Kristileg smárit handa Íslendingum - 03.01.1865, Page 2

Kristileg smárit handa Íslendingum - 03.01.1865, Page 2
2 að hann á bágt með að þiggja bann; við óhýran svip búsráðanda og hjúa bælist, ef til vill, óregla og van- hirðing, sem hvervetna lýsir sér á heimili þessu, svo hann óskar sér, að nóttin væri liðin, til þess að geta byrjað ferð sína á ný og yfirgefið þetta heimili. Marg- ur veglúinn ferðamaður, margur þurfalingur hefir þar á móti blessað heimili Iiinna örlátu og góðgjörnu húsráð- anda og með elsku sinni, virðingu og þakklátsemi sýnt, hversu mikil guðs gjöf góð heimili eru, í hverju félagi sem er. En gott heimili ber að vísu hina sýnilegustu ávexti í kring um sig, eða til þeirra, sem á því eru, þangað koma og við það hafa einhverju að skipta; en það ber og aðra ávexti, sem minna ber á, og þeir snerta eigi einungis þá menn, sem næstir eru, heldur félagið alt, snerta ekki einungis hið tímanlega, heldur og hið eilífa, koma ekki einungis fram á þeim tíma, sem hinir góðu húsbændur lifa á heimilinu og prýða það, heldur og eptir þeirra dag, svo þeir lifa bér á jörðunni, þótt þeir séu dánir, í þessum góðu adeiðingum verka sinna, í afleiðingum hinnar góðu hússtjórnar. Yér óskum vissulega allir, að heimili vor séu í tölu hinna góðu heimila, og að þau séu svo góð sem efni vor og kring- umstæður leyfa; þessa góðu ósk, þenna góða viljaskul- um vér þá styrkja með því að svara þeirri spurningu: Hvað er golt heimili? Á góðu heimili á stjórnsemi að haldast í hend- ur við nærgætni og umburðarlyndi. Hversu á- ríðandi góð heimilisstjórn sé, sýnir postulinn Páll með- al annars, þar sem hanu í 1. Tím. 3, 4, telur það sem eitt af skilyrðum fyrir því, að nokkur geti orðið um- sjónarmaður safnaðanna, að liann veiti heimili sínu góða forstöðu, og með spekt haldi börnum sínum til hlýðni;

x

Kristileg smárit handa Íslendingum

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kristileg smárit handa Íslendingum
https://timarit.is/publication/89

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.