Kristileg smárit handa Íslendingum - 03.01.1865, Blaðsíða 1

Kristileg smárit handa Íslendingum - 03.01.1865, Blaðsíða 1
KRISTILEG SMÁRIT IIANDA ÍSLENDINGUM. JIS 3. GOTT HEIMILI. Svo líkir sem mennirnir eru hver öðrum í ])örf- um, tilhneigingum og yfirburðum yfir hinar skynlausu skepnur, svo ólíkir eru þeir hver öðrum opt og einalt innbyrðis; sami mismunur kemur og fram í félögum þeirra, hvort sem lilið er til þess anda, sem í félögum þeirra drottnar, eða þess fyrirkomulags, sem á þeim er, og þeirrar stjórnsemi, sem í þeim ríkir og viðheldur þeim. Mismunur þessi sést hvcrgi betur, en á heirnil- unum; heimilin eru félög; en hversu ólík eru þau ekki livert öðru? Eins og það eru til menn, sem hera af öðrum að öllu atgjörvi og kostum, eins eru líka til heim- ili, scm taka öðrum fram og bera langt af þeim; á annað heimilið keppir hinn veglúni ferðamaður og hlakk- ar til að komast þangað, af því hann veit af Ijúfum og vinsamlegum viðtökum, af því að hann veit, að þar er ekki einungis hvíld og greiði á reiðum höndum, heldur er þar svo margt, sem skemtir auganu og gleður hugann, með því það er vottur um samlyndi, velmegun, fegurð- artilfmningu, stjórn og reglusemi; á annað kvíðir hann fyrir að koma; hann veit, að ferðamaðurinn er þar ekki velkominn, og annaðhvort býst hann við, að sér verði synjað um allan greiða, eða að liann verði lálinn úti af skornum skamti, og með svo óhýrum svip og viðmóti,

x

Kristileg smárit handa Íslendingum

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kristileg smárit handa Íslendingum
https://timarit.is/publication/89

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.