Kristileg smárit handa Íslendingum - 03.01.1865, Síða 7
J
sem eru hið fyrsta skilyrði fyrir allri sannri velvegnun,
fyrir blessun hvers manns og hvers félags, en það er
gætileg breytni og stjórn á sjálfum sér.
í sambandi við góða stjórn á heimilunum stendur
samlyndi og friðsemi; án samlyndis og friðsemi
getur góð stjórn á heimilunum ekki staðizt, og án þeirra
getur ekkert heimili verðskuldað að heita gott. Á góðu
heimili kemur hógværð og stilling í veg fyrir allar mis-
sættir, svo mikið sem auðið er, en sáttgirni útrýmir öll-
um kala og úlfúð, ef friðurinn hefir raskazt. I voru ó-
fullkomna jarðneska ástandi er þó ómögulegt að girða
fyrir mismunandi skoðanir og meiningar, eins og yfir-
sjónir og gallar eru förunautar mannlegs lífs. J>ó að
liúsbændurna á góðu heimili knnni jafnvel að ágreina
innbyrðis, þótt yfirboðarar og undirgefnir verði missáttir
um stund, leiðir það þó aldrei til hneyxlanlegra orða
né viðskipta; hógværð og stilling stílar þar allar áminn-
ingar og aðfinslu, svo enginn særir þar annara sóma-
lilfinningu að óþörfu, né velur þeim önnur orð, en þau
sem við eiga; það er þess vegna eðlilegt, að sættir kom-
ist fljótara á en annars mundi verða, því ekkert gefur
meira tilefni til langvinnra missátta en óviðurkvæmileg orð.
Á góðu heimili fyrirgefa þó bæði húsbændur og hjú
hvert öðru hvaða yfirsjónir sem eru, þegar þau vita, að
bráðræði fremur en ásetningur er orsök í móðguninni;
þar sem góður heimilisbragur er yfir höfuð, þar er
komið í veg fyrir þráttanir, svo mikið sem auöið er;
þar er þeim ekki geíið tækifæri, sem bera róg, þar reyna
menn til að íinna afbatanir og umbera hver annan í
kærleikanum. Höfum oss það lmgfast góðir bræður, til
þess að sætta oss við samferðamenn vora á vegi lífs-
ins, einkum þá sem oss eru næstir, að samferðinni slítur