Kristileg smárit handa Íslendingum - 03.01.1865, Blaðsíða 5

Kristileg smárit handa Íslendingum - 03.01.1865, Blaðsíða 5
5 sá mesta virðingu meðbræðra sinna, sem umfram alt reyuir að vera sjálfum sér bjargandi og að standa í skilum við alla menn, að borga sín skyldugjöld og hjálpa þeim, sem sannarlega þurfa hans liðsinnis við; því er miður, að þeir eru alt of margir á meðal vor, sem ekki liafa þessa stjórn á eignum sínum, sem halda fram ó- þarfakóstnaði, þangað til þeir verða með fjölskyldu sinni að annara bandbendi, um leið og þeir pretta svo marga, sem í góðum tilgangi höfðu orðið þeim að liðsinni. Að binu leytinu hættir stjórnsemin að vera stjórn- semi og verður að hörku, ef hún ekki er sameinuð nærgætni. það er ekki nóg að kenna öðrum að hlýða, en ætla ekki kröptum þeirra af, eða veita þeim af skorn- um skamti það, sem þeir þarfnast til fata og matar. Að vísu eigum vér allirheimtu á þessari nærgætni hver af öðrum, en enginn er skyldari að auðsýna hana, held- ur en húsbændurnir hjúum sínum; verða ekki hjúin sakir hins nána sambands milli þeirra og húsbændanna eins'og að náungum iiúsbænda sinna, og um þá segir postulinn (1. Tim. 5, 8), að ef sá sé nokkur, sem ekki vilji annast náunga sína, helzt efþeirséu heimilismenn, hann hafi afneitað trúnni og sé heiðingjum verri. Hjúin brjóta líka niður góða' stjórn, þegar þau ekki hafa nær- gætui við húsbændurna, og heimta af þeim meiri við- höfn en efnum þeirra svarar, og neyða þá til að kaupa af sér verkin fyrir eitthvað það, sem fremur lýtur til munaðar en lífsins og heilsunnar viðurhalds. Yfir höfuð heyrir það til góðrar stjórnsemi, að bæði húsbændur og hjú kannist við, að opt er góður og einlægur vilji meira verður, heldur en þótt mikið sé látið í té og mikið af- rekað, ef þenna góða vilja vantar; góðum vilja tekst mikið, þótt kraptarnir séu veikir, ef ekki vanlar nær-

x

Kristileg smárit handa Íslendingum

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kristileg smárit handa Íslendingum
https://timarit.is/publication/89

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.