Kristileg smárit handa Íslendingum - 01.02.1866, Blaðsíða 6

Kristileg smárit handa Íslendingum - 01.02.1866, Blaðsíða 6
6 þeir liafa það þá ekki réttilega um liönd, því að reynsla allra trúaðra sýnir og sannar, að þeir sem koma til Jesú og liagnýta sér hans friðar- og gleðiboðskap í auðmýkt hjartans og með sundnrkrömdum anda, flnna hvíld fyrir sálu sína. Og því betur sem þu innrætir þér guðsorð, kristinn maður, því stöðugri og innilegri verður friður hjarta þíns; því betur sem þú sérð og sannfærist um það af sannleikans orði, að eðlisfar þitt er spillt og syndugt og að þú getur ekki byggt á því sannan eða varanlegan frið; því betur sem þú sannfær- ist um, að friðurinn er byggður, ekki á ófullkomnum góðverkum vorum, heldur á algildum og óbifanlegum grundvelli, sem guð hefir lagt (Rómv. 8, 3), því áreið- anlegri og stöðugri verður þinn sálarfriður. Með því að veila Iíristi og bans heilaga saunleiksorði inntöku í lijartað viðhelzt hinn sanni friður, og því segir hann: »ef að þér haldið stöðugt við mitt orð, þá eruð þér sannarlega mínir lærisveinar; þér munuð þekkja sann- leikann og sannleikurinn mun gjöra yður frjálsa« (Jóh. 8, 31—32). Uvergi nema í sannléikans orði er frelsi og frið að finna. II. En slcoðum nú pá ólíku undirstöðu, sem hinn ó- sanni og hinn sanni friður eru byggðir á. Sá rangi eða ósanni friður er byggður á einhverju hjá mönnum sjálfum; en sá sanni friður er byggður á Kristi, á lœrdóminum um hans pínu, dauða og verð- slculdun. Svikul værð sofandi syndara oghinnar dauðu trúar er í rauninni byggð á einhverju sem menn telja sér til gildis. Að sönnu tala menn um Iírist og hans verð- skuldun og það lítur opt svo út, að þeir hafi það of-

x

Kristileg smárit handa Íslendingum

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kristileg smárit handa Íslendingum
https://timarit.is/publication/89

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.