Alþýðublaðið - 29.01.1960, Síða 11

Alþýðublaðið - 29.01.1960, Síða 11
Ritstjóri: Örn Eiðsson Islenzka sundfólkið æfir 6 tíma á viku Skaufadrottningin í GÆR náðum við tali af Jónasi Halldórssyni sundkenn- tara, en hann hefur verið ráðinn til Þjálfunar af Sundsambandi íslands.með tilliti til undirbún- ings íslenzks sundfóiks fyrir Olympíuleikana í Róm. — Það hafa engir ákveðnir verið valdir til sérstakra æf- inga með væntanlega þátttöku í huga, sagði Jónas, — en fyrir sérstakar æfingatöflur í þessu skyni, verið er að gangá frá þeim þessa dagana í fjölritun og síðan verða þær sendar út á land til þeirra, sem þess cska. Svo er auðvitað hægt að veita einhverja tilsögn á þeim mót- um, sem haldin verða hér í vet- ur, en vonandi mætir sem fiest sundfólk á þau, það gerir mótin skemmtilegri og fjölbreyttari. Jónas þjálfari og sundkappinn Guðmundur Gíslason. Carol Heiss Nítján ára bandarísk stúlka Carol Heiss, sem fjórum sinn- um hefur orðið heimsmeistari í listhlaupi á skautum, tekur þátt í þessari grein á vetrar- ólympíuleikunum 1960 í Squ- aw Valley í Kaliforniu. Carol hefur hlotið öll helztu verð- laun, sem til eru í heiminum, nema ein — hún hefur enn ekki hlotið hin eftirsóttu gull- verðlaun ólympíuleikanna, en um þau mun hún keppa í febr- úar n.k. ingum, að sýnt þótti, að hér væri á ferðinni efni í skauta- drottningu, ef hún vildi og gæti lagt sig fram í þessari erfiðu og kröfuhörðu íþrótt. Þótt for- eldrar hennar væru ekki efnað- ir — faðir hennar er bakari þótti þeim rétt og skylt að gefa dóttur sinni tækifæri til þess að sýna, hvað hún gæti og á- kváðu að kaupa tíma fyrir hana í skautakennslu. Næstu ár fór frú Heiss dag- lega með Carol í skautahöllina ] og tók með sér tvö yngri syst- kini hennar, Nancy og Bruce. Ekki leið á löngu, þar.til þau voru orðin jafn áhugasöm og Carol og sýndu einnig mikla hæfileika. Það var mikið lán, að öll systkinin fengu áhuga á þessari íþrótt, því að þannig stytta þau hvert öðru langar og þreytandi stundir við æfingar. Móðir Carol lézt fyrir þrem- ur árum, en lifði þó til að sjá dóttur sína vinna fyrsta heims- meistaratitilinn. Þar eð Carol er elzt systkinanna, kom það j mest á hana að sjá um heimilið. eftir dauða móður hennar. Hún hefur því nóg að gera, því að' auk heimilsstarfanna stundar hún háskólanám og verður að æfa sig á skautunum marga klukkutíma á dag. Fjölskyldan Carol tók þátt í vetrarólymp- býr £ litlu timburhúsi í Ozone íul&ikunum í Cortma a Italiu | 1956 og þar varð hún önnur, rétt á eftir annari bandarískri unglingsstúlku, Tenley Álb- bright. Á vetrarólympíuleikun- um í ár verður aðalandstæðing- ur hennar 17 ára systir- hennar, Nancy. Bróðir hennar, Bruce, 15 ára, er einnig efnilegur skautamaður. Carol var aðeins sjö ára, þeg ar séð var, að hún átti mikla framtíð fyrir sér í skautaíþrótt- inni. Þá hafði hún æft skauta- íþróttina af og til í eitt ár og sýndi þá þegar svo óvenjulega hæfileika og yndisþokka í hreyf Framh. á 14. síðu. nokkrum vikum hóf ég að þjálfa okkar bezta sundfólk hér í höfuðstaðnum. Það eru alls sex æfingar- í viku, þrisvar í Sundhöllinni og þrisvar hef ég leikfimi, lyftingar, æfingar með lóð o. fl. Á þesar æfingar mæta að staðaldri Guðmundur Gísla- son, Ágústa Þorsteinsdóttir, Hrafnhildur Guðmundsdóttir, Einar Kristinsson og Hörður Finnsson. —- En hvað um sundfólkið út á landi? — Það er nú erfiðara að ná til þess daglega, en ég hef samið Fyrsta sundmót ársins verður á miðvikudaginn, en það er Sundmeistaramót Reykjavíkur. Þar getur því ekki orðið um þátttöku utanbæjarmanna að ræða, en það verða fleiri mót. Við þökkum Jónasi fyrir greinagóð svör og óskum hon- um góðs gengis í hinu ábyrðg- armikla starfí. WAERN var svo óánægður með árangurinn í Los Angeles í míluhlaupinu — 4:13,9 — að hann hefur ákvcðið aÁ fara heim til Svíþjóðar strax. / kvöld: ÞAÐ er í kvöld kl. 8, sem bandaríska körfuknattleikslið- ið „Supply‘.‘ og ÍR-ingar kepþa að Hálogalandi. Áður en aðal- leikurinn hefst leikur 4. flokk- ur ÍR gegn jafnöldrum sínum af Keflavíkurflugvelli og það getur orðið skemmtilegur leik- ur ekki síður en sá fyrri. Lið Bandaríkjamanna, sem keppir að Hálogalandi f kvöld er mjög sterkt og hefur ekki tapað leik, síðan það hóf keppni á Keflavíkurflugvelli. í æfing- arleik gegn meistaraflokki ÍR fyrir nokkru sigruðu samt Bandaríkjamennirnir aðeins með 12 stiga mun, sem ekki er neinn sérstakur munur í körfu knattleik — en sjón er sögu ríkari, komið að Hálogalandi í kvöld og sjáið skemmtilega við- ureign. A EFRI myndinni sjáið þið Carol Heiss æfa bal- lett, en það er nauðsyn- legt fyrir skautadrottn- ingar. Hún kann nú samt betur við sig á ísnum — eins og sézt á neðri myndinni. Á morgun: Fréttabréf frá USA Alþýðuhlaðið — 29. janúar 1960 ||

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.