Kristileg smárit handa Íslendingum - 01.02.1866, Blaðsíða 3

Kristileg smárit handa Íslendingum - 01.02.1866, Blaðsíða 3
3 / þú þvkist h.ifa frið; því að sofandi maður vei'ður ekki var við, þólt honum sé einhver hætta búin. Stattu því við og hugleiddu, hvernig friði þínum er húttað, því að verið getur, að liann sé rangur. Vér höfum allir bæði fyrir idan oss og innra hjá oss sjálfum falsspámenn, »sem prédika um frið þótt enginn friður sé« (Ezek. 13, 16). Að hinu leytinu verða nógir til þess að raska friðnum, sem hafa yndi af því að trufla liinn sanna frið guðs barna. Sé þér nú alvara, kristinn maður, að rann- saka hjarta þitt og komast að réttri niðurstöðu í þessu áríðanda efni, þá vil eg leitast við að lélta undir með þér með því að sýna þér, í hverju hinn rangi og hinn retti friður er innifalinn. Ekki má ætíð fara eptir því, hvað hver einn er rólegur og andvaralaus, því að sá, sem vantar sannan sálarfrið, getur opt verið rólegur og án þess að kviða fyrir eilífðinni og óförum sínum, að minnsta kosti með- an hann sér ekki neina lífshættu bera að höndum, en hinn sanni friður getur verið samfara ángist og óró- semi, að minnsta kosti í fyrstunni, af því að trúin er veik, eða þekkingin ófullkomin. í’egar menn því ætla að greina hinn rétta og sanna frið frá hinum ranga og ósanna friði, þá má ekki eingöngu fara eplir því, hvað maðurinn er rólegur og andvaralaus um stundarsakir, þótt það sé víst, að sá friður, sem einungis er byggður á hinu rétta hellubjargi, hefir í för með sér sælufulla og varanlega sálarrósemi, og að aliur annar friður er svik- ull og breytist í ángist og skelfingu. I. Gætum nú fyrst að því, hvaðan hinn rangi og retti friður spretta, og lxvernig hvorum peirra fyrir sig verður við haldið.

x

Kristileg smárit handa Íslendingum

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kristileg smárit handa Íslendingum
https://timarit.is/publication/89

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.