Kristileg smárit handa Íslendingum - 01.02.1866, Blaðsíða 10

Kristileg smárit handa Íslendingum - 01.02.1866, Blaðsíða 10
10 I>ó allt annað brygðíst mér, þó allt annað yrði eins og í þoku fyrir mínuni trúaraugum, þá hefl eg þó sann- an sálarfrið, þegar eg að eins hefi Jesúm Krist. Þess vegna þekkist ætíð friður sannkristins manns á því að liann byggist á Kristi og trúnni á hann. Þar á mót er sá friður ósannur, sem ekki stendur í nánu sambandi við frelsara vorn, heldur byggist á framförum í helg- uninni, á vitnisburði tilflnninganna, á dómi annara manna, eða öðru þvílíku. I*ó þessi friður líkist hinum sanna friði meðan allt gengur vel og allt leikur í lyndi, þá bregzt hann þó á liörmunganna timum. Ilinn sanni friður er að öllu leyti kominn undir Kristi og sam- bandinu við hann, svo þó hinn sannkristni hefði allt annað, gæti þó ekkert friðað hjarta hans, ef hann héldi, að hann hefði misst Iírist. Þetta sjáum vér t. a. m. af hinum fyrstu lærisveinum Iírists; liversu glað- ir, ánægðir og fullir friðar voru þeir meðan drottinn var hjáþeim; en hversu hryrggir og liarmþrungnir urðu þeir jafnskjólt og hann var frá þeim farinn og þeir misstu sjónar á honum; en uhdir eins og hann hirtist þeim aptur, fylltist hjarta þeirra friði og fögnuði. En þó iðrandi syndari hafi fundið sannan frið og hvíld fyrir sálu sína í samfélagi við frelsara sinn, er hann þó freistingum og áreitingum undirorpinn og stund- um þykir drottni nauðsyn á aö fela náð sína til að reyna sín börn og fá þau tii að byggja sálarfriðinn á sínu heilaga orði, en ekki á breytilegum tilflnninguni hjartans. Þessi reynsla veikir ekki trú þeirra, heldur styrkir hana og fær þau til aö grundvalla frið sinn enn betur á hinu óbifanlega hellubjargi. Þegar því Kristur er athvarf hjarta þíns og þú »villt ekkert annað vita þér til sáluhjálpar, en Jesúm Krist og hann krossfest-

x

Kristileg smárit handa Íslendingum

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kristileg smárit handa Íslendingum
https://timarit.is/publication/89

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.