Kristileg smárit handa Íslendingum - 01.02.1866, Blaðsíða 7

Kristileg smárit handa Íslendingum - 01.02.1866, Blaðsíða 7
7 traust á hans friðþægingu, að þeir haldi að þeir þess vegna megi lifa og láta eins og þeir vilji. Allt, sem þeir aðhafast, jafnvel skammir og lesti, láta þeit lenda á Iírists pínu og dauða. Fyrst hann með sínu blóði hefir borgað vora syndaskuld, þá ætla þeir, aðþaðskipti engu þótt þessi skuld sé aukin með nokkrum syndum. En þetta er ekki að treysta Kristi, hetdur að gjöra gys að guðs náð og sá friður, sem þannig fæst, er rangur og sviktill. Að það ekki heldur er Iíristur eða hans verðskuldun, sem menn treysta, sést bezt þegat neyðin og dauðinn nálgast, því að þá sýna þessir menn, að þeir eru Kristi eins ókunnugir eins og þeir aldrei hefðu heyrt hans getið. I'að eru líka fleslir vanir að treysta á mátt sinn og megin, á það, hvernig þeir sjálfir séu, eða hvað þeir hafi gjört. Jafnvel stórsyndarinn þykist vera betri en einhver annar, sem hann jafnar sér sam- an við, og á þessum ímynduðu yfirhurðum byggir hann þá frið sinn. Hafi menn aðhafzt eitthvað illt, þykjast þeir þá lika hafa gjört eitthvað gott og eru svo leiknir í að vega þetta hvað á móti öðru, að hið góða fær yfir- borðið eða verður að minnsta kosti eins mikið, og á þessu byggja þcir frið sinn. Til málamynda leggja þeir þá líka guðs miskunsemi og Krists friðþægingu í þá metaskálina, sem þeir hafa sitt góða lijartalag og góð- verk sín í, til að verða vissir um, að hún verði þýngri. En gættu þess, syndugur maður, að guðsorð segir, að þú sért ónýtur þjónn, að lijarta þitt sé eigingjarnt og syndugt, og að góðverk þín séu hálfverk. Kristur er annaðhvort frelsari þinn að öllu leyti, eða alls ekki; honum áttu að gefa dýrðina, en ekki þér sjálfum, því að í honum einum er frelsi að finna, með því »oss er ekkert annað nafn gefið, sem vér getum orðið sálu-

x

Kristileg smárit handa Íslendingum

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kristileg smárit handa Íslendingum
https://timarit.is/publication/89

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.