Kristileg smárit handa Íslendingum - 01.02.1866, Blaðsíða 15

Kristileg smárit handa Íslendingum - 01.02.1866, Blaðsíða 15
15 JÓLASÁLMUR. Lag: Kora skapari heilagi andi. 1. Syng guði dýrð hans dýrkeypt hjörð, í dag liann græddi meinið þitt, gaf eiginn son sinn aumri jörð, og opnaði himnaríkið sitt. 2. Guðs sonur, Orðíð eilífð frá, sem ungbarn lítið fæddur er, og föðurs dýrðar ljóminn lá í lágri jötu niðri hér. 3. Ó, hvað hann skipti vel oss við, hann vorri tók við eymd og rýrð, en gaf oss sekum frelsi, frið, síns föðurs náð og liimnadýrð. 4. líann verður þjónn, jeg völdin fæ, liann vinna má, jeg hvíldar nýt, liann sætir kvöl, jeg sælu næ, liann saklaus deyr, jeg lífið hlýt. 5. Hann bar vor þungu glæpagjöld, og galt þá skuld, er á oss lá; hann myrkra- lagði' að velli -völd, og valdi dauðans lireif oss frá. 6. Nú er þvi manna bölið bæll, af birtu skærri sigruð nált,

x

Kristileg smárit handa Íslendingum

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kristileg smárit handa Íslendingum
https://timarit.is/publication/89

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.