Lanztíðindi - 10.02.1851, Síða 1
LANZTÍÐINDI.
1§5L
Ár ÍO. Febriiar. 40. og 41.
Reglugjörð,
sem (jilda á fyrst um sinn fyrir presta-
skólann.
9. yr.
(Framhald). Burtíararpróf skal haldið í
viðurvist biskupsins af kennendum presta-
skólans, og skiptast J)eir á um, áð hafa til-
sjón hjá þeim sem útskrifast, meðan þeir eru
að leysa úr hinum skriflegu spurningum.
Bæði skrifleg og munnleg svör skal biskup
og hinir föstu kennendur prestaskólans dæma,
og ákveða þeir hver um sig, jafnskjótt og
þeír hafa gefið atkvæði sittíhverri prófgrein,
einhverja af þessum einkunnum: afbragðsvel,
dável, vel, sæmilega, laklega, illa. Síðan
skal leggja saman atkvæði prófdómenda, og
gjöra af eina einstaka einkunn í hverri próf-
grein; en í þeim greinum, sem prófið erbæði
munnlegt og skriflegt í, skal leggja saman
atkvæðin fyrir hvorttveggja, og gjöra afeina
einstaka einkunn fyrir alla greinina, þó skal
prjedikunarlist vera undanskilin, þar skulu
vera tvær einkunnir, önnur fyrir að semja
ræðuna, og hin fyrir framburð; fyrir prófgrein-
ir þær, sem taldar eru, verða þannig gefnar
7 einstakar einkunnir, eða: 1 fyrir útskýringu
ritningarinnar, 1 fyrir trúarfræði, 1 fyrir siða-
fræði, 1 fyrir kyrkjusögu, 2 fyrir prjedikunar-
list, og 1 fyrir barnaspurning. Fyrir kenni-
mannlega guðfræði og kyrkjurjett skal þar á
mót ekki gefa sjerstaka einkunn, (eins og
getið var um í 8. grein) og hefur þá prófið í
þessum greinum engin beinlínis áhrif á aðal-
einkunnina.
10. yr.
Hinar einstöku einkunnir gihla þetta í
tölum:
afbrayðsvel jafnt 8
dável — 7
vel — 5
sœmileya — 1
lakleya ----f- 7
illa ----F23
Úr hinum einstöku einkunnum skal búa til
eina aðaleinkunn, sem heitir:
Fyrsta einkunn,
Önnur einkunn, eða
þriðja einkunn;
er hún ákveðin eptir tölugildi hinna einstöku
einkunna samtals á þessa leið:
til fyrstu einkunnar þarf að minnsta kosti 4
dável og 3vel, eða 43tölur,
— annarar einkunnar 4 vel og 3 sæmilega,
eða 23 tölur,
— þriðju einkunnar 2 vel og 5 sæmilega,
eða 15 tölur.
Við fyrstu einkunn má bæta þeim viðauka
afbrayðsvel, og þarf til þess að minnsta kosti
4 afbragðsvel, og 3 dável eða 53 tölur; á
sama hátt skal og skipta annari einkunn í
tvo staði, og heitir hið efra stig: önnur ein-
kunn með viðauka (anden Characteer með
Föie), og þarf til þess að minnsta kosti 7 vel
eða 35 tölur. Nái liinar einstöku einkunnir
sainanlagðar ekki 15 töluin, má ekki heita, að
sá, sem svo stendur á fyrir, hafi aflokið prófi,
og getur hann þá ekki gengið undir nýtt próf
fyrren að ári liðnu.
11. yr.
Tilsjónarmenn prestaskólans taka mann
til að rita í bók hin helztu atriði úr yfirheyrsl-
unni, skal sú bók vera fullgild. Að loknu
prófi gefur forstöðumaður prestaskólans hverj-
um þeim, sem hefur aflokið því, vitnisburð-
arbrjef, og setur undir það innsigli presta-
skólans; þarskal tilgreina bæði aðaleinkunn
og allar einstakar einkunnir, og gefa vitnis-
burð íyrir yðni, menntun og siðferði, vitnis-