórnarskrárnefndina, sem verður að ráðgazt við, áð- ur en hann tekur sér alræðis- vald. Síðar í kvöld ræddi de Gaulle við Debré, forsætisráðhera, en Debré hafði fyrr í dag rætt við Paul Ély, yfirhershöfðingja franska hersins. Einn uppreisnarleiðtoginn í Algier, Joseph Ortiz, lýsti því yfir í ræðu í dag, að Jacques Massu, faílhlifa-herforinginn, sem settur var af á dögunum, stæði á bak við öfgamenn. Hann kvað Delouvrier einnig hafa haldið veigamikla ræðu sem hann mundi svara á föstu- dag. Yfirlýsing ALÞÝÐUBLAÐINU barst í gær eftirfarandi yfirlýsing frá stjórn Cudoglers h.f.: í tilefni af frétt í blaði yðar í gær varðandi fyrirtæki okk- ar, Cudogler h.f., leyfum við undirritaðir stjórnarmenn fyr- irtækisins okkur að taka fram, að frétt þessi er alröng. Treyst- um við því að þér leiðréttið þetta á áberandi stað í heiðr- uðu blaði yðar á morgun. Það eina rétta er, að Ingvar S. Ingvarsson sagði upp starfi sínu hjá fyrirtæki okkar þann 1. desember s. 1. Stjórn Cudogler h.f. Þorvaldur Þorsteinsson, Jóhann Pálsson, Eiríkur Bjarnason. ATHUGASEMD BLAÐSINS: Eins og ofanrituð yf'rlýsing ber með sér, stendur í þessu máli fullyrðing á móti fuílvrð- ingu: Annars vegar heimild blaðsins, hins vegar stjórn fyr- irtækisins Cudogler h.f. Virð- ist því eðlilegast — og blaðið gerir það hér með að tillögu s'nni — að Sakadómarinn í Reykjavík fyrirskipi rannsókn. SAMKVÆMT upplýsingum fjárlaganna verð- ur haldið áfram niðurgreiðslum á vöruverði inn anlands, og er áætlað til þeirra harfa 302 milljón- < ir króna. Gert er ráð fyrir, að núverandi niður greiðslur verði óbreyttar, 265 milljónir, en þar i er fyrst og fremst um að ræða landbúnaðarafurð- \ ir. Hins vegar flytjast þær nú til frá útflutnings- • sjóði, sem lagður verður niður, til ríkissjóðs. Þá verður bætt við nokkrum vörum, sem hafa verið fluttar inn með 30% yfirfærslugjaldi, og nemur niðurgreiðsla á þeim 37,9 milljónum. í þessum flokki voru nokkrar helztu innfluttar matvöru- tegundir, t. d. kornvörur, kaffi og sykur. Borgarlækni Framhald á 3. síðu. Heilbrigðiseftirlitið hefur ekki fengið neitt tilefni til að ætla, að gallar á umræddu sýnishorni megi rekja til Pökkunarverksmiðj. Kötlu h. f., að Laugavegi 178. Eftirlit þar hefur ekki gefið ástæðu til athugasemda. í blaði yðar hinn 27. þ. m. um skordýr í haframjöli, skal þetta tekið fram: Það er rétt, að heilbrigðis- eftirlitinu barst pakki með haframjöli, sem mengað var mölbjöllu. Hins vegar hefur ekki tekizt að finna bjöllu þessa í öðrum sýnishornum, sem tekin hafa verið til rann- sóknar. Bjalla þessi er algeng bæði hér á landi og í nágrannalönd- Norskur . . Framhald af 5. síðu. ekki fram fyrr en seint á mið- vikudags'kvöld, svo að menn hafa orðið að bregða skjótt við til þess að af þessu mætti verða. Suðurpólsfarinn Olav Bjá- land mun kveikja eldinn kl. 10 f. h. á sunnudag. Skíðamenn bera síðan eldinn til æskulýðs- hússins í Morgedal, en þaðan verður hann fluttur til Fornebu flugvaliar við Oslo. Þar mun borgarstjórinn í Oslo, Brynjulf Bull, tendra með honum kynd- il þann, er fluttur verður til Los Angeles. Vikib frá SAMKVÆMT upplýsingtim sem blaðið Kefur aflað sér, hef- ur Einari Pálssyni, skrifstofu- stjóra Póst- og símamálastjórn- arinnar, og Pétri Eggerz Stef- ánssyni, póstmálaritara, veri9 vikið úr starfi á meðan rann- sókn fer fram í frímerkjasvika- málinu svonefnda. Embættismenn þessir muiut báðir vera enn í gæzluvorð- haldi. ! iWWWWMMMWWWWWW UTANRÍKIS- RÁÐHERRA SLASAST GUÐMUNDUR í. Guð- mundsson, utanríkisráð- herra, varð fyrir því slysi í gærdag að falla í hálku á tröppunum heima hjá X| sér í Hafnarfirði. Við fall- ið fór ráðherrann úr axl- arlið. Hann var fluttur á Slysavarðstofuna í Rvík, þar sem kippt var í lið- inn. Ráðherránn mun verða frá störfum í nokkra daga. WMMMMMIWWMWMMMn BRJÓST OG MITTI BÚFA PARÍS, 28. jan. (NTB-Reuter) — Þær stúlkur, sem neita að láta mitti sitt „fljóta burt“ og brjóstiri hverfa í tízku þeirri, sem flest tízkuhúsin í París hafa tekið upp, munu játa tízkukónginum Guy Laroche ást sína. Hann sýndi nefnilega í dag sína kjóla, sem ganga í bei'högg við alla hina. Vel af- markað mitti, studd lífstykki, breiðum mittisklútum o. s. frv. Lanvin-Costillo kom í dag fram með hatt, sem er í lýg- un eins og Babels-turn. Ann- ars leggur það tízkuhús á- herzlu á að láta konur líta út örmjóar, eins og flaggstetig- ur, hvort sem er frá hlið cða framan frá. Alþýðublaðið —r 29. janúar 1960^^

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.